Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.12.1999, Page 51
Séð yfir hluta fundarsalar.
árs Hafdís Gísladóttir. Ritari til eins
árs Gísli Helgason. Fyrir er í stjórn-
mni Valgerður Osk Auðunsdóttir
meðstjórnandi. Varamenn voru
kjörin þau: Dagfríður Halldórsdóttir,
Elísabet Á. Möller og Arnór
Pétursson.
011 voru framantalin sjálfkjörin og
með lófaklappi.
Skoðunarmenn sömuleiðis sjálf-
kjörnir þeir Tórnas Sturlaugsson og
Vigfus Gunnarsson. Haukur Þórðar-
son þakkaði fyrir samstarf og sam-
skipti sem spönnuðu nær ijóra ára-
tugi. Haukur kvað þau heið og björt
í huga sér. Oskaði nýrri fram-
kvæmdastjórn góðs gengis. Hafliði
Hjartarson færði fram alúðarþakkir
fyrir ánægjuríkan tíma og færði við-
takendum farsældaróskir. Að loknu
hádegisverðarhléi kallaði fram-
kvæmdastjóri Vilhjálm B. Vilhjálms-
son á vettvang í tilefni þeirra
tímamóta á liðnu sumri er Vilhjálmur
hætti framkvæmdastjórastörfum hjá
Islenskri getspá. Vilhjálmur ávarp-
aði fundinn og kvað það hafa verið
gleði sína að hafa getað með starfi
sínu séð fjárhag bandalagsins borgið.
Þakkaði samstarf liðinna ára.
Ólöf Ríkarðsdóttir kynnti hand-
bókina: Aðgengi fyrir alla nokkrum
vel völdum orðum, en handbókin vel
kynnt hér í blaðinu.
Þá tóku 5 starfshópar til óspilltra
málanna en þeir fjölluðu um:
atvinnumál, félagsmál, kjaramál,
menntamál og búsetumál.
Unnu þeir vel í nær hálfa aðra
klukkustund og skiluðu svo áliti.
Þorsteinn Jóhannsson kynnti álit
hóps um atvinnumál. Fagnað var
góðri atvinnumálaráðstefnu, lögð
áhersla á vönduð ákvæði um at-
vinnumál fatlaðra inn í lög um
vinnumarkaðsaðgerðir, mótmælt
alltof knöppum skerðingarákvæðum
vegna vinnutekna sem vinnuletjandi
væru, ÖBI kæmi að trúnaðar-
mannanámskeiðum stéttarfélaga og
vinna fatlaðra yrði betur kynnt.
Sigurður V Viggósson kynnti álit
starfshóps um félagsmál.
Lögð áhersla á fulla þátttöku fatl-
aðra í menningar- og listalífi (njóta
og skapa), aðgengi sem allra best
hvarvetna m.a. til afþreyingar og
tómstunda, mælt með niðurgreiðslu
á sumarbústöðum, fræðsla um mál-
efni fatlaðra færð inn í grunnskóla
með ákveðnu námsefni, svo og var
samþykkt tillaga um að fara þess á
leið við menntamálaráðuneytið að
það sjái til þess að á öllum stigum
kennaranáms verði námsefni um
fötlun.
Garðar Sverrisson talaði fyrir
starfshóp um kjaramál. Hann lagði
fyrir fundinn ályktun, sem um leið
yrði aðalályktun og var hún sam-
þykkt samhljóða. Garðar lagði
einnig á það áherslu að enn betur yrði
reynt að ná til grasrótarinnar, fá yrði
fleiri til þátttöku.
Ályktunin er svohljóðandi:
Aðalfundur Öryrkjabandalags
íslands, haldinn 6. nóv 1999 skorar
á Alþingi að aflétta því neyðar-
ástandi sem ríkir í trygginga-
málum öryrkja og búa svo um
hnúta að örorka verði ekki framar
ávísun á efnahagslega útskúfun.
Þá ítrekar fundurinn fyrri áskorun
sína til Alþingis um að það viður-
kenni hina margvíslegu sérstöðu
öryrkja með því að hækka örorku-
lífeyri sérstaklega og mest hjá þeim
sem verða fyrir varanlegri örorku
snemma á starfsævinni.
Einnig skorar fundurinn á
stjórnvöld að Ieiðrétta lífeyris-
greiðslur til samræmis við þróun
launa á síðustu árum og tryggja að
þær dragist aldrei aftur úr þróun
launavísitölu.
Aðalfundur ÖBÍ vekur athygli á
því að jaðarskattar eru hvergi
hærri en hjá þeim öryrkjum sem
reyna að hasla sér völl á vinnu-
markaði. Það er ríkissjóði og sam-
félaginu öllu til fjárhagslegs skaða
að sporna svo mjög gegn atvinnu-
þátttöku fatlaðra. Til að bæta hér
úr ber brýna nauðsyn til að hækka
verulega frítekjumörk vegna at-
vinnutekna og leiðrétta skattleysis-
mörk til samræmis við þróun
launavísitölu síðustu 10 ára. Þá er
ekki síður brýnt að hverfa þegar í
stað frá skattlagningu húsaleigu-
bóta.
Fyrir menntamálahópinn talaði
Benedikt E. Benediktsson. Með-
al þess sem þar kom fram var að auka
þyrfti námsframboð í framhalds-
skólum, þar þyrfti fjölbreytni að vera
meiri, aukin áhersla á starfsfræðslu.
Lögð var áhersla á það að unnt væri
að fá hjálpartæki á hverjum tíma sem
létt gætu undir við námið. Tryggja
hvers konar aðgengi að menntun og
menntastofnunum. Meiri hvatning til
náms þyrfti til að koma gagnvart
þeim sem fatlast af völdum sjúkdónra
eða slysa. Friðrik Alexandersson
benti á nauðsyn þess að skólakerfið
lagi sig að þeim sem þurfa heils-
dagsþjónustu.
Fyrir búsetumálahóp talaði Hafliði
Hjartarson. Minnti á þörf nýrra
úrræða í búsetumálum, íbúðir þyrfti
fyrir þá sem á tímabundinni búsetu
þyrftu að halda. Velti einnig upp
spurningunni um það hversu mikill
að umfangi Hússjóður skyldi vera.
FRÉTTABRÉF ÖRYRKJABANDALAGSINS
51