Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.12.1999, Síða 55
Tveir forystumanna Öryrkja-
bandalagsins til fleiri ára láta nú
af stjórnarstörfum þar og það einnig í
framkvæmdastjórn þar sem báðir
hafa setið frá upphafi þeirrar
skipunar. Þetta eru þeir Haukur
Þórðarson og Hafliði Hjartarson, sem
eiga einstaklega góða og farsæla
starfssögu á vettvangi Öryrkjabanda-
lagsins sem og sinna félaga.
Haukur hefur verið hér formaður
og varaformaður og Hafliði gjaldkeri.
Báðum er til alls góðs treyst ævinle-
ga, í engu bregðast þeir því sem þeim
er til trúað. Báðir eru skapfestumenn
mikillar félagslegrar reynslu, leggjast
þungt á árar þegar þess er þörf, ein-
lægni og alúð einkenna öll þeirra
störf. Þeim er mikil og hlý þökk færð
við þessi tímamót og best er þeim
þakkað með vökulli varðstöðu og
veitulli baráttu fyrir hag hinna
fbtluðu í samfélaginu.
Eins og hér var getið um á sínum
tíma var gjörður samningur milli
félagsmálaráðuneytis og Sambands
íslenskra sveitarfélaga um ferlimál.
Skyldi Sambandið sjá um það hlut-
verk og fékk fyrir íjármuni til að
sinna verkefninu. Sambandið réði
starfsmann til verksins en samn-
ingurinn gilti til tveggja ára. Hann
rann út um síðustu áramót en þó mun
starfsmaður sambandsins hafa sinnt
þessum málum eitthvað fram á sl.
sumar að hún sagði upp störfum.
Öryrkjabandalag íslands tók þessa
óunandi stöðu ferlimála upp þegar sl.
vor við félagsmálaráðherra og fleiri
aðila málinu tengda og þráðurinn var
svo aftur tekinn upp á haustdögum.
Þess er að vænta að af verði árangur
nokkur, jafnvel svo að ný ferlinefnd
verði skipuð eftir tilnefningum
ákveðinna aðila og nefndin fái starfs-
mann sem gæti t.d. verið staðsettur
hjá Skipulagsstofnun. Þetta mun
skýrast á næstunni en að málinu
koma félagsmálaráðuneyti, umhverf-
isráðuneyti, Skipulagsstofnun rík-
isins, núverandi ferlinefnd og svo
Öryrkjabandalagið. Viðbrögðin eru
góð svo vænta má þess að eitthvað
gjörist í málinu fyrr en síðar.
Talandi um ferlimál þá hafa þau
eðlilega nokkuð komið til um-
ræðu í laganefnd þeirri sem unnið
hefur að fmmvarpi til laga um
félagsþjónustu og á í raun að leysa af
hólmi sérlögin um málefni fatlaðra.
Undirritaður vildi hafa sérákvæði
inni í frumvarpinu um ferlinefndir en
það fékk engan hljómgrunn og því er
aðeins það ákvæði inni að félags-
málanefndir skuli fylgjast með ferli-
málum svo og að félagsmálanefndir
geti sett á undirnefndir um einstaka
málaflokka og í athugasemdum er
sagt að m.a. sé þar átt við nefndir um
ferlimál. Svo víða er pottur brotinn
að ekki hefði af veitt að ferlinefndir
fengju sinn sess á sveitarstjórnar-
stiginu með þá sín mörgu og þörfu
verkefni að vinna að. Vonandi verður
Alþingi til að breyta þessu atriði svo
nauðsynlegt sem það er að ákveðinn
formlegur eftirlitsaðili fylgist með og
fái hrundið lagfæringum og úrbótum
í framkvæmd.
Handbókin nýja: Aðgengi fyrir
alla verður vissulega verðugt hjáip-
artæki öllum þeim sem sjá vilja
aðgengi fyrir alla sem augljósa
staðreynd.
Undirritaður sem Öryrkjabanda-
lagið valdi til setu í umræddri
laganefnd skilaði nokkrum fyrir-
vörum við það frumvarp sem fyrir
Alþingi verður lagt af félagsmála-
ráðherra. Einn þessara fyrirvara
snertir styrki til nárns og tækjakaupa,
en engin sérákvæði eru um framhald
þessara styrkja þó þau væru skýrlega
í gildi í lögunum um málefni fatlaðra.
Þeim er alfarið vísað undir al-
menna ijárhagsaðstoð sveitarfélag-
anna án beinnar tilgreiningar í frum-
varpinu þó vísað sé vel til styrkjanna
í athugasemdum með frumvarpinu.
Sá er uggur okkar að þessir bráð-
nauðsynlegu styrkir geti orðið utan-
garðs, en oft hafa þeir sköpum skipt
fyrir viðkomandi sem fengið hefur og
leitt til atvinnuþátttöku sem annars
hefði ekki verið fyrir hendi. Athuga-
semdir gleymast gjarnan en lagabók-
stafurinn blívur og alla vega ólíkt
erfiðara undan að komast að inna af
hendi ef umsækjandi getur stutt
beiðni sína styrkri tilvitnun í laga-
ákvæði. Enn skal á Alþingi treyst að
það kveði hér skýrt að orði um skyld-
ur sveitarfélaganna. Dýrmæti þess-
ara styrkja dregur enginn í efa í svo
ótalmörgum tilvikum, jafnvel svo að
þeir hafa breytt lífi þeirra til hins
betra sem hlotið hafa.
Fyrirvarar undirritaðs skulu ekki
raktir hér frekar utan það að
nefna til sögu Hringsjá - starfsþjálf-
un fatlaðra. Öryrkjabandalag Islands
hefur farið þess á leit við félagsmála-
ráðherra að þeirri ágætu stofnun
verði sett sérlög og er það mál í ágæt-
um undirbúningi. Hringsjá hefur
áunnið sér verðugan sess á vettvangi
málefna fatlaðra, orðið ótvírætt til
góðs gæfúauka svo ótalmörgum sem
hafa þangað komið í óvissu og án fót-
festu í lífinu en haldið þaðan út í lífið
til þátttöku í frekara námi eða starfi.
Vonandi verða til sérlög um þessa
ágætu stofnun til að tryggja framtíð
hennar sem allra best, fordæmi slíkra
sérlaga eru víða og nægir að nefna
Samskiptamiðstöð heyrnarlausra og
heyrnarskertra, Heyrnar- og tal-
meinastöð íslands og Sjónstöð
íslands, svo aðeins sé vikið að skyld-
um vettvangi þeirra verkefna sem við
er fengist.
H.S.
FRÉTTABRÉF ÖRYRKJABANDALAGSINS
55