Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.12.1999, Qupperneq 41

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.12.1999, Qupperneq 41
Jens ívar tekur á móti viðurkenningu fyrir þátttöku í námskeiðinu. “blandað unglingastarf.” Okkur fannst það liggja ljóst fyrir, þar sem Jens Ivar var frá Rauða Krossinum og Arni frá Sjálfsbjörg, að við yrðum að “blanda”, unglingastarfi Sjálfsbjargar (BUSL), sem samanstendur af fötluðum unglingum og unglinga- starfi Rauða krossins, sem saman- stendur af ófötluðum, saman. Við notuðum hugmyndir ung- mennafélagsmiðstöðvarinnar Flem- ington Fulton og fórum í “hjólastóla- fótbolta.” Við fengum húsnæði íþróttafélags fatlaðra lánað og kunn- um við þeim bestu þakkir fyrir. Bolt- inn heppnaðist vel og allir skemmtu sér, athugið, líka sá sem þurft að leita sér læknishjálpar vegna smá “hnjasks.” Eftir þessa fræknu íþróttaiðkun ákváðu “Buslarnir” að bjóða ungl- ingastarfi URKÍ að vera með í svo- nefndum “óvæntum degi” í ungl- ingastarfi Sjálfsbjargar, sem halda átti í samvinnu við sjóflokk Slysa- varnarfélags íslands. Með “óvænt- um” degi er átt við að leiðbeinendur skipuleggja eitthvað sem ungling- arnir hafa ekki hugmynd um. Þessi dagur var sem fyrr ágætlega heppnaður. Lagt var af stað í rútu frá Sjálfsbjargarhúsinu niður á Reykja- víkurflugvöll. Þar tók á móti hópn- um flugfreyja sem reyndi að telja öllum trú um að við værum á leið- inni til Vestmannaeyja að heimsækja japanska íslendinginn Keikó. Eftir þann fund var haldið niður á tjörn. Þar gáfum við öndunum brauð. Greip þá um sig mikil óvissa og ótti meðal ungmennanna hvort ekki yrði meira úr deginum en þetta. En það var ástæðulaust því frá tjörninni var haldið niður á bryggju, þar sem þau fóru um borð í björgunarskipið Henrý Hálfdánarson og fengu að taka þátt í æfingu sjóflokksins. Einnig var stoppað í Viðey og “kaffi” drukkið af bestu lyst. Þaðan var síðan haldið heim á leið með bros á vör. Með þessa skemmtilegu reynslu í farteskinu héldum við aftur til Norð- ur-írlands. Þar urðu fagnaðarfundir með hinum þátttakendunum enda allir orðnir málkunnugir og meira en það. Það var aðallega farið yfir verk- efni sem fólk hafði tekið með sér heim og skoðað í því tilliti hvað tókst vel og hvað illa. Lokaorð Með nýja reynslu og þekkingu af landi og þjóð sem og að vinna með unglingunum vonumst við til að geta bætt starf BUSL til muna. Mark- miðið verður að halda áfram sam- starfinu sem myndaðist við ungl- ingastarf URKÍ og þar með sýna fram á að hægt er að brjóta niður alla múra (ef einhverjir eru) sem eru á milli fólks með “mismunandi þarfir”. Jens Ivar Albertsson Árni Salomonsson Hlerað í hornum Heyrt í fréttum: “Hundruðir rúss- neskra hermanna bíða þess að þeim sé flogið til Kosovo”. Samhengið var ekki síður hið skemmtilegasta því næst á eftir var talað um galdra á Vesttjörðum forðum tíð og maður sá nornirnar fyrir sér ríðandi á rúss- neskum hermönnum í stað galdra- priksins góða. Mikill bindindismaður var ásamt veitingamanninum að undirbúa mikla og veglega opinbera veislu. Veitinga- maðurinn stakk upp á því að rækju- kokkteill yrði í forrétt. Þá var bind- indismaðurinn snöggur til svars og þvertók fyrir rækjukokkteilinn: “Nei, nei það verður ekkert áfengi haft um hönd í þessari veislu.” Prestur einn var að messa og fór með faðirvorið og bað alla að taka undir. Meðal kirkjugesta var Jjögurra ára snáði, sem tók vel undir með presti. En um leið og búið var að segja amen heyrðist hátt og skýrt frá snáðanum: “Og farðu svo að sofa.” Lítil hnáta kom í heimsókn til ömmu sinnar á sjúkrahúsið. Gamla konan var tengd við einhver tæki og skjáir voru fyrir ofan rúmið til að fylgjast með líðan hennar. Litlu stúlkunni varð starsýnt á skjáinn, þar sem eitt- hvert línurit birtist aftur og aftur. Eftir að hafa horft á þetta um stund sagði sú stutta: “Amma, er ekki hægt að skipta yfir á aðra stöð?” *** í 6 ára bekknum snerist umræða barn- anna um það hver ætti ríkasta pabb- ann. Ein stúlkan sagði að mamma hennar gæti bara verið heima og þyrfti ekkert að vinna, hún færi í allar búðirnar og eyddi peningunum hans pabba í fot. Einn strákurinn í bekkn- um sagði þá: “Pabbi minn er svo ríkur að hann keyrir aldrei til Vest- mannaeyja. Hann tekur annað hvort skip eða flugvél þegar hann fer þang- að.” Þegar ferjan á Lagarfljótinu, Lagar- fljótsormurinn kom til landsins á sl. sumri þurfti að fá tilskilin leyfi og skírteini fyrir skipið. Gárungarnir voru ekki lengi að segja að í staðinn fyrir haffærnisskírteini þá yrði að fá flj ótfærnisskírteini. FRÉTTABRÉF ÖRYRKJABANDALAGSINS 41

x

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands
https://timarit.is/publication/1440

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.