Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.12.1999, Side 28
VIÐHORF
Vigfús Gunnarsson:
Ihugunarefni fyrir hreyfi-
hamlaða og stj órnir húsfélaga
Lög um Qöleignahús, nr.
26/1994. Bílastæði, 33. grein.
“Bílastæði á lóð íjöleignar-
húss eru sameiginleg og óskipt, nema
ákveðið sé í þinglýstum heimildum
að tiltekin bílastæði
fylgi ákveðnum sér-
eignarhlutum. Verð-
ur óskiptum bíla-
stæðum ekki skipt
nema allir eigendur
samþykki og skulu
þá gerðar nauðsyn-
— legar breytingar á
eignaskiptayfirlýsingu og þeim
þinglýst.”
A grundvelli ofangreindra laga var
gerð eignaskiptayfirlýsing fyrir 36
íbúða fjölbýlishús í nóvembermánuði
1997 og þar kemur fram eftirfarandi:
38 bílastæði eru á lóðinni, þar af 2
bílastæði fyrir fatlaða, og eru þau
sameiginleg og óskipt. Hér er birt
teikning af hluta bílastæðanna, sem
voru hönnuð og gerð fyrir 32 árum og
hugleiðingar um nýtingu þeirra.
Vigfús
Gunnarsson
íhugunarefni:
Bílaeign hefúr aukist mikið frá því
bílastæðið var hannað. Þá var gert
ráð fyrir einum bíl á íbúð og aðeins
tvö gestastæði. Nú tilheyra mörgum
íbúðum tveir bílar og einn íbúðar-
eigandi er með kerru að auki. Þegar
margir gestir koma í heimsókn verður
þröng á þingi og sumir verða að flýja
með bíla sína út á götu eða til ná-
granna. Gönguleið að inngangi húss-
ins verður í þeim tilvikum óþægilega
löng fyrir fólk með skerta göngugetu.
Bílastæði A og B eru stærri og ætluð
fyrir fatlaða í hjólastólum. A-stæðið
er auðkennt með P númeri án bíl-
númers, enda ætlað fyrir gesti. B-
stæðið er einnig merkt með P-númeri
með viðfestu bilnúmeri eins íbúa
hússins og hefúr hann afnotarétt af
því sem einkastæði.
Bílastæði C og D eru af venjulegri
stærð eru einnig merkt með P-núm-
erum og viðkomandi bílnúmerum,
vegna þess að annar bíleigandinn not-
ar armstafi en hinn göngustaf. Mikið
skert hreyfigeta, vindálag og/eða
hálka valda þessum hóp verulegum
vandræðum, sem eðilegt er að taka
tillit til og veita sérstakan
afnotarétt af bílastæðum sem
næst inngangi húss.
Hússtjórn veitir hand-
höfum P-merkja afnotarétt af
ákveðnum bílastæðum og á
því að geta skipt um bíla-
stæði, ef aðstæður gera það
nauðsynlegt. Bílastæði fyrir
fatlaða (hjólastólanotendur)
eru stærri en venjuleg bíla-
stæði og yfirleitt staðsett á
viðkvæmum stöðum sem
næst inngangi húss.
Ef handhafi einkastæðis
með P-númeri forfallast tímabundið í
lengri tíma, er eðlilegt að ættingjar
hans færi bílinn í venjulegt bílastæði,
taki bílnúmerið af P-merkinu og
afhendi það hússtjórn, sem geymir
rað uns handhafinn kemur til baka en
þá er bilnúmerið fest við P-merkið á
ný. Þannig verður bílastæðið opið
fyrir aðra fatlaða á fjarverutímanum.
Eg mæli ekki með merkingu bíla-
stæða með íbúðanúmerum, vegna
þess að enginn veit hvort eða hvenær
íbúar verða fyrir hreyfihömlun en þá
verður að vera hægt að færa til íbúð-
anúmer á bílastæðum, sem ekki má
fastsetja með breytingu á eigna-
skiptayfirlýsingu og þinglýsingu.
Til fróðleiks.
P-merki veitir heimild til að leggja í
Bíiastæði sem ætlað er hreyfihömluðum á að vera 380-400 cm breitt.
28