Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.12.1999, Qupperneq 2

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.12.1999, Qupperneq 2
fréttabréf ÖRYRKJABANDALAGS ÍSLANDS 4. tbl. 12. árgangur Ritstjóri og ábyrgðarmaður: HELGI SELJAN Umbrot og útlit: FJÓLA GUÐMUNDSDÓTTIR Prentun: STEINDÓRSPRENT/GUTENBERG Teikning á forsíðu: Hildur Seljan Indriðadóttir Aðrar myndir: Jón Tryggvason, Björn G. Eiríksson. Gunnar Vigfússon Frá ritstjóra Þegar tólfti árgangur þessa Fréttabréfs okkar er að baki reikar hugur ritstjóra til upphafsáranna. Öll fjögur tölublöð fyrsta árgangs voru rétt ríflega sem eitt tölublað þessa árgangs. Fréttabréfið fer nú til nær helmingi fleiri félaga en fyrsta árið. Efnisval er orðið til muna fjölbrcyttara, útlitið hefur verið bætt, enn meiri alúð að öllu lögð. Allur vöxtur er vænn ef varðstöðu er haldið, ef litið er um leið til hraðfara þróunar og breytts umhverfis á ýmsa lund. Síðari tíma sögu bíður dómsuppkvaðning um gildi og gæði, en von rit- stjóra sú að blaðsíðurnar allar beri þess vott að menn hafi í ýmsar áttir litið, að um margvísleg knýjandi efni hafi verið fjallað, að góður vilji til mætra verka hafi verið að baki, að vökul barátta hafi verið eitt megineinkenni. Að ritstjóra læðist oft sú áleitna spurn hversu miklu þetta blað skili í baráttumálum, hve alvarlega það er tekið af þeim sem talað er til og við hverju sinni og verður gjarnan fátt um svör. Jafnvíst er hitt að til þess er ótvíræður vilji að svo megi verða. Dag frá degi lengjast dimmir skammdegisskuggar, en mitt í myrku veldi vetrar ljómar lífsins sól, heilög hátíð gengur í garð og gefur okkur öllum vermandi vongleði og vissu þess um leið að aftur birti og ylhlýtt vorið bægi vetrinum á braut. Megi jólin færa ykkur frið í hjarta og fögnuð í sál. Megi nýtt ár verða gjöfult og gæfuríkt og færa okkur ávinninga sem allra besta á baráttuvegi. H.S. Helgi Seljan EFNISYFIRLIT Frá ritstjóra...........................2 Plægjum akurinn.........................3 Guð elskar þá...........................4 Hlerað.....8 9 11 21 24 27 32 33 35 37 41 44 Reykjalundur............................9 Aðgengi fyrir alla.....................10 Atvinnumálaráðstefna ÖBÍ...............12 Beðið eftir vorinu.....................14 Handbókin og ferlimálin................18 Velkomin í Dvöl........................19 Bergmál - Vina- og líknarfélag.........20 Blindrafélagið 60 ára..................21 Borið niður í Borgarbyggð..............22 Dagur heyrnarlausra....................24 Geðhjálp 20 ára........................25 Að ná sér á strik......................26 Frá Vin................................27 íhugunarefni fyrir hreyfihamlaða.......28 Glímir barnið við......................29 Alþjóðlegur Alzheimersdagur............30 Klúbburinn Geysir......................31 Úrskurðarnefnd almannatrygginga........31 Með austangjólunni.....................32 Innlitið..................................33 Málþing um réttindagæslu..................34 Draugurinn í Hvítárnesi...................36 Félag heilablóðfallsskaðaðra 5 ára........37 Ferðalög - mikilvægt verkfæri.............38 Tvö ljóð..................................39 Ný lausn á gömlum vanda...................39 Námskeið á Norður-írlandi.................40 Kynning...................................42 Veggspjald................................42 Sókn er besta vörnin......................43 Vísa og beiðni............................43 Skóflustunga tekin á Reykjalundi..........44 Stefnumörkun í endurhæfingu...............45 Skýrsla Hússjóðs ÖBÍ......................46 Efni handbókarinnar.......................46 Að falla milli þriggja stóla..............47 Að vinna með fólk.........................47 Fyrsti fundur Norræns ráðs................48 En svo koma jól...........................48 Aðalfundur ÖBÍ............................49 Órímað og rímað...........................52 Af stjórnarvettvangi......................53 I brennidepli.............................54 2

x

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands
https://timarit.is/publication/1440

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.