Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.06.1997, Síða 38
FORVITNAST
UM FOLDABÆ
að var á kyrru aprflkvöldi sem
undirritaður naut þess að
mega koma í Foldabæ og fá
þar að spjalla á léttum nótum við
heimafólk og gesti þeirra. Þetta var
góð og gjöful
stund, en kveikti
umleið lönguntil
að mega í stuttu
máli kynna þenn-
an stað og starf-
semina þar, sem
glöggu gestsauga
fékk ekki dulizt
Guðrún K. aQ til fyrirmyndar
Þórsdóttir. væri. í aprfllok
^— var því haldið í
Foldabæ á nýjan leik og þá til fundar
við Guðrúnu K. Þórsdóttur, forstöðu-
mann Foldabæjar og forvitnast frekar
um þessa starfsemi. Fara minnis-
punktar frá því samtali hér á eftir.
Foldabær er að Logafold 56 í
Reykjavík, í Grafarvogshverfi
vel að merkja, fallegt og stflhreint hús
á tveim hæðum sem Reykjavrkurdeild
Rauða kross íslands á. Foldabær er
svokallað stoðbýli, en fyrirkomulagið
er það að Reykjavíkurborg veitir
framlag til starfseminnar sem jafn-
gildir 7 stöðugild-
um í heimaþjón-
ustu. Reykjavíkur-
deild RKÍ heldur
utan um starfsem-
ina. Hver íbúi
leggur svo á
mánuði fram 55
þús kr. Stoðbýlið
var opnað 24. júní
1994 og forstöðu-
maður hefur frá
upphafi verið
Guðrún K. Þórs-
dóttir. Aðspurð um
menntun sína seg-
ist Guðrún vera
sjúkraliði með
B.A.próf í sálar-
fræði, grunnnám í
viðskiptafræði og
stundarnú djákna-
nám. Áður en opnað var fékk starfs-
fólk vikufræðslu, en svo fluttu þarna
inn á 5 vikum, 7 konur og þrjár þeirra
dvelja enn í Foldabæ. Þó 7 konur búi
þarna í dag þá er stoðbýlið ekki
kynbundið, það er bæði fyrir karla og
konur. Allar þessar konur stríða við
minnissjúkdóma, aðallega þó Alz-
heimersjúkdóminn, allar höfðu þær
áður búið einar, en ekki með nokkru
móti verið unnt lengur, þrátt fyrir
dagvistun, alla mögulega heimaþjón-
ustu og aðstoð barna þeirra sem bezta.
Hér hefur fólk svo alla þjónustu, í
Foldabæ er vakandi vakt allan sólar-
hringinn, og sýnilegt gestsauga að
gætt er vel að öllu.
Aðaláherzla er á að reka þetta sem
heimili. Öll aðföng eru sótt, það
er eldað, þvegið og þrifið eins og á
venjulegu heimili. Guðrún segir að
þarna sé engin eiginleg verkaskipting,
allir gangi í öll störf og það sama gildi
um sig. Tvær eru á vakt bæði kvölds
og morguns og þannig skipt að önnur
sér um eldhúsið, hin félagslega þátt-
inn, en báðar sjá um böðun og þrif.
Þetta fyrirkomulag hefur gengið mjög
vel og skapað m.a. góða fjölbreytni í
störfum fyrir alla. Guðrún sagði að
mikill dagamunur væri hjá konunum,
en svo væri nú raunar um flesta þó í
minna mæli væri. Áhersla er lögð á
hinn félagslega þátt, virkja konurnar
í öllu sem aðhafzt er, hafa þær með í
öllum heimilisstörfum: þvo upp,
hengja upp þvott, baka pönnukökur,
taka til í herbergjum svo dæmi séu
tekin. Halda sem sagt þessari daglegu
færni sem allra mest og bezt við. Þetta
tekst mjög vel og tilfinningin fyrir því
að þetta sé einmitt þeirra eigin heimili
verður enn sterkari fyrir bragðið.
arna er engin hörð né ofskipulögð
dagskrá, en reynt að halda öllu í
reglu eins og á stóru, góðu heimili.
Guðrún segir að mikið sé lesið í
Foldabæ. mikið spjallað og lesið m.a.
það helzta úr blöðunum. Fréttatímum
ekki sleppt í útvarpi eða sjónvarpi,
horft á góða þætti, einkum íslenzka í
sjónvarpinu. Það er eins mikið verið
úti í göngut'erðum, og unnt er, enda
umhverfið yndislegt og gefur marga
möguleika. Einnig er iðkuð létt leik-
fimi inni. Staðreyndin er sú að hreyfi-
færni er mjög góð. Farið er í Hagkaup
og Bónus til að verzla sem og víðar
og taka heimilismenn virkan þátt í
innkaupum. Guðrún segir að starfs-
fólk noti sína eig-
in bíla til beinnar
afþreyingar fyrir
konurnar. Jafn-
framt er farið í
ferðir, þær lengstu
voru austur á
Þingvöll og að
Nesjavöllum og
svo önnur ferð í
Hraunborgir í
Grímsnesi svo
dæmi séu tekin.
g svo kemur
að öllum
sjálfboðaliðunum,
sem ómetanlegir
eru. Hingað kem-
ur hálfsmánaðar-
lega kona sem
gengur undir
o
Á góðri gleðistund með Gerðubergsfólki.
38