Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.12.1999, Side 16
Drengurinn með lambið litla - vorsins væna tákn.
hann gæti séð í bláan himininn. Fátt
fegurra en blár himinn nema ef vera
skyldi barnsaugu, hvoru tveggja
áþekkt, bjart og heiðríkt. Þá yrði
rúmið fært á sinn gamla stað undir
stafngluggann. Þá sæi hann, með því
að rísa upp við dogg, niður á flötina
og fram að hliðinu. Fyrst í stað yrði
flötin fól og litlaus. En eftir nokkra
daga tæki að örla á litlum, grænum
nálum, sem teygðu sig óðfluga upp úr
moldinni. Já, blessaður nýgræð-
ingurinn myndi fljótlega klæða gamla
frónið. Þá færu þeir að sleppa í
sveitinni.
Öldungurinn sat uppi í rúminu og
reri fram í gráðið. Glærar og sinaber-
ar hendurnar krepptust um pontuna.
Orðið var æði skuggsýnt úti, her-
bergið nærri myrkt.
Tengdasonurinn gekk inn, kveikti
loftljósið, kastaði kveðju á gamla
manninn og spurði, hvort hann ætti
ekki að kveikja á olíuvélinni. Gamli
maðurinn sagði ekkert en hélt áfram
að róa fram í gráðið. Flætti svo
skyndilega, hallaði undir flatt, setti
pontuna á nasirnar og saug innihald
hennar að sér.
- Eg veit ekki. Er kalt hér inni?
spurði hann svo og dæsti.
- Það er ffemur svalt, finnst mér,
svaraði tengdasonurinn.
- Jæja, er það. Ég finn ekki fyrir
neinum kulda.
- Jú, það er bara svalt, andkalt,
finnst mér, endurtók tengdasonurinn.
Hann hafði komið með steinolíu á
flösku og var tekinn að hella henni á
glæran glergeymi vélarinnar.
- Það er skömm hvað ég eyði mik-
illi olíu frá ykkur, sagði gamli
maðurinn.
- Ha, olíu? Nei, nei, þú eyðir ekki
mikilli oliu. Öðru nær.
- Jú, víst eyði ég einhverju, víst geri
ég það. Þessi ellistyrkslús hrekkur
víst skammt fyrir allri eyðslunni
minni, tautaði gamlinginn.
Tengdasonurinn svaraði engu,
heyrði kannski ekki hvað sá gamli var
að tuða, enda farið að kalda og ein-
staka roka skall á glugganum svo
köflótta teppið bærðist til. Eftir að
lokið var að tæma úr flöskunni á
geyminn vottaði fyrir olíuþef í
kompunni. Tengdasonurinn kveikti á
vélinni og reis síðan á fætur.
- Þetta er hálfgerður garmur, sagði
hann.
- Ha, varstu að segja eitthvað?
Tengdasonurinn hækkaði róminn.
- Ég sagði að vélin væri hálfgerður
garmur, endurtók hann.
- Já, sagðirðu það. Hún dugir mér
samt.
- Ég ætla að reyna að útvega nýja,
alla vega skárri.
Vitleysa. Þessi dugir mér.
Tengdasonurinn virtist ekki taka
andmæli gamla mannsins alvar-
lega, því hann svaraði ekki, dinglaði
tómri olíuflöskunni og horfði í
kringum sig í kompunni.
- Er benvítis trekkurinn ekki óþægi-
legur? spurði hann, gekk inn að
glugganum og reyndi að strekkja
köflótta teppið betur fyrir hann.
- Nei, hvað ætli hann sé til miska.
Annað eins hefúr maður nú reynt.
Ekki var alltaf logn á Heiðinni forð-
um, aldeilis ekki. Rödd öldungsins
var lág og íjarlæg - eins og Heiðin.
- Það þyrfti að kítta hann upp og
tvöfalda glerið.
- Já, líklega væri það betra, gegndi
sá gamli. Hann hafði að vísu heyrt
þetta áður.
- Skömm að vera ekki búinn að
þessu, en við bjuggumst við ... já,
bara bölvuð skömm.
- O, engan asa. Það ferst hvorki
himinn né jörð þó það dragist eitt-
hvað. Þú hefur líka svo margt annað á
þinni könnu.
- Jú, barasta bannsett ómynd en ég
geng í þetta einhvern næsta daginn.
- Já, hann gat brugðið til beggja
vona á Heiðinni...
- Þú værir nú vís til að minna mig á
það.
- Ha, jú, mikil ósköp, víst gæti ég
það. En ég held barasta að þetta sé
mesti óþarfi.
- Óþarfi! Nei, nei, öðru nær, langt í
ffá. Alger slóðaskapur að hafa ekki
komið því í verk í haust, andæfði
tengdasonurinn. - Skárra væri það.
Það yrði miklu betra ... ég meina, þá
myndi hætta að trekka.
Líklega gerði það það, líklega það,
tautaði gamlinginn og seildist á ný í
pontuna undir koddann.
Tengdasonurinn gekk fram að
dyrunum, staldraði þar við, hélt
áfram að dingla olíuflöskunni.
- Trassaskapur, eintómur trassa-
skapur. Maður þykist alltaf hafa svo
mikið að gera, sagði hann og afsök-
unartónn í raddblænum.
- Segðu þetta ekki, þú sem ert í
flestum, ef ekki öllum nefndum og
félögum. Ó, já. Það tekur sinn toll.
Maður var einu sinn fjallkóngur.
Maður þekkir þetta duggunarlítið. O,
já.
- Það er alveg sama, bannsettur
trassaskapur samt og annað ekki,
tautaði tengdasonurinn. Svo tók hann
sig á. - Get ég annars nokkuð gert
fyrir þig núna? Vildirðu kannski
meira kaffi?
- Nei, nei, blessaður minn. Þetta er
nú orðið eitthvað nóg. Að fá svo gott
16