Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.12.1999, Page 30

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.12.1999, Page 30
Alþj óðlegur Alzheimerdagur Alþjóðlegur Alzheimerdagur er 21.sept. ár hvert. FAAS - Félag aðstandenda Alzheim- ersjúklinga og annarra minnissjúkra vakti rækilega athygli á þessum degi nú, kom hinum bestu skilaboðum til fjölmiðla og m.a. gjörði Morgunblað- ið deginum og sjúkdómnum einstak- lega góð skil, lagði opnu blaðsins undir umfjöllun þessu tengda. Þennan dag hélt FAAS svo hinn ágætasta félagsfund í Sunnuhlíð í Kópavogi og þar mættu um 60 manns. Ritstjóri var á fundinum ásamt félagsmálafulltrúa ÖBI og tók niður nokkra minnispunkta á ágætum fundi. Formaður FAAS María Th. Jónsdóttir setti fund og minntist dagsins nokkrum vel völdum orðum. Hún fór einnig með ljóðmæli eftir konu eina sem nú er hátt á níræð- isaldri, hefur misst nær minnið en er annars hin hressasta og kann margt frá gamalli tíð. Við fengum leyfi til birtingar á lífsspeki hinnar öldnu ljóðakonu. Lýsti María mikilli ánægju með viðtökur og umfjöllun fjölmiðla. Guðrún K. Þórsdóttir djákni og framkvæmdastjóri FAAS kynnti nærhópana fyrir aðstand- endum minnissjúkra í Askirkju og fór skráning fram á fundinum og virtist ritstjóra sem vel væri við tekið. Hið trúarlega ívaf er þar í raun inntakið og markmiðið aukinn skilningur og veg- vísir um leið. Hjúkrunarforstjóri Sunnuhlíðar, Áslaug Björnsdóttir, sagði frá heilabilunardeild Sunnuhlíðar, stofn- sett 1991 fyrir 10 einstaklinga. 8 konur þar nú og 2 karlar. Fólkið er í tveggja manna herbergjum, elst 90 ára og yngst 68 ára. Þetta fólk þarf allt aðstoð við allar þarfir utan þá að borða. Hún lýsti inn í það sem gjört væri s.s. gönguferðir, kaffihúsaferðir, mikið hlustað á tón- list, sungið og dansað, því gömlu textarnir og dansfærnin gleymast ekki svo glatt. Nú, horft á sjónvarpið og myndböndin, hlustað á útvarp, lesið fyrir fólkið og ýmislegt sér til gamans gjört. Allt stendur og fellur með starfs- fólkinu, sem hefúr mjög vel tekist til með, enda byggist allt á einstakl- ingsmiðaðri að- stoð. Á deildinni er einvalalið, 6.6 stöðugildi alls en svo sameiginleg næturvakt fyrir húsið. Áslaug lagði að lokum áherslu á hver nauðsyn væri að sýna þessu fólki tilhlýðilega virð- ingu, þrátt fyrir sjúkdóminn væri það ofurnæmt fyrir því ef því fyndist því vera misboðið. Kolbrún Karlsdóttir formaður Bergmáls- Vina- og líknar- félags kynnti félagið og hið einstak- lega fórnfúsa sjálfboðaliðastarf sem þar er unnið. Kolbrún mun gjöra grein fyrir þessu annars staðar í blaðinu. Ritstjóri hefur tvö undarfarin sumur heimsótt Bergmálsfólk austur í Sólheima ásamt þeim ágæta pianóleikara Sigurði Jónssyni og átt með gestum þeirra og þeim sjálfum hugljúfa stund. Það hefur einmitt verið fólk úr okkar félögum sem notið hefur hinn- ar gefandi gestrisni Bergmáls og við metum sannarlega þessa afbragðs- iðju sem öll er gefin örlátum huga sem hjarta. Fólk úr FAAS sem þakkaði fyrir sig á eftir erindi Kolbrúnar átti í raun ekki nógu sterk orð til að lýsa þökk sinni og ánægju með dvölina austur þar. María kvað þarna fara saman hjartarúm og húsrúm og rómaði við- tökur eystra. Menn þáðu veitingar góðar í boði Sunnuhlíðar og óhætt að segja að FAAS fólk hafi sannarlega gjört sitt til að kynna þennan alþjóðlega Alz- heimerdag og vekja um leið til umhugsunar um þetta mikla og vax- andi vandamál. I siðasta fréttabréfi okkar voru ein- mitt kynntar niðurstöður úr rannsókn á líðan og þörf aðstandenda Alzheim- ersjúklinga og þar kom margt mark- vert fram. Niðurstaðan: Þörf á betur upplýstu starfsfólki og meiri stuðningi við að- standendur. FAAS er óskað til hamingju með ánægjulegan og árangursríkan 21. september. Og hér á eftir eru svo ljóðmælin hennar Guðríðar. H.S. Guðríður Brynjólfsdóttir: Kjóllinn Ég átti gamlan, grænan kjól með göt á báðum hliðum. Hann hafði veitt mér haldgott skjól og hlífð á mörgum sviðum. En svo í ræmur reif ég hann og ræmunum ég bætti annars kjól í annan rann með ansi snúnum hætti. Þá spurn í hugans fylgsni fann hvort fegri yrði heimur ef við tækjum mann og mann og mynduðum einn úr tveimur. Til umhugsunar Það er svo margt sem við mennirnir ekki skiljum, mikið er það sem gleymist í tímans rás. Við ýmislegt gerum sem ekki við sjálfir viljum. Er eitthvað hulið sem markar sérhverjum bás? Guðríður er öldruð kona fædd í Villinganesi í Austurdal í Skagafirði. 30

x

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands
https://timarit.is/publication/1440

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.