Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.12.1999, Blaðsíða 38
Elín Ebba Ásmundsdóttir forstöðum. geðd. iðjuþ.:
Ferðalög - mikilvægt
verkfæri í endurhæfingu
Iðjuþjálfun geðdeildar Lands-
spítalans við Eiríksgötu hefur
verið starfrækt frá 1981. Iðju-
þjálfar eru sérhæfðir í að vinna með
fólki með skerta starfshæfni.
Sjúkdómar og
áföll hafa oft
varanleg áhrif á
daglegt líf og
starf fólks. Virkni
og færni við dag-
lega iðju er meg-
inviðfangsefni og
undirstaða iðju-
þjálfunar á sama
hátt og sjúk-
undirstaða með-
ferðar í læknisfræði. Röskun á dag-
legri iðju getur hvort heldur sem er,
verið orsök eða afleiðing líkamlegra
eða andlegra kvilla.
Sjúkdómur sem leiðir til fötlunar
segir ekki til um það hvernig við-
komandi reiði af í framtíðinni. Per-
sónuleikaþættir eins og vilji, gildis-
mat, áhugahvöt, áhugamál svo og
venjur og hlutverk sem einstakling-
urinn hefur, hafa afgerandi áhrif á
hvernig til tekst. Að búa yfir góðri
aðlögunarhæfni og jákvæðu viðhorfi,
bæði frá einstaklingnum sjálfum og
umhverfinu, er lykilatriði með tilliti
til hvort fotlun verður varanleg eða
ekki. í baráttu við t.d. geðsjúkdóma
þarf að yfirstíga margar hindranir,
bæði einstaklingsins sjálfs og í við-
horfum umhverfisins. Geðsjúkdómar
geta haft áhrif á þætti eins og vilja,
áhugahvöt, áhugamál, venjur og hlut-
verk sem skapa lífinu umgjörð og til-
gang. Til að öðlast sjálfsvirðingu og
viðhalda lífsfyllingu þrátt fyrir skerta
starfshæfni þurfa að vera til úrræði
sem ýta undir sjálfsbjargarhvöt fólks
og færni til að vera virkir þátttak-
endur. Sem dæmi um slík úrræði eru
ferðalög.
Dagana 8. til 10. júní í sumar fóru
þrír starfsmenn á vegum iðju-
þjálfunar og 14 einstaklingar sem eru
í endurhæfingu i iðjuþjálfun á
geðdeildum Lsp. v/ Eiríksgötu og að
Kleppi, í ferðalag í Biskupstung-
urnar.
Þar sér Bátafólkið um siglingar
niður Hvítá á gúmmíbátum, hesta-
leiga er á staðnum og góð gistiað-
staða í Kjarnholtum. í þessari ferð
var öll iðja notuð til að efla virkni og
færni, s.s. bátsferðin, hestamennskan,
gönguferðirnar, samveran og elda-
mennskan.
Hópinn skipaði ungt fólk sem
flosnað hefur úr skóla eða vinnu sök-
um geðsjúkdóma. Afleiðingar geð-
sjúkdóma eru m.a. framtaksleysi,
aðgerðaleysi, úrræðaleysi og skert
aðlögunarhæfni, sem leiðir til fé-
lagslegrar einangrunar og lélegs
sjálfsmats. Ferð sem þessi er því ekki
bara dýrmæt reynsla sem maður
tekur með sér um ókomna tíð heldur
einnig einstök í meðferðarlegum til-
gangi.
Til að gefa svolitla innsýn í hvaða
hæfnisþætti Hvítá reyndi á, frá
meðferðarlegu sjónarmiði, eru hér
nefnd dæmi. Við slíkar aðstæður
reynir ekki bara á hina ýmsu þætti
heilastarfseminnar, það reynir líka á
líkamann. í þessari athöfn reynir m.a.
á skynhreyfiþætti, vitsmunaþætti og
sálfélagslega þætti. Til að komast
klakklaust niður ána verður hópurinn
að vinna saman. Hver einstaklingur
finnur fyrir mikilvægi sínu og verður
að einbeita sér og hlýða skipunum
hópstjórans sem þekkir ána og veit
hvað ber að gera svo báturinn haldi
“kúrsi”. Annað, sem er ekki síður
mikilvægt þegar auka þarf sjálfsmat
og trú á eigin áhrifamátt, er að sitja
við sama borð og aðrir. Hér voru allir
að takast á við eitthvað nýtt og enginn
var öðrum fremri að reynslu eða
þekkingu. Hápunktur Hvítárferð-
arinnar var svo hið fræga 7-8 m
stökk sem fólki gafst tækifæri til að
spreyta sig á. Helmingur hópsins
hoppaði og kom sjálfum sér og öðr-
um á óvart. Líkaminn sá svo sjálfur
um að gefa svörun um að vel hafi
tekist, með því að auka framleiðslu
endorfma sem veitir velútilátna vel-
líðunartilfinningu.
Nálganir og markmið endurhæf-
ingar eru ólík því sem gerist
innan hefðbundinnar starfsemi
sjúkrahúsdeilda. Sú mynd sem oftast
Hluti hópsins að undirbúa sig fyrir reiðtúrinn.
Elín Ebba
Ásmundsdóttir
dómsgreining er
38