Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.12.1999, Qupperneq 42
Hartmann Guðmundsson forstöðumaður Örtækni:
KYNNING
r
g er fæddur í Reykjavík árið
1958 og uppalinn í Skugga-
hverfinu. Foreldrar mínir eru
Guðbjörg Halldórsdóttir verslun-
arkona og Guðmundur Hartmanns-
son lögreglu-
varðstjóri. Eg er
giftur Erlu Bolla-
dóttur og á 3 börn
á aldrinum 3ja til
16 ára.
Öll mín skóla-
ganga var á
Skólavörðuholt-
inu, fyrst í Aust-
urbæjarskóla,
þaðan í Vörðuskóla og síðan í Iðn-
skólann í Reykjavík. Ég lauk sveins-
prófi í rafeindavirkjun vorið 1979 og
fékk meistarabréf árið 1983. Strax að
skóla loknum fór ég að starfa við við-
gerðir á sjónvörpum, vídeótækjum og
þess háttar hjá Radíóhúsinu. Arið
1984 tók ég við rekstri verkstæðis, en
fyrri eigendur héldu áfram að reka
verslun fyrirtækisins. Árið 1991 tek
ég alfarið við fyrirtækinu og fyrri
eigendur gerast starfsmenn mínir. Ég
seldi fyrirtækið árið 1996.
Árið 1993 flyst ég búferlum ásamt
fjölskyldu minni til Suður Afríku til
að fara í biblíuskóla. Var ég þar við
nám í tvö ár og setti á stofo fyrirtæki
samfara náminu til að sjá okkur far-
borða. Að námi loknu gengum við til
liðs við kristilegt hjálpar- og trú-
boðsstarf (Jesús Alive Ministries
Intemational) og störfuðum þar í tvö
og hálflt ár. Mitt starf þar var að vera
deildarstjóri yfir prent- og hönn-
unardeild (print department super-
visor). Þar ættleiddum við yndislega
stelpu af “Ndebele” ættbálki og var
hún eins og Guðs gjöf til okkar.
Vorum við i ýmsum hjálparstörfum
öðrum á þessum tíma enda trúi ég því
sem kristinn einstaklingur að ég eigi
að elska meðbræður mína í verki. Ég
trúi því að Guð sé algóður og vilji
aðeins það besta fyrir okkur, aðeins
ef við leitum Hans. Ég trúi því einnig
að lykillinn að Guði sé í gegnum Jesú
Krist.
r
Iseptember 1998, stuttu eftir að við
fluttum heim aftur, hóf ég störf hjá
Vinnustöðum ÖBÍ sem forstöðu-
maður Örtækni. Þar starfa alls 12
fatlaðir einstaklingar, flestir í hálfu
starfi. Helmingurinn af starfseminni
er í kringum tölvukapla. Við erum
eina sérhæfða verslunin í landinu
með tölvukapla. Við flytjum inn og
framleiðum allar helstu gerðir af
tölvuköplum og ef einhverjir kaplar
eru ekki til á lager þá búum við þá til
efltir pöntunum.
Hinn helmingur starfseminnnar er
fyrir rafeindafyrirtæki sem eru i
framleiðslu á rafeindabúnaði. Við
röðum íhlutum á rafeindaplötur og
lóðum í sérstakri lóðvél. Síðan yfir-
förum við plöturnar, prófum og
göngum frá.
Reksturinn hjá okkur gengur vel og
er aukning á framleiðslu og sölu milli
ára. Ég sé fyrir mér framleiðslu-
aukningu á öllum sviðum og að við
komum til með að taka stærri hlut af
markaðnum en nú er. Einnig sé ég
fyrir mér meiri sérhæfða framleiðslu
fyrir rafeindaiðnaðinn. Við fylgjumst
vel með nýjungum úti í heimi sem
við getum nýtt okkur.
Hartmann Guðmundsson
Veggspjald og myndband
Samtök sykursjúkra hafa gefið
út veglegt veggspjald sem ber
efsta spurninguna:
Kannast þú við þessi einkenni?
Helstu einkenni of hás blóðsykurs
eru:
Þorsti, tíð þvaglát, ástæðulaus
þreyta, óskýr sjón, stundum þyngdar-
tap, húðkvillar algengir og sár gróa
illa og dofi og sérkennileg tilfinning í
fótum.
Tvær megintegundir eru nr.l og
nr.2, insúlínháð og ínsúlínóháð.
Sykursýki er svo skilgreind sem
efnaskiptasjúkdómur sem vart verður
þegar brisið framleiðir ekki nægilegt
insúlín eða líkaminn getur ekki nýtt
það insúlín sem framleitt er. Sykur
safnast fyrir í blóðinu og veldur
skemmdum á líffærum s.s. æðum og
taugum.
Spurt er hverjir séu í áhættuhópi og
tegund eitt virð-
ast allir geta
fengið, en teg-
und tvö fá þeir
einkum sem eru
of þungir, eru
komnir yfir fer-
tugt, eiga skyld-
menni með
sykursýki eða þá bamshafandi með
þungbura.
Fylgikvillar eru taldir upp s.s.
hjarta- og æðasjúkdómar, hjarta-
áfoll, blinda, taugaskemmd, nýrna-
bilun og svo aflimun í alvarlegustu
tilvikum.
Engin endanleg lækning er til við
sykursýki, en góð ráð eru gefin og
góð stjórnun blóðsykurs er nauðsyn-
leg. Skorað er á fólk að láta rann-
saka sig ef einhver einkenna hér að
ofan láta á sér kræla.
Að lokum eru svo á veggspjaldinu
kynnt Samtök sykursjúkra sem vinna
mikið og merkilegt starf. Skrifstofa
Samtaka sykursjúkra er að Tryggva-
götu 26 og siminn er 562-5605.
En samtökin hafa ekki numið staðar
við svo búið heldur hafa þau einnig
gefið út myndband þar sem kynntar
eru helstu nýjungar í meðferð
sykursýki.
Ástráður B. Hreiðarsson yfirlæknir
Göngudeildar sykursjúkra á Land-
spítalanum í Reykjavík heldur þarna
fyrirlestur með glærum og mynd-
skyggnum, þarna er að finna miklar
upplýsingar um sérhæft efni m.a.
farið yfir ný lyf og virkni þeirra.
Samtökum sykursjúkra er sómi að
þessu tvíþætta átaki sínu og þess
aðeins vænst að það megi góðan
árangur gefa.
H.S.
Slen
42