Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.12.1999, Qupperneq 48

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.12.1999, Qupperneq 48
Ólöf S. Eysteinsdóttir form. MG félags íslands: Fyrsti fundur NRMG Fyrsti fundur Norræns MG-ráðs (NRMG) var haldinn helgina 14.-16. maí síðastliðinn í Turku í Finnlandi, en Norrænt MG- ráð var formlega stofnað 1997. Fulltrúar MG- félags íslands á fund- inum voru Ólafur Stephensen, Dröfn Jónsdóttir og Þórdis „ . . Jóna Hrafnkelsdóttir Evsteinsdottir , , . , _ lækmr (aðstoðar- maður), en auk þeirra sátu fulltrúar frá Finnlandi, Svíþjóð og Noregi fundinn. Fundurinn var að hluta haldinn á Masku endurhæfingarstöðinni þar sem yfirlæknir stofnunarinnar hélt áhugavert erindi um starfsemina. Stofnunin í Masku býður upp á að- lögunarþjálfun (adaption training) fyrir sjúklinga með ýmsa vöðva- og taugasjúkdóma. Markmið þjálfunar- innar er ekki eingöngu að sinna líkamlegum vandamálum sjúkling- anna, heldur er rík áhersla lögð á fræðslu, félagslega hæfingu og að fá sjúklinginn til að læra að lifa með sinn sjúkdóm. Hefðbundin endur- hæfing hentar ekki MG-sjúklingum sérlega vel en í Masku bjóðast þriggja vikna löng aðlögunar/þjálf- unarnámskeið fyrir MG-sjúklinga og styttri námskeið þar sem aðstand- endurn gefst einnig kostur á þátttöku. Talmeinafræðingur stofnunar- innar hélt afar gagnlegt erindi um þá erfiðleika tengda talfærum, sem MG-sjúklingar geta átt við að etja. Hún fjallaði meðal annars um óskýrmælgi (dysartri), veikan radd- styrk (dysfoni) sem getur stafað af kraftleysi í öndunarfærum, og kyng- ingarerfiðleika (dysfagi). Hún nefndi að þjálfun væri mikilvæg ekki síst til að auðvelda notkun þeirra vöðva sem fyrir hendi eru og til að minnka hættu á rangri beitingu. Oft er nægilegt að talmeinafræðingur skoði sjúklinginn, gefi upplýsingar og einstaklings- bundin þjálfunarprógrömm. Fram kom á fundinum að upp hafa komið erfiðleikar i Svíþjóð og Noregi með að útvega lyfin Mestinon og Neostigmin og er það mjög alvar- legt þar sem sjúklingarnir eru háðir þessum lyfjum margir hverjir. Almenn ánægja var með fundinn, sem var opinn og gagnlegur. Fundar- menn voru sammála um að starf MG- félaganna, ekki síst í formi norræns samstarfs, hafi þegar skilað sér í þágu MG-sjúkra og enn frekari árangurs sé að vænta í framtíðinni. Norsku full- trúarnir fara með formennsku í NRMG fram að næsta fundi ráðsins sem haldinn verður í Noregi að tveimur árum liðnum. Ólöf S. Eysteinsdóttir formaður MG-félags íslands. Ásgerður Ingimarsdóttir: En svo koma jól Lækkar á himni ljúfust sól lág ský um himin þjóta. Haustar nú að um byggð og ból best er litanna að njóta. Litanna fögru sem ljóma svo frítt um landið sem bráðum verður hvítt svo sést varla gjá né gjóta. Skammdegið færist nær og nær nú er ei glatt í sinni eins og á vori er hugur hlær held ég nú birtunni linni. En allt í einu er aftur bjart á undanhaldi er myrkrið svart það syngur í sálu inni. Því jólin nálgast hægt og hægt hugurinn fyllist gleði. Vetrarmyrkri er burtu bægt brátt okkur léttir í geði. Við sjáum á himni hækka sól og höldum saman gleðileg jól svo leiðumst að ljúfum beði Frelsarans sem að færði oss fagnaðarboðskap að læra. Lagði í fang þér ljúfast hnoss og lofsöngva hjörtun að bæra. Lifið í friði í fögrum heim fagnandi grípið höndum tveim hátíð helga og kæra. Ásgerður Ingimarsdóttir. Ólöf S. 48

x

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands
https://timarit.is/publication/1440

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.