Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.06.1997, Síða 23
manns. Við reynum
að vera svolítið
menningarleg,
fáum oft til okkar
góða gesti, nú ný-
lega t.d. Símon
Kuran, leikhúsin
eru kynnt o.s.frv.
Svo kemur fólk
þama með sölusýn-
ingar sem er tals-
vert vinsælt. Fyrir
skömmu var land-
vörður á Öskju-
svæðinu með
skemmtilega
myndasýningu og
frásögn svo dæmi
sé tekið.
Enn fleiri
nefndir eða hvað?
Já, fjáröflunar-
nefnd er m.a. í því
að þróa nýjar
hugmyndir sem
nýtzt gætu til fjáröflunar, því alltaf er
þess rík þörf. Laganefndin sér um að
lögin séu í takt við tímann, eru því í
raun í sífelldri endurskoðun. M.a.
koma þar til breytingar á lögum
Sjálfsbjargar - landssambandsins.
Sigurjón Einarsson er okkar laga-
doktor. Ferðanefnd hefur í stórræðum
staðið sl. tvö ár. Árið 1995 var farið
til írlands með stóran hóp - hátt í 50
manna, 15 hjólastólabundnir þar af.
Það reyndist erfitt að vera með svo
stóran hóp og í fyrra voru tvær ferðir
farnar til Þýskalands, 12 - 14 í hvorri
ferð með hjálparfólki og það gekk
mjög vel. Vandamálið er kostun
hjálparmanna, verður alltaf verra og
verra. Fjáraflanir skila minna og
minna fé. Fyrirtækin hafa breytt um
starfshætti, segjast sjálf vera með
hjálparsjóði, neita því öllum svona
sérbeiðnum. Ráðuneytin vísa svo á
fyrirtækin, en neita allri aðstoð. Hér
þarf að finna einhverja unandi lausn,
ef unnt er.
Nú langar mig að fræðast svo-
lítið um Vatnsendaparadísina ykk-
ar, sem þið rómið svo mjög?
Magnús Hjaltested á Vatnsenda
lagði Sjálfsbjörg til landspildu við
Elliðavatn. Auður Sveinsdóttir lands-
lagsarkitekt var fengin til að skipu-
leggja svæðið, gera það aðgengilegt
fötluðum, svo þeir geti stundað þar
útiveru. Skógrækt með Skeljungi
lagði okkur til góðan gróður og var
byrjað að gróðursetja í sumar er leið.
Þar kom Vinnuskóli Reykjavíkur til
góðrar hjálpar. Stígar eru nú tilbúnir
undir malbik eða steypu, unnið að því
að fá fyrirtæki til að malbika þá eða
steypa og hjálpa til við uppsetningu
bryggjanna. Margir hafa hjálpað
okkur vel og dyggilega. Bráðabirgða-
húsnæði hefur verið innréttað og
endurnýjað og er sú vinna langt kom-
in. Hugmyndin er húsnæði með sal-
ernisaðstöðu og þar sé um leið góð
kaffiaðstaða í 80 - 100 ferm. húsnæði.
Þarna hafa bæði opinberir aðilar og
fyrirtæki komið mjög myndarlega að
verki og eiga þakkir skildar.
Og þá er máske farið að síga á
seinni hlutann og rétt að spyrja um
starfið á skrifstofunni þinni,
Jóhannes. Hvað er þar helzt á akri
erjað?
Það er nú alltaf erfitt að tíunda
eigin verk. Nú skrifstofan heldur utan
um félagslíf sem fjáraflanir og oft er
þar anzi mikið umleikis. Við tókum
að okkur afgreiðslu á SVR kortum,
en S VR breytti til vegna mikillar mis-
notkunar að þeirra sögn, en sem ég
held nú að hafi verið mjög orðum
aukið. Frá áramótum hafa verið
afgreidd yfir 1000 kort. Sundkortin
eru alltaf jafnvinsæl, eðlilega þar sem
þau veita frían
aðgang að sund-
stöðum höfuð-
borgarsvæðisins
og í raun held ég að
landsbyggðin hafi
sömu góðu siðina
um gjaldfrían að-
gang. 1993 var
afgreiðslan upp á
900 kort. Nú nær
1300 á ári. Enn má
svo nefna upplýs-
ingastarfsemi
hvers konar, sem
aukizt hefur með
þrengri hag fatl-
aðra. þar hefur
góðærið gengið
fram hjá og ekki
bólar á því enn.
Er svo ekki
rétt að gefa þér
tækifæri til ein-
hverra lokaorða?
Því verður að fagna að opinberir
aðilar viðurkenna mikilvægi tilvistar
slíks félags í mörgum greinum. Þetta
á t.d. við um ferlimálin og er átak
Reykjavíkurborgar í þessum efnum
gleðilegasta dæmið þar um. Við okk-
ur er haft samráð um ferlimál m.a. um
breytingar á húsum. Landssam-
bandið og Sjálfsbjörg á höfuðborgar-
svæðinu hafa gefið út sérstaka leið-
beiningabók um þessa hluti. Lokaorð
mín varða mig máske dálítið persónu-
lega. Eg varð á sínum tíma fyrir slysi,
þurfti að læra að vinna með afleiðing-
um þess, þurfti sjálfur að heyja mína
baráttu við kerfið. Mér finnst þessi
reynsla mín hafa komið sér afar vel í
þessu starfi mínu hér, ekki sízt þegar
vísa þarf öðrum til vegar. Og svo er
bezt að klykkja út með óskum um
batnandi hag okkar fólks, því ekki
mun af veita.
Jóhannesi Þór er þakkað spjallið og
félaginu Sjálfsbjörg á höfuðborgar-
svæðinu er alls góðs árnað í erfiðu
starfi og krefjandi, en gefandi um leið.
Án baráttu, án starfs hefst ekkert og
Jóhannes Þór er lýsandi dæmi um þá
sem aldrei láta deigan síga. megi
honum og félögum hans farnast hið
bezta. Formaður Sjálfsbjargar á höf-
uðborgarsvæðinu er Sigurrós M.
Sigurjónsdóttir.
H.S.
FRÉTTABRÉF ÖRYRKJABANDALAGSINS
23