Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.12.1999, Síða 11
Ljósm. Gunnar Vigfússon
Ráðstefnan var fjölsótt vel.
°g kvað þýðingarmikil atriði feit-
letruð til frekari áherslu. Handbók-
]nni annars gjörð skil annars staðar í
blaðinu, en Jón Ólafur lauk máli sínu
á að segja að tilmæli bókarinnar væru
almenn, en einnig væri bent á sér-
tækar lausnir.
Jóhanna Hansen staðgengill for-
stjóra Framkvæmdasýslu ríkisins
flutti því næst framsögu um ferlimál
hjá ríkisstofnunum og sýndi sláandi
myndir ágætra aðstæðna en ekki
síður óhæfra. Fullyrti að aðgengis-
mál hjá opinberum aðilum væru
hvergi nærri nógu góð. Minnti á ný-
hyggingar svo og breytingar eldri
hygginga og sagði að einmitt hús-
næði Framkvæmdasýslu ríkisins væri
fráleitt til fyrirmyndar, en stefnan
væri að allir ættu gott aðgengi að rík-
isstofnunum. Nefndi dæmi um leyst
mál s.s. Þjóðminjasafnið og Þjóð-
menningarhús, en Stjómarráðshúsið
lýsandi fyrir óleyst mál, en þar kæmi
húsafriðun inn í myndina.
Steingrímur J. Sigfússon formaður
Norræna ráðsins um málefni fatlaðra
sagði frá norrænni samvinnu m.a. á
aðgengissviði. í fyrra veitt aðgengis-
verðlaun vegna breytinga eldri byg-
ginga (Iðnó og Langabúð hér), nú
væri efnt til samkeppni um besta
aðgengið að æðri menntun á Norð-
urlöndum. Steingrímur hét fullu
liðsinni Norræna ráðsins um málefni
fatlaðra við aðgengismál, en að öðru
leyti vísast til ágætrar viðhorfsgreinar
í síðasta tölublaði fréttabréfsins.
Þá kynntu fulltrúar Reykjavík-
urborgar: Ingibjörg R. Guðlaugs-
dóttir, Ólafur Stefánsson og Sig-
hvatur Arnarsson úrbætur á aðgengi í
Reykjavík en mjög gott átak verið þar
í gangi frá 1995 og framhald þar á.
Verulegu fé veitt í aðgengismál
sem víða sér stað. Gangstéttir,
gönguleiðir og fleiri viðfangsefni.
Ferlinefnd Reykjavíkur stofnuð í árs-
byrjun 1995 með fulltrúum borgar,
Sjálfsbjargar og síðar Blindra-
félagsins. Ingibjörg ræddi einnig nyt-
söm tengsl við borgir á
Norðurlöndum um innri sem ytri
skipulags- og byggingamál.
Ólafur kvað gjörbreytingu hafa á
gönguleiðum orðið svo og á gang-
stéttum. Breytingar til bóta gjörðar á
um 2000 stöðum.
Sighvatur nefndi helstu atriði í for-
gangi við endurbætur: Bílastæði, frá-
gangur frá bílastæðum (kantsteinar,
tröppur, þrep, þröskuldar), merkingar
fyrir sjónskerta, salerni fyrir hreyfi-
hamlaða, lyftur.
Ljóst er að borgaryfirvöld hafa
myndarlega staðið að úrbótum á
aðgengi á liðnum árum og ætla
ótrauð áfram að halda. Lilja Ragn-
arsdóttir sagði frá ferlimálum á
Akureyri en hún er formaður ferli-
nefndar fatlaðra þar. Ferlinefnd varð
til 1986 á Akureyri eftir tilmæli
Alexanders Stefánssonar þáv.
félagsmálaráðherra til sveitarstjórna í
landinu um skipan ferlinefnda. Mikil
og góð úttekt fór svo fram og mikið
unnið að bættu aðgengi í kjölfarið.
Hún kvað handbókina verða bærilega
til halds og trausts. Hún nefndi all-
gott ástand gangbrauta sem gott
dæmi svo og ýmislegt gott i aðgengi
bygginga á vegum bæjarfélagsins, en
betur mætti ef duga skyldi.
Helga Skúladóttir formaður ferli-
nefndar í Kópavogi sagði frá
vinnulagi þeirrar nefndar en hún
starfað undangengna 2 áratugi, 3 frá
Hlerað í hornum
Kona ein eystra hreykti sér við aðra,
nýkomin úr Afríkuför: “Égsáljónog
ég sá tígrisdýr og ég sá líka fila, já og
gíraffa”. Hinni þótti nóg um hreykni
vinkonunnar og til að vera ekki minni
manneskja þá sagði hún. “Ég sá nú
líka Eskfirðing og hann heitir Sara”.
bæ, 2 frá samtökum fatlaðra. Mark-
visst verið unnið að úrbótum gamalla
synda svo og reynt að koma í veg
fyrir mistök. Fyrir vinnureglum
hefur okkar hugdjarfi Hrafn Sæ-
mundsson gjört góða grein áður hér.
Hún nefndi sprenginguna í Kópa-
vogi í gífurlegum byggingafram-
kvæmdum þar nú svo örðugt væri
með að fylgjast.
Eftir hádegi voru 3 vinnuhópar að
störfum með þessi umræðuefni: 1.
Lög og reglugerðir um ferlimál -
upplýsingar og ráðgjöf, framkvæmd
og eftirlit. 2. Handbókin Aðgengi
fyrir alla. 3. Framtíðarsýn - hverju
getur ný tækni breytt um aðgengi? -
hlutverk félagasamtaka varðandi
aðgengi?
Fulltrúar héðan af bæ voru þátttak-
endur i þessum vinnuhópum sem
skiluðu svo áliti sem ekki gefst rými
til að íjalla um hér. Mál manna að
vel hefði til tekist um ráðstefnu mik-
ilvægra mála sem menn mættu aldrei
rnissa sjónar á.
H.S.
Kunn er sagan af hjónunum eystra
sem alltaf ruku til, ef eitthvað stóð til
og máluðu hús sitt. Eitt vorið kom
forsetinn og þá var að sjálfsögðu
málað. Nágrannanum blöskraði hins
vegar, þegar aftur var farið að mála
um haustið og spurði frúna hvort eitt-
hvað stæði nú til. “Það held ég nú, “
sagði frúin, “þeir eru að segja að
Vetur konungur sé væntanlegur”.
FRÉTTABRÉF ÖRYRK)ABANDALAGSINS
11