Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.12.1999, Page 27
Hluti ferðahópsins við Gullfoss.
Frá Vin.
Heimsókn og frétt
hann er og hvernig sem hann er
samansettur. Og hvað það er
nauðsynlegt að sýna öllum virðingu.
Námsráðgjöf sem miðar að því að
undirbúa mann sem best undir vinnu-
viðtöl og áframhaldandi nám og
reynist laða mann til að sýna sjálfum
sér ákveðið umburðarlyndi.
Eg hef sagt það áður að mín
skoðun sé sú að hvergi skili þeir fjár-
munir sem varið er til málefna fatl-
aðra meiri arði en þeir sem fara til
endurhæfingar.
Það er sorgleg staðreynd að mín
fötlun var aðallega bundin við þann
misskilning hjá mér að ég ætti ekkert
gott skilið, því að þó að um sjúkdóma
og slys hafi verið að ræða þá bað ég
ekki um hjálp fyrr en ég var kominn
gjörsamlega í þrot.
Og hefði einhver sagt mér fyrir
þremur árum hver staða mín yrði í
dag þá hefði ég ekki trúað honum.
Mér eru allir vegir færir. í vinn-
unni hefur líf mitt fengið tilgang á ný.
r
Eg er afar þakklátur öllu því fólki
sem á einhvern hátt hefur komið
að endurhæfingu minni og þá
sérstaklega starfsfólki Hringsjár. Þar
er samankominn hópur fólks sem á
alveg einstakan hátt nær að rjúfa þá
einangrun hugans sem hinn fatlaði er
oft kominn í.
Eins ber að þakka stjórnvöldum
fyrir fjárhagslcgan stuðning við allt
endurhæfingarstarf hvar svo sem það
er unnið.
Einar Andrésson.
Erindi flutt á atvinnumála-
ráðstefnu Öryrkjabandalagsins.
Hlerað í hornum
Maður einn sagði svo frá verslunar-
ferð með konu sinni. “Við fórum
fyrst inn í verslun eina og keyptum
okkur svefnpoka og kælibox, enda
ætluðum við í ferðalag. Svo fór
konan og keypti í matinn og kannski
eitthvað fleira, en ég gætti svefn-
pokans og kæliboxsins. Með þetta
fer ég svo inn í skóbúð til að drepa
tímann og búðarmaðurinn kom og
spurði hvað hann gæti gert fyrir mig,
en ég sagði sem satt var að ég væri að
bíða eftir konunni. Þá sagði maður-
inn við hliðina á mér: “Eg er líka að
bíða eftir konunni minni, en ég hef nú
aldrei haft rænu á því að taka með
mér svefnpoka og nesti.”
Til íslands kom hópur Svía, 25
manns í endaðan september sl.
Voru þetta 19 geðfatlaðir einstakl-
ingar og 6 starfsmenn frá Balder sem
er athvarf í líkingu við Vin og er rekið
af félags- og heilbrigðisyfirvöldum í
Norrmalmhverfi Stokkhólmsborgar.
Forsaga heimsóknar þessarar er
jafnlöng og Vin hefur verið starfrækt,
þar sem Balder er fyrirmynd Vinjar
og þáverandi forstöðumaður heim-
sótti staðinn áður en Vin tók til
starfa. Það hafa verið mikil tengsl
gegnum árin, bæði persónuleg og
fagleg og í fyrra heimsóttu starfs-
menn Vinjar m.a. Balder í skoðunar-
ferð til Stokkhólms. Þá vaknaði sú
hugmynd að gestir og starfsmenn
Balder myndu heimsækja okkur að
ári. Fengu þau margs konar styrki til
ferðarinnar og skipulagði Björg
Haraldsdóttir starfsmaður Vinjar
ferðina ásamt gestum Vinjar.
Dvöldu þau hér í 4 daga, dagskráin
var þéttskipuð, matarboð hjá RKÍ og
Geðhjálp. Dagsferð á vegum Vinjar
og ferðafélagsins Víðsýnar til Þing-
valla, Gullfoss og Geysis í blíðskapar
haustveðri þar sem endað var í Bláa
lóninu. Einnig skoðunarferðir á dag-
deild geðdeildar Sjúkrahúss Reykja-
víkur, athvarfið Dvöl í Kópavogi og
iðjuþjálfun geðdeildar ríkisspítala á
Landspítala og við Klepp. Einnig
vannst tími til skemmtana s.s.
hestaferðar og kráarrölts. Svo
skemmtilega vildi til að sama dag og
Svíamir komu hingað heimsóttu 20
geðfatlaðir Danir okkur og var
ákveðið að leiða hópana saman ásamt
gestum Vinjar og var öllum boðið til
samsætis í Vin um kvöldið. Var
umræðan lífleg og Qörug, mest bar á
samanburði á gæðum og þjónustu við
geðfatlaða í þessum þremur löndum.
Einnig mynduðust tengsl sem von-
andi verða til aukinna samskipta.
Víðsýn:
Stofnað hefur verið ferðafélagið
Víðsýn. Tilgangur félagsins er að
stuðla að ferðalögum félagsmanna
sinna með ferðum innanlands sem
utanlands með sem lægstum tilkostn-
aði. Stofnfélagar eru 19, en þegar
hafa um 30 manns skráð sig í félagið.
Víðsýn hefur aðsetur í Vin og áætlað
er að fara til Stokkhólms á næsta ári
til að endurgjalda heimsókn Svía í
haust. Allar nánari upplýsingar fást í
Vin, sími 561-2612.
Guðbjörg Sveinsdóttir
Björg Haraldsdóttir.
FRÉTTABRÉF ÖRYRKJABANDALAGSINS
27