Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.12.1999, Síða 2
fréttabréf
ÖRYRKJABANDALAGS
ÍSLANDS
4. tbl. 12. árgangur
Ritstjóri og ábyrgðarmaður:
HELGI SELJAN
Umbrot og útlit:
FJÓLA GUÐMUNDSDÓTTIR
Prentun:
STEINDÓRSPRENT/GUTENBERG
Teikning á forsíðu:
Hildur Seljan Indriðadóttir
Aðrar myndir:
Jón Tryggvason,
Björn G. Eiríksson.
Gunnar Vigfússon
Frá ritstjóra
Þegar tólfti árgangur þessa Fréttabréfs okkar er að baki reikar
hugur ritstjóra til upphafsáranna. Öll fjögur tölublöð fyrsta
árgangs voru rétt ríflega sem eitt tölublað þessa árgangs. Fréttabréfið
fer nú til nær helmingi fleiri félaga en fyrsta árið. Efnisval er orðið
til muna fjölbrcyttara, útlitið hefur verið bætt, enn meiri alúð að öllu
lögð. Allur vöxtur er vænn ef varðstöðu er haldið,
ef litið er um leið til hraðfara þróunar og breytts
umhverfis á ýmsa lund. Síðari tíma sögu bíður
dómsuppkvaðning um gildi og gæði, en von rit-
stjóra sú að blaðsíðurnar allar beri þess vott að
menn hafi í ýmsar áttir litið, að um margvísleg
knýjandi efni hafi verið fjallað, að góður vilji til
mætra verka hafi verið að baki, að vökul barátta
hafi verið eitt megineinkenni. Að ritstjóra læðist
oft sú áleitna spurn hversu miklu þetta blað skili í
baráttumálum, hve alvarlega það er tekið af þeim sem talað er til og
við hverju sinni og verður gjarnan fátt um svör. Jafnvíst er hitt að til
þess er ótvíræður vilji að svo megi verða.
Dag frá degi lengjast dimmir skammdegisskuggar, en mitt í myrku
veldi vetrar ljómar lífsins sól, heilög hátíð gengur í garð og gefur
okkur öllum vermandi vongleði og vissu þess um leið að aftur birti
og ylhlýtt vorið bægi vetrinum á braut.
Megi jólin færa ykkur frið í hjarta og fögnuð í sál. Megi nýtt ár
verða gjöfult og gæfuríkt og færa okkur ávinninga sem allra besta á
baráttuvegi.
H.S.
Helgi
Seljan
EFNISYFIRLIT
Frá ritstjóra...........................2
Plægjum akurinn.........................3
Guð elskar þá...........................4
Hlerað.....8 9 11 21 24 27 32 33 35 37 41 44
Reykjalundur............................9
Aðgengi fyrir alla.....................10
Atvinnumálaráðstefna ÖBÍ...............12
Beðið eftir vorinu.....................14
Handbókin og ferlimálin................18
Velkomin í Dvöl........................19
Bergmál - Vina- og líknarfélag.........20
Blindrafélagið 60 ára..................21
Borið niður í Borgarbyggð..............22
Dagur heyrnarlausra....................24
Geðhjálp 20 ára........................25
Að ná sér á strik......................26
Frá Vin................................27
íhugunarefni fyrir hreyfihamlaða.......28
Glímir barnið við......................29
Alþjóðlegur Alzheimersdagur............30
Klúbburinn Geysir......................31
Úrskurðarnefnd almannatrygginga........31
Með austangjólunni.....................32
Innlitið..................................33
Málþing um réttindagæslu..................34
Draugurinn í Hvítárnesi...................36
Félag heilablóðfallsskaðaðra 5 ára........37
Ferðalög - mikilvægt verkfæri.............38
Tvö ljóð..................................39
Ný lausn á gömlum vanda...................39
Námskeið á Norður-írlandi.................40
Kynning...................................42
Veggspjald................................42
Sókn er besta vörnin......................43
Vísa og beiðni............................43
Skóflustunga tekin á Reykjalundi..........44
Stefnumörkun í endurhæfingu...............45
Skýrsla Hússjóðs ÖBÍ......................46
Efni handbókarinnar.......................46
Að falla milli þriggja stóla..............47
Að vinna með fólk.........................47
Fyrsti fundur Norræns ráðs................48
En svo koma jól...........................48
Aðalfundur ÖBÍ............................49
Órímað og rímað...........................52
Af stjórnarvettvangi......................53
I brennidepli.............................54
2