Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.12.1999, Blaðsíða 44

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.12.1999, Blaðsíða 44
Skóflustunga tekin á Reykjalundi Frá ágætri athöfn. lundi hefði þróast í takt við þarfir Hinn 1. okt. sl. var sannarlega mikið um dýrðir á Reykja- lundi. Þá tók forseti íslands skóflustungu að viðbótarbyggingu við Reykjalund, þeirri sömu og safnað var til í október á liðnu ári með hinni frábæru þátttöku þjóðar- innar. Forsetinn lét ekki axlarbrotið aftra sér frá því að taka skóflustunguna en honum til aðstoðar var ung fötluð stúlka, Helga Kristleifsdóttir og leystu þau verkið saman vel af hönd- um og fengu lof i lófa klappað að því loknu. Eftir hina stuttu en hátíðlegu at- höfn úti var gengið inn í matsal Reykjalundar þar sem mikið og frítt fjölmenni þáði veglegar veitingar. Björn Ástmundsson bauð alla vel- komna og gaf svo forseta íslands, Ólafi Ragnari Grimssyni orðið. Forseti sagði að það gleddi sig mjög að fá að fagna með fólki þess- um áfanga Reykjalundar, SIBS og raunar þjóðarinnar allrar. Af Reykja- lundi hefur fólk farið með bætta heilsu og bjartari sýn, þúsundum saman hefði fólk umönnunar og endurhæfingar notið þar. Fyrsta heimsókn Ólafs Ragnars á Reykjalund var með móður hans 1950 en hún var berklaveik eins og alþjóð veit. Honum þótti þá sem þar væri sann- kölluð ævintýraveröld alvöru og bar- áttuvilja um leið. Stórhugur hefði ávallt ríkt þar í raun, skilað okkur hinni stórglæsilegu endurhæfing- armiðstöð. Menn eiga Reykjalund að, ákjósanlegur og dýrmætur áning- arstaður fyrir þá sem á þurfa að halda. Bað Reykjalundi gæfu og guðs blessunar. Formaður SIBS, Haukur Þórð- arson flutti ávarp, en Haukur er einmitt fyrsti sérmenntaði endurhæf- ingarlæknirinn hér á landi. HannrifJ- aði upp að 55 ár væru frá landnámi SÍBS að Reykjalundi. Starfið ævin- lega verið í fullu samræmi við drauma frumherjanna. Þar hefðu ótal hendur að unnið. Starfið á Reykja- landsmanna fyrir endurhæfingu. Hér væri nú um að ræða markvert skref inn í nýja öld. Haukur þakkaði for- seta afbragðsgóðan stuðning við SÍBS, við sjúka og fatlaða einnig. Óskaði forseta góðs bata og kvað Reykjalund mundu standa honum opinn ef til endurhæfingar kæmi. Reykjalundarkórinn söng svo listi- lega 3 lög undir stjórn Lárusar Sveinssonar. Athöfnin var öll hin ágætasta. En hvað er svo framundan? Að hverju var skóflustunga tekin? Þorsteinn Sigurðsson varaform. stjómar Reykjalundar átti leið hérum og ritstjóri greip tækifærið til að fræðast. Húsnæðið nýja að Reykja- lundi á að hýsa alhliða íþróttahús og Hlerað í hornum Þau voru í baði frændsystkinin litlu og sú litla spurði frændann hvað hann væri með þama framan á sér og hann svaraði að bragði að þetta væri nú till- inn á sér. “Ekki hefi ég neitt svona”, sagði frænkan, “Það er ekki nema von, þú ert bara stelpa og stelpur týna alltaf öllu”. Maður einn rauk upp úr rúmi sínu sundlaug. Þessi bygging á að bæta þjálfunaraðstöðu fyrir sjúklinga sem á hverjum tíma era um 165, en árlega veitir stofnunin 1350 manns þjón- ustu. Stærðin er um 2000 fermetrar, að hluta til á tveim hæðum þ.e. 18x31 m. íþróttasalur, 25 metra sundlaug og æfingalaug með heitum potti, rúmgóður tækjasalur með búnaði til þrekþjálfunar ásamt búnings- og baðklefum. Hönnuðir eru: Finnur Björgvinsson og Hilmar Þór Björns- son en verkfræðivinnu og eftirlit annast Vífill Oddsson. Um leið og Þorsteini er þakkað fyrir fróðleikinn er þakkað fyrir einkar ánægjulega stund uppi á Reykjalundi 1. okt. sl. Megi heilla- dísir framvegis fylgja Reykjalundi svo sem verið hefur hingað til. með andfælum, leit á klukkuna, ýtti við konunni sem hjá honum svaf og sagði: “Klukkan er orðin alltof margt. Ég verð að drífa mig heim”. Konan svaraði með ískaldri ró: “Hvað áttu við með því að ætla að fara heim? Þú ert heima hjá þér.” .“Hvað sagði reiknivélin við eiganda sinn?”, spurði lítil stúlka föður sinn. Það vissi faðirinn ekki. “Þú getur reiknað með mér”, svaraði litla stúlk- an. H.S. 44
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands
https://timarit.is/publication/1440

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.