Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.12.1999, Blaðsíða 52

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.12.1999, Blaðsíða 52
Frá háborði aðalfundar. Pétur Hauksson kynnti eftirfarandi ályktun frá hópnum sem samþykkt var samhljóða. Brýnt er að fjölga búsetuúrræð- um með mismiklu þjónustustigi. Ljóst er að ákveðnir hópar fólks eru í þörf fyrir sérhæfða og í sum- um tilfellum mikla þjónustu á heimilum sínum t.d. vegna hreyfi- hömlunar, geðfötlunar eða þroska- hömlunar. Fyrir marga er æski- legasta úrræðið þjónustukjarni með aðliggjandi íbúðum. Við yfir- færslu á málefnum fatlaðra til sveitarfélaga þarf að tryggja vel yfirfærslu fjármagns vegna þjón- ustu þeirra sem nú eiga heimili sín á stofnunum. • • Onnurmál: Arnór Pétursson vildi að uppstillinganefnd skilaði timanlegar af sér og endurskoðun laga bandalagsins væri tímabær. Flutti tillögu svohljóðandi sem sam- þykkt var samhljóða: Aðalfundur ÖBÍ haldinn í Reykjavík 6. nóv. 1999 beinir því til framkvæmdastjórnar að hún skipi nefnd til að fara yfir og end- urskoða lög bandalagsins. Sömuleiðis ræddi Arnór bílastæða- mál fatlaðra og bar fram svohljóð- andi tillögu, sem samþykkt var sam- hljóða: Aðalfundur ÖBÍ haldinn í Reykjavík 6. nóv. 1999 skorar á ökumenn að virða sérstök bifreiða- stæði fatlaðra. Jafnframt er skor- að á sveitarfélögin í landinu að fjölga slíkum bifreiðastæðum svo fatlaðir eigi auðveldara með að sinna erindum sínum. Haukur Þórðarson velti upp þeirri hugmynd að aðalfundur kysi uppstill- inga- eða kjömefnd. Hafdís Hannesdóttir færði Hauk alúðarþakkir og minnti á hin mikil- vægu störf hans m.a. sem hins ómetanlega fræðara. Halldór Sævar Guðbergsson minnti á verkefni Blindrafélagsins í Malavíu í sam- vinnu við Þróunarsamvinnustofnun. Fagnaði ráðsteíhu gærdagsins og minnti á hina miklu og margvíslegu möguleika sem í tækninni fælust. Eiríkur Þorláksson kom með þá tillögu að aðalfundur yrði haldinn snemma árs svo t.d. allar tölur reikn- inga væru ferskar, þetta ætti endur- skoðunarnefndin að taka til athug- unar. Fundarstjórar, Þórir Þorvarðarson og Sigríður Kristinsdóttir þökkuðu fyrir sig og þeim þakkað með lófa- taki. Riturum þökkuð ágæt iðja. Garðar Sverrisson nýkjörinn for- maður sleit fundi, hvatti menn til dáða og færði Hauk og Hafliða sérstakar þakkir fyrir störf þeirra. Bandalagið kvaddi þá með fögrum blómvöndum sem Guðríður Ólafs- dóttir færði þeim í lokin. Fundarslit voru um kl. 16.40. H.S. Birna Eyjólfsdóttir Ve stmannaeyj um: Órímað og rímað Hugsað að hausti Eg ligg í sófanum í stofunni heima. Úti blása kaldir vindar haustsins og gardínurnar bærast þegar vindurinn blæs inn um þær. Eg stari út um gluggann í birt- una sem dvínar með hverjum degi. Á himin- inn sem er al- skýjaður. Ég loka augunum og þá birtist glugginn ljómandi fyrir lokuðum augum minum. Verður gulur og rauður. Og hverfur svo alveg. Úti á túninu skammt frá er stór steinn. Þegar ég geng fyrir hornið á næsta húsi er hann eins og risa- stór köttur, þegar hann er séður frá því sjónarhomi og í þeirri fjarlægð sem er frá húsinu heima. Stundum er í mér óhugur þegar mér finnst að hann muni vakna til lífsins. Liggja svo í leyni við næsta húshorn og stökkva þaðan og hremma mig. Ef til vill finnst mér þetta því samviska mín er ekki alveg hrein. Það húmar að Það húmar að og haustið kemur, held ég áfram að yrkja ljóð. Vona er um vetrarhretin semur, að vænkist í mínum ljóðasjóð. Um tryggðina Tryggðin og traustið fæst ekki gefins. Reyndu eins og þú getur að vera trú. Þegar sigur berðu úr býtum ertu ei lengur efins. Gagnkvæm fórnfýsi milli vina smíðar brú. Birna Eyjólfsdóttir. 52
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands
https://timarit.is/publication/1440

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.