Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.03.2000, Side 11
í heitum potti á Nesjavöllum skála vinkonurnar fyrir 50 ára afmæli
Brynju síðasta sumar. Brynja fer oft í sund og heita potta.
Halldóra Anna
Jórunnardóttir:
Hið ókomna
Harma ei hið
liðna amstur.
Aðeins vakna af
værum blundi.
Og taka daginn
sér í faðm.
Heillast af því einu
að fá að vera til.
Ætla sér ei
of mörg spor.
Þó erfitt sé
þá leitum við
eftir styrk í birtunni
og blíðu í myrkrinu.
H.A.J.
Áður birt í Fréttaþjálfanum - blaði
útskriftarnemenda í Hringsjá.
ég er svo ánægð með. Og þar kemur
að góðum notum sá lærdómur sem ég
hef úr lífsins skóla.
Ég hef lært að þiggja af öðrum
sem hafa viljað reynast mér vel,
þegar ég hef þurft á að halda, þrátt
fyrir að ég geti ekki alltaf endur-
goldið nákvæmlega í sömu mynt. En
það eru til ýmsar leiðir að gefa af sér
til annarra.
Otal margt jákvætt hefur komið til
mín, bæði beint og óbeint í blindunni.
Áhugavert fólk og góðir vinir sem ég
hef eignast, sem hefðu hugsanlega
aldrei orðið á vegi mínum annars.
Skilaboð mín til þeirra sem eru að
gefast upp á aðstæðum sínum:
Það er mikilvægt að gera sér grein
fyrir aðstæðunt sínum, sætta sig við
orðinn hlut sem enginn getur breytt.
Byggja sig upp bæði andlega og
líkamlega. Njóta þess sem maður
getur; hætta að syrgja það sem maður
getur ekki lengur.
Finna ný áhugamál, vera jákvæður
og opinn fyrir nýjum tækifærum.
Vera meðvitaður um, að þó einar dyr
lokist, opnast alltaf aðrar í staðinn...“
Oddný Sv. Björgvins.
Mig langaði alltaf svo að keyra bíl - og þarna fékk ég það í fyrsta skipti
á ævinni á grasigrónum flugvelli úti á landi.
lega í volgri sundlaug... heyra óvænt
skvamp þegar mangóávextir duttu úr
trénu við laugarbarminn...“
Brynja er ævintýrakona og talandi
dæmi um, hvernig hægt er að njóta
lífsins, vera lífsglöð og ánægð, þrátt
fyrir erfiða fötlun. Segja má að hún
sé blindur sjáandi með djúpa innri
sýn. Hvað með okkur hin? Notum við
augun nógu vel? Er innsæi okkar ekki
of lokað?
Auðvitað segir Brynja að margt sé
erfitt. „Þessi frelsisskerðing... að
geta ekki gengið út ein þegar mig
langar til, setjast á bekk úti í víðátt-
unni, hlusta á fuglana. Að þurfa að
blanda öðrum í allt, bréf og glugga-
póst. Að geta ekki horft á landslag og
falleg málverk.“
Biturleiki finnst samt ekki, þegar
hún segir: „Blindan opnaði mér
nýjan heim sem ég hefði aldrei
kynnst annars. Hún hefur gert mig
nærnari en ég hefði annars orðið.
Opnaði mér leið inn í starfið mitt sem
FRÉTTABRÉF ÖRYRKJABANDALAGSINS
11