Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.12.1999, Qupperneq 5

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.12.1999, Qupperneq 5
Edda fyrir miðju með klúbbinn sinn í Laugardalnum þar sem þau trimma á mánudögum og fimmtudögum. „Við erum oftast um 20 til 28 saman,” segir Edda. vinkonur.” Gróa Skúladóttir, móðir Eddu dó 63ja ára. þá svo ungleg að allir héldu þær mægður vera systur. Hvernig gekk skólanámid meö allri þessari vinnu? „Mig þyrsti í nám og gekk vel í skóla, lauk barnaskólanámi hjá Pálma Péturssyni sem tók mig í aukatíma þegar hann sá hvað ég var langt á eftir. Tvo strætisvagna varð ég að taka snemma á morgnana til að komast í Gaggó Vest. Oft var það erfitt fyrir fatlaða stelpu. Ofsalega langaði mig í menntaskóla, en það var ekki hægt, einhver varð að hjálpa mömmu með sex böm. Mikið grét ég yfir því. Þá sagði mamma: „Þú getur grenj- að og grenjað, en það kemur enginn að bjarga þér nema þú sjálf. Lífið er harkan sex!” Sjálfsagt finnst einhverjum að hún hafi verið fullharkaleg við mig, en ég þakka henni alltaf fyrir að kenna mér þá lexíu að bjarga mér sjálf. Fyrsta vinnuráðningin mín var dálítið fyndin!” Edda hlær. „Konu vantaði barnfóstru og kom til mömmu. „Eg á eina ágæta sem er bæði stjórnsöm og góð,” sagði mamma. Ég gleymi seint svipnum á konunni þegar hún sá fötluðu stelpuna. Mamma talaði við hana í einrúmi og ég var ráðin. „Þú segir bara krökkunum að þau eigi að passa þig, svo að þau hlaupi ekki frá þér,” sagði mamma. Krakkarnir voru víst nokkuð baldnir, en ég notaði ráð mömmu. Bakaði líka svo góða klatta að þau fengu grautarást á mér. Nestið tók ég með í íjöruferðir og synti með krökkunum í sjónum sem var vel volgur í þá daga. Yngstu stelpuna batt ég við Shell- bryggjuna á meðan ég synti sjálf. Sjóböð væru svo góð fyrir fatlaða, hafði ég heyrt. Þetta endaði með því að þau neituðu að fara að sofa á kvöldin nema Edda kæmi og segði þeim sögu.” Eftir gagnfræðaskólapróf fór Edda að leita sér að vinnu: „Ert þú að leita að vinnu? - svona fotluð manneskja!” „Já, ég er að bjóða fram minn vinnukraft,” sagði ég. „Hvernig dettur þér þetta í hug?”. „Ég er ágætur vinnukraftur,” sagði ég, en það dugði ekki til, fólk var yfir sig undrandi og jafnvel hneykslað. Að lokum var búið að brjóta mig mikið niður, en samt stóð ég upp, því að vinnu skyldi ég fá! Þá leitaði ég til Andrésar Andréssonar klæðskera á Laugavegi og sagði: „Ég er ekki að biðja um kaup, heldur bara að læra og verða nýtur þjóðfélagsþegn.” Þar byrjaði ég að vinna 16 ára, kauplaus fyrstu mánuðina, en hann bætti það upp síðar. Mánaðarlaunin voru 1.200 kr. Ég gekk í nudd til Björgvins Finnssonar á Laufásvegi og borgaði allt sjálf, því að ég vann lyrir fullu kaupi. Og þótt ég legði fram allar nótur, fékk ég jafnháa skatta. Engin lög komin um skattaaf- slátt! Hann kom ekki til fyrr en eftir stofnun Sjálfsbjargar. Eitt sumarið fékk ég frí hjá Andrési og réð mig sem verkstjóra á Sníða- verkstæði Magna í Hveragerði. Mig langaði svo til að prófa leirinn í Hveragerði. Þetta var árið 1954, þeg- ar Heilsustofnun NLFÍ var í mótun og í miðjum Hveragerðisbæ stóð lítið hús á vegum hótelsins með leirköss- um og sturtuaðstöðu. Ég borgaði 50 kr. til Eiríks blinda sem hitaði leirinn. Þá var ég 18 ára og vann frá 7 á morgnana til 8 á kvöldin. Stelpurnar sem unnu með mér hjá Andrési, ætluðu ekki að komast yfir að ég skyldi þora að taka þetta að mér, en þetta sýndi mér - ef viljinn er fyrir hendi getur maður allt. Ég þakka mömmu alltaf fyrir að innprenta mér sjálfsbjargarhvötina. Þú varst Uka ein af stofnendum Sjálfsbjargar „Já, við vorum að berjast fyrir því að komast út í lífið. Þá áttu lamaðir ekki í annað hús að venda en elli- FRÉTTABRÉF ÖRYRKJABANDALAGSINS 5

x

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands
https://timarit.is/publication/1440

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.