Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.06.1997, Side 21
angraðist ég faglega og
tilheyrði eiginlega eng-
um starfshópi lengur. Eg
hafði slitnað úr tengslum
við aðalskrifstofuna á
Egilsstöðum, þar sem
flestir sérfræðingarnir/
fagfólkið í þessum mála-
flokki starfa.
Samkvæmt breyting-
um á lögum um málefni
fatlaðra, eiga sveitar-
félögin að yfirtaka mál-
efni fatlaðra eftir 2 ár. I
samningum félagsmála-
ráðuneytisins og Homa-
fjarðarbæjar er það tekið
fram að: “Hornafjörður
getur leitað eftir faglegri ráðgjöf og
stuðningi við framkvæmd þjónust-
unnar frá Svæðisskrifstofu málefna
fatlaðra á Austurlandi”. Mikilvægt er
að þessi atriði séu í samningunum, en
starfsfólkið þarf einnig að vera með-
vitað um mikilvægi faglegrar vinnu
og það að einangrast ekki faglega.
Starfsfólkið þarf að leita eftir ráðgjöf/
handleiðslu hjá sérfræðingum í mál-
efnum fatlaðra og vinna teymisvinnu
með öðrum fagaðilunt á svæðinu.
Hússjóður Öryrkjabandalagsins á 2 íbúðir á Höfn. Ásgeir
Sigurðsson leigir aðra þeirra.
vonandi markvissari.
Helstu samstarfsaðilar mínir eru
félagsráðgjafi, framkvæmdastjóri
félags- og heilbrigðissviðs og sér-
kennslufulltrúi sem starfar undir
fræðslu- og menningarsviði (sjá mynd
2). Ákveðið hefur verið að þetta fag-
teymi hafi fasta fundi hálfsmán-
aðarlega til að fara yfir málefni sem
skarast og deila út verkefnum. Einnig
hitti ég þetta fagfólk fyrir utan þennan
fasta tíma, þegar þörf er á því.
Sálfræðingur starfar hjá bæjar-
félaginu og kemur hingað tvisvar í
mánuði 3 daga í senn, hann situr einn
fund í mánuði með fyrrnefndu teymi.
Einnig hefur verið ákveðið að skipu-
leggja fund einu sinni í mánuði með
áðumefndu teymi, hjúkrunarforstjóra
Skjólgarðs, sálfræðingi og fram-
kvæmdastjóra fræðslu- og menning-
arsviðs (sjá mynd 2).
sem ég sé strax eru þeir
að öll þjónusta við fatl-
aða er á einni hendi, því
oft var erfitt að sækja
sumt til ríkis og annað til
bæjarfélagsins.
Eg varð sérstaklega
vör við það hjá foreldrum
bama með fötlun að þeim
fannst erfitt að þurfa að
hitta marga aðila vegna
þeirrar þjónustu sem bömin þeirra áttu
rétt á.
Ég hitti yfirmann minn oftar og get
því verið virkari í mótun málaflokks-
ins. Ég sé fram á meiri þverfaglega
vinnu, ég er orðin hluti af starfsmönn-
um bæjarins sem smám saman hefur
verið að fjölga í kjölfar aukinna verk-
efna frá ríki til sveitarfélaga.
I lokin vil ég árétta mikilvægi þess,
að sú faglega þekking og reynsla sem
starfsfólk Svæðisskrifstofunnar býr
yfir glatist ekki þegar sveitarfélögin
yfirtaka málefni fatlaðra.
Ég læt þessu lokið að sinni, en hver
veit nema þið heyrið frá mér aftur,
þegar ég verð flutt á bæjarskrifstofuna
og meiri reynsla komin á þessar
breytingar í málefnum fatlaðra á
Hornafirði.
Maren Ósk Sveinbjörnsdóttir
iðjuþjálfi
Niðurstaða
Þegar þetta er skrifað
eru liðnir rúmir 3 mán-
uðir frá breytingunum,
þannig að margt er ennþá
að mótast í þessum efn-
um. En helstu kostirnir
Fyrirkomulag eftir breytingar
Eins og áður hefur komið fram
yfirtók Hornafjarðarbær málefni
fatlaðra í Austur- Skaftafellssýslu og
á Djúpavogi. Meginmarkmið samn-
ingsins er að færa stjórn og ábyrgð á
þjónustu við fólk með fötlun yfir á
eina hendi, þ.e. til Hornafjarðarbæjar
og stuðla að betri nýtingu á því
fjármagni sem veitt er til mála-
flokksins og bæta þjónustu við fólk
með fötlun. Eftir breytingarnar er ég
starfsmaður Hornafjarðarbæjar og
vinn undir stjórn framkvæmdastjóra
heilbrigðis- og félagsmálasviðs.
Stjórnsýslubreytingar voru hjá
bæjarfélaginu í byrjun árs og eru
málefni fatlaðra undir heilbrigðis- og
félagsmálasviði (sjámynd 1)
Þjónusta við fólk með fötlun var
felld inn í almenna félagsþjónustu
sveitarfélagsins, og fer einn starfs-
maður með málefni fatlaðra í sveitar-
félaginu. Ég starfa áfram eftir sér-
lögum um málefni fatlaðra og sé nú
einnig um þau mál sem sveitarfélögin
sinntu áður samkvæmt lögunum, s.s.
liðveislu og ferlimál. Öll þjónusta við
einstaklinginn verður heildstæðari og
FRÉTTABRÉF ÖRYRKJABANDALAGSINS
21