Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.06.1997, Síða 27
rekendum og því fjárhagslegt öryggi
jafnvel ekki til staðar.
/
Aíslandi greinast á milli 40 - 50
hjartveik börn árlega eða u.þ.b.
1% allra fæddra barna hér á landi. Því
hafa nær 1000 fjölskyldur tekist á við
þetta erfiða hlutskipti frá því að
greining hófst. Af þeim 40 - 50 börn-
um sem greinast með hjartasjúkdóma
ár hvert, þurfa 20 - 25 þeirra að gang-
ast undir aðgerð. 18-20 þeirra að-
gerða verða framkvæmdar hér á landi.
Árlega greinast þó 5 - 7 börn með það
flókinn hjartasjúkdóm, að þau þarfn-
ast aðgerðar erlendis og oft berst þessi
hópur barna við sjúkdóm sinn allt sitt
æviskeið. Það að aðgerðirnar færast
hingað til lands í þeim mæli sem nú
er, er okkur aðstandendum og ástvin-
um hjartveikra barna mikið gleðiefni.
Því að þegar takast þarf á við óumflýj-
anlegar kringumstæður sem þessar, þá
er ómetanlegt að finna fyrir nálægð
aðstandenda og ástvina og finna
stuðning þeirra í verki sem fjarlægðin
landa á milli gefur ekki eins kost á.
Það gleðiefni eigum við ekki síst að
þaklca samstarfi LHS og Rauða kross
Islands sem afhentu forstjóra Rfkis-
spítala þ. 30. júlí 1996 15 milljón
króna fjárframlag til kaupa á hjarta-
ómsjá og handlækningatækjum fyrir
hjartveik börn. Þetta ýtti enn frekar á
stjórnvöld í að færa hjartaaðgerðir á
börnum hingað til lands og við
afhendinguna skrifaði heilbrigðisráð-
herra undir samning ásamt forstjóra
Ríkisspítala þess efnis að hjartaskurð-
aðgerðir á börnum hæfust að hausti
sama ár. Eflum traust samstarf enn
frekar og látum okkur varða hvors
annars hlutskipti. Þá stöndum við
sterkari í baráttunni fyrirbættu líkam-
legu og í senn andlegu heilbrigði.
Með von um ánægjulegt samstarf.
Elín Viðarsdóttir, formaður.
Við þetta er því að bæta að stjórn
Neistans skipa: Elín Viðarsdóttir,
form., Margrét Ragnars varaform.,
Ólöf Sigurjónsdóttir, gjaldkeri,
Halifríður Kristinsdóttir, vara-
gjaldkeri, Ragna Sveinbjörnsdóttir,
ritari og þœr Margrét Guðjónsdóttir
og Sandra Franks meðstjórnendur.
Formaður Styrktarsjóðs hjartveikra
barna er Guðrún Pétursdóttir og
varaformaður er Össur Skarphéð-
insson.
Elín Þorbjarnardóttir:
Göngum vel um
gæði jarðar
Göngum vel um gæöi jarðar
sem gefin eru oss af náð.
Athöfn sérhver aðra varðar
erum við hvert öðru háð.
Vatnið hreint úr viðjum fljóta
vantar sárt um allan heim.
Með þökk og gleði þess skal njóta,
því skal tekið höndum tveim.
Víðáttan og vorið bjarta
verða metin ei til fjár.
Fjöllin, sem að fönnum skarta
fegra landið daga og ár.
Loftið hreina og Ijósið tæra
leika um byggðir, fjöll og sjó.
Hreysti og gleði fólki færa
fegra sýn um grund og mó.
Ökum ekki utan vegar
óbyggðanna gróðri í.
Heilar spildur hafa þegar
horfið ryksins mekki í.
Ylinn senda eldsins glóðir
okkur heim í kuldatíð.
Jörðin okkar mikla móðir
miðlar gjöfum ár og síð.
Hafið og þess holli fengur
hafa blessun af sér leitt,
en hversu mikið, hversu lengur
hömlulaust skal úr því veitt.
Hvernig nýtast hafsins gæði
í hugum ýmsra er nokkurt mál.
Legg ég þetta litla kvæði
sem lóð á neysluvogarskál.
Elín Þorbjarnardóttir.
E.s. Þessi áminning Elínar er vissulega allrar athygli verð og henni
færðar hlýjar þakkir fyrir.
FRÉTTABRÉF ÖRYRKJABANDALAGSINS
27