Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.12.1999, Page 37

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.12.1999, Page 37
úr mínum poka og síðan fórum við að taka til og koma öllu í samt lag og ræða málin. Bræðurnir frá Homströndum virt- ust ekkert sérlega undrandi á öllu þessu bramli og véfengdu ekki útskýringar okkar Þorsteins á orsökinni, enda þaulvanir drauga- gangi og öðru óskýranlegu af “Ströndum”. Eftir nokkrar umræður lögðumst við til svefns á ný og skeði ekki fleira um nóttina. Við vöknuðum í birtingu og snæddum morgunverð. Þjóðverjarn- ir komu á kreik á sama tíma og fannst mér þeir líta okkur hornauga og vildu greinilega ekki ræða neitt um atburði næturinnar - eins og þetta væri sjálf- sagður hávaði, sem fylgdi íslend- ingum. Við félagarnir fórum í langa gönguferð fyrir hádegi og snæddum svo hádegisverð í skálanum þegar við komum til baka. Þjóðverjarnir voru á bak og burt og lái þeim hver sem vill. Þegar við vorum að búast til brott- farar kom fólk ríðandi að skál- anum og tókum við það tali. Við sögðum því frá atburðum næturinnar og taldi fólkið vera alvanalegt að gestir yrðu fyrir ýmiss konar rúm- ruski í þessu herbergi skálans. Það sjálft sagðist aldrei gista í draugaher- berginu. Það skal tekið fram, að enginn okkar hafði heyrt né lesið um reim- leika á þessum stað. Heimferð okkar félaga var greið og skildum við um kvöldið reynslunni ríkari. Trúi svo hver sem trúa vill, en þetta er ekki skáldsaga og vottum við það með undirskrift okkar. Undirskriftin er staðreynd sem sýna má hveijum sem er. Hannes Helgason. Hlerað í hornum Litla stúlkan sagðist vita alveg upp á hár hvenær fólk fyndi það á sjálfu sér að það væri orðið gamalt. Hún var beðin um skýringu á þessu og svaraði hiklaust: “Jú, þegar meira hár vex út úr eyranu á manni en uppi á höfðinu” Félag heilablóð- fallsskaðaðra 5 ára r Arin líða örhratt hjá og allt í einu er mitt ágæta félag orðið 5 ára, en ein minna kærustu minn- inga úr starfi er einmitt nokkurt liðsinni er ég veitti þeim fræknu fúllhugum er fyrstir riðu á vaðið og fengu náð heilu og höldnu yfir á hinn bakkann með félagsstofnun í farteskinu. Þegar þeir Eyjólfur K. Sigur- jónsson og Hjalti Ragnarsson ræddu við mig á Reykjalundi um nauðsyn þess að það fólk sem fengið hefði heilablóðfall stofnaði með sér félag, þá fékk ég strax á þessari draumsýn þeirra fulla trú, svo hreint og beint og skýrlega sem þeir lögðu spilin á borðið. Allt frá stofnun hefúr félagið svo starfað ágætlega, haldið mánaðar- lega, fjölsótta fundi yfir vetrar- mánuðina með margs kyns mætri fræðslu og svo ber bæklingurinn góði þeim sem að stóðu hið besta vitni. Sumarferðalög hafa tekist mjög vel. Félagið gekk í Sjálfsbjörg - landssamband fatlaðra og var hið fyrsta sem þangað var samþykkt inn sem ekki bar nafn Sjálfsbjargar, en félagið fengið þar liðsinni gott og m.a. er skrifstofa félagsins nú í Hátúni 12. Þannig er félagið með aðild sinni í Sjálfs- björg einnig með aðild að Öryrkja- bandalagi íslands - að sjálfsögðu. Félag heilablóðfallsskaðaðra hélt myndarlega upp á 5 ára afmælið í Básnum í Ölfusi hinn 25. sept. sl. þar sem formaður Hjalti Ragnarsson ávarpaði gesti, Arnór Pétursson og undirritaður fluttu tölur og heillaóskir, Helgi Thorvaldsson flutti bráðskemmti- leg gamanmál og Guðni Þ. Guð- mundsson laðaði fram ljúfa hljóma úr dragspili og slaghörpu, og ekki skal gleyma bráðskemmti- legum söng barnanna í Snælands- kórnum,en veislustjóri var Óskar Guðjónsson. Félagar í Félagi heilablóðfallsskaðaðra eru nú um 120 og stjórn þess skipa: Hjalti Ragnarsson formaður, Óskar Guðjónsson ritari, Helgi Thor- valdsson gjaldkeri og til vara eru: Harpa Jónsdóttir og Sigþór Rafnsson. A þessum tímamótum eru héðan sendar hlýjar afmælisóskir með bjartri trú á farsæla framtíð fé- lagsins. Þar er vel að verki staðið og verðug eru verkefnin sem við er fengist. Vonandi nýta enn fleiri sem um sárt eiga að binda sakir heilablóðfalls þennan prýðilega félagsvettvang sér til halds og trausts, fróðleiks og félagslegrar upplyftingar. Sjálfum finnst mér alltaf jafngott og fræðandi að sækja félagið heim á fundum mikillar íjölbreytni í dagskrár- efnum. H.S. FRÉTTABRÉF ÖRYRKJABANDALAGSINS 37

x

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands
https://timarit.is/publication/1440

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.