Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.03.2000, Blaðsíða 15
Liðsinni - Opnunarhátíð
Frá opnuninni. Halarnir leika og syngja.
Það var sannarlega margt um
inanninn í Perlunni þegar
opnunarhátíð sýningarinnar
Liðsinni var haldin föstudaginn 11.
feb. sl. Gnótt góðra gesta sótti há-
tíðina og fólk var í hátíðarskapi.
Okkar fulltrúi í því umfangsmikla
starfi er innt var af hendi við undir-
búning sýningarinnar var Helgi
Hróðmarsson og þar réttur maður á
réttum stað eins og við gleggst vitum
hér á bæ. Helgi mun greina frá sýn-
ingunni sem og þeim ráðstefnum sem
haldnar voru á meðan á sýningunni
stóð, en hér aðeins frá opnun hennar
lauslega sagt.
Á móti okkur var tekið umfaðm-
andi hlýjum og hljómfogrum tónum
þeirra Gísla Helgasonar og Haraldar
Gunnars Hjálmarssonar. Formaður
sýningarnefndar, Friðrik Sigurðsson
bauð gesti velkomna, minnti á tilurð
sýningar, umræðu vorið 1998 hjá
FFA og í framhaldi af því ákvörðun
um sýningu og ráðstefnu í samvinnu
sem allra flestra. Hann gat um aðila
sýningarinnar, allt hefði þetta tekið
sinn tíma en góðir hlutir gjörast hægt,
sagði Friðrik.
Sýningin spannaði almenna tækni
sem sértæka. Varaði hins vegar við
því að tæknin, þó góð væri, mætti
ekki stefna mannlegum samskiptum í
voða. Aðalmið sýningarinnar að
mega kanna alla þá möguleika sem
fyrir hendi væru. Hann þakkaði sýn-
endum, styrktaraðilum, fyrirlesurum
og Sýningum ehf.
Kynnir var svo Guðrún Hannes-
dóttir. Páll Pétursson félags-
málaráðherra flutti því næst ávarp.
Hér bæri að fagna því að vakin væri
athygli á góðum verkum til hjálpar
fólki. Það hefði verið sér undravert
gleðiefni að kynnast afreksfólki sem
við mikla fotlun byggi. Þar hefðu
hugvit, uppfinningar og tækniundur
til mikillar hjálpar komið. Ferlimál
væru sífellt að þokast áfram og
minnti í því sambandi á hið óþreyt-
andi starf Jóhanns Pétur Sveinssonar
í þeim efnum meðan hans naut við.
Hann kvað málefni fatlaðra hafa haft
forgang í sínu ráðuneyti, enda hefðu
framlög aukist í ráðherratíð sinni um
85%. Hann kvað brýnt að lífskjör
fatlaðra og lífsaðstæður væru sam-
bærileg við lífskjör annarra.
Minnti að lokum á yfirfærslu mál-
efna fatlaðra til sveitarfélaga frá rík-
inu, frumvarp um félagsþjónustu lagt
fram með fylgifrumvörpum nú á
þessu þingi.
Það frumvarp hefði þjónustuþarfir í
fyrirrúmi.
Þá flutti ávarp fyrir hönd hags-
munasamtaka fatlaðra Ólöf Ríkarðs-
dóttir en hennar ávarp hér birt.
Leikendur úr Halaleikhópnum
fóru þessu næst með atriði úr
leikriti sem Halarnir eru nú að æfa af
kappi og er eftir Eddu V Guðmunds-
dóttur sem einnig leikstýrir verkinu.
Var flutningur með miklum ágætum
og vakti gleðibros gesta. Þá kynnti
Joseph Kaye stuttlega efni fyrirlestrar
sem hann flutti svo á laugardeginum
Hlerað í hornum
Maður einn hóf mál sitt svo: “Áður
en ég tek til máls ætla ég að segja
nokkur orð.”
Prestur áminnti mann einn fyrir það
að koma aldrei til kirkju. Maðurinn
kvað það eðlilegt, því það væru svo
margir hræsnarar sem þangað sæktu.
Þá svaraði prestur: “Heldurðu að þá
muni nokkuð um einn í viðbót.”
en fyrirlesturinn nefndist: Vitrænt
eldhús. Vísast um það til frásagnar
Helga Hróðmarssonar.
Það var svo Ásdís Jenna Ástráðs-
dóttir sem setti sýninguna formlega
og flutti frumsamið ljóð um leið.
Afar góður endir á velheppnaðri há-
tíð en áfram léku þeir svo Gísli og
Haraldur fólki til yndisauka.
Menn þágu svo veglegar veitingar
og síðan skyggndist fólk um sali þar
sem fjöld var forvitnilegra upp-
lýsinga og sýninga á margvíslegum
búnaði, töfratækjum sannkölluðum
þar sem tæknin getur kraftaverk
gjört.
Sýningin var öllum til sanns sóma
og greinilega einstaklega vel verið að
verki staðið af þeim sem um stýris-
taunra héldu. Þeirn er að verðleikum
vel þakkað.
Það hafði gengið óveður yfir og
maður einn fór að huga að leiði for-
eldra sinna. í kirkjugarðinum gekk
hann fram á konu eina sem var mjög
miður sín og spurði hvað amaði að.
Konan kvað stærðar tré hafa fallið
yfir leiði mannsins síns svo stórskaði
hefði orðið af. Þá hraut út úr mann-
inum alveg óvart: “Ja, hann eigin-
maður þinn sálugi hefúr alla vega
ekki meitt sig neitt.”
H.S.
FRÉTTABRÉF ÖRYRKJABANDALAGSINS
15