Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.12.1999, Page 24

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.12.1999, Page 24
Af vettvangi heyrnarlausra. Dagur heyrnar- lausra Hinn 25. sept. sl. var hinn alþjóðlegi dagur heyrnar- lausra hátíðlegur haldinn með ágætri athöfn í Norræna húsinu. Dagurinn var að þessu sinni helgaður heyrnarlausum börnum sérstaklega. Formaður Félags heyrnarlausra, Berglind Stefánsdóttir, setti hátíðina með nokkrum vel völdum orðum. 1986 var þessi alþjóðlegi dagur fyrst haldinn og hefur verið æ síðan. Baráttan stæði um að vera sem sýni- legust og fá viðurkenningu táknmáls lögfesta sem fyrst. Heyrnarlausir stæðu vel saman sem hópur og þeirra möguleikar fælust ekki hvað síst í aukinni og bættri tækniþróun, sem opnar þeim nýjar leiðir. Tölvurnar 110 sem afhentar voru með sérstök- um leigusamningi heilbrigðis- og tryggingaráðuneytis við Nýherja stórt skref fram á við. Ingibjörg Pálma- dóttir heilbrigðis- og tryggingaráð- herra færði fram hamingjuóskir og kvað ýmislegt hafa áunnist og af- hending tölvanna í dag giftudrjúgur áfangi. Leigusamningurinn sem ráðuneytið í gegnum Heyrnar- og talmeinastöð rikisins gerði við Nýherja um tölvurnar 110 væri afar mikilvægur áfangi fyrir heyrnarlausa, auðveldaði öll samskipti m.a. bein samskipti við Neyðarlínuna. Ingi- björg kvað heyrnarlausa mega vera mjög stolta af sínu félagi. þegar Jesús tók börnin sér í fang og blessaði þau, öll börn væru sérstakir vinir Jesú og vænst þætti honum um þegar þau bæðu hann. í Jesúm er ekki hægt að hringja, en alltaf hægt að biðja hann því hann er aldrei á tali, Táknmálskórinn söng þrjá sálma á sinn hrífandi hugnæma hátt. Svo var fluttur blandaður leikþáttur með miklum og góðum tilþrifum af heyrn- arlausum nemendum í Menntaskól- anum við Hamrahlíð og var vel fagnað. Leikþátturinn var ekki túlk- aður og fróðlegt að finna til vanmátt- ar síns varðandi túlkun hinna líflegu atriða, aðeins rennt í grun um hvað væri að fara fram af okkur hinum heyrandi, minnti okkur um leið vel á vanda hinna heyrnarlausu í heimi heyrandi. Á eftir gæddu menn sér á kaffi og kræsingum en kynnir á samkomunni var Unnur Dóra Norðfjörð. Sögustund var svo fyrir börnin í umsjá Eyrúnar Ólafsdóttur. í framhaldinu er rétt að geta þess að 4.október var opnuð á Mokka mynd- listarsýning tveggja einhverfra heyrnarlausra sem nú dvelja á sam- býli í eigu Hússjóðs að Lækjarsmára. Þetta voru þeir Gísli Steindór Þórðarson sem þar sýndi 15 vatnslita- myndir og Sigurður Þór Elíasson sem sýndi 18 myndir í pastellitum. Báðir höfðu verið sl. vor á námskeiði hjá Öldu Sveinsdóttur myndlistarmanni og áhugakonu mikilli í þessum efn- um. Sýningin stóð til 5. nóv. og vakti ærna athygli. Hamingjuóskir fylgja þeim félög- um frá okkur hér á bæ og Félagi heyrnarlausra um leið alls hins besta árnað. H.S. Leigusamningurinn var svo form- lega undirritaður af ráðherra, framkvæmdastjóra Nýherja og stjórnarformanni Heyrnar- og tal- meinastöðvar. Og síðan voru tvö börn sem fóru í að nýta þessi nýju tæki ásamt ráð- herranum og bar ekki á öðru en þau væru heldur betur fljót að tileinka sér þá tæknimöguleika sem nýju tölv- urnar gefa. Séra Miyako Þórðarson, prestur heyrnarlausra var því næst með barnamessu og hafði brúðuna Guðfinnu sér til halds og trausts. Lagði mjög fallega út af guðspjallinu Hlerað í hornum Þeir Jón og Sigurður voru miklir vinir og fylgdust tryggilega að á golf- vellinum. Nú deyr Sigurður og Jón fer á fund miðils til að fá fréttir af vininum. Hann fær þetta flna sam- band og spyr Jón því Sigurð hvað hann segi í fréttum. “Ja, ég hefi nú bæði góðar og slæmar fréttir fyrir þig”. “Jæja, góðu fréttirnar þá fyrst”. “Já, hér er sá besti golfvöllur sem ég hefi nokkum tímann augum litið”. “Nú en slæmu fréttirnar þá?” “Ja, þú ert bókaður á mót hérna næsta þriðjudag.”. +++ Þeir Gunnar og Bjöm voru á golfvell- inum þegar líkfylgdin fór fram hjá. Gunnar lagði kylfuna á jörðina, tók ofan húfuna og laut höfði steinþegj- andi: Bjöm horfði undrandi á en sagði ekki orð fyrr en Gunnar hafði sett upp húfuna og mundað kylfuna á ný. “Var þetta einhver þér nákominn sem verið var að jarðsyngja?”, spurði Bjöm. “Já, hún var það. Hún var búin að vera mér góð eiginkona í meira en 30 ár”. 24

x

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands
https://timarit.is/publication/1440

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.