Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.03.2000, Page 45

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.03.2000, Page 45
endum í ýmsum framhalds- og sér- skólum og á tímabilum er mikið leitað heimilda þar. Fulltrúar félagsins hafa sótt ýmsar ráðstefnur og fundi sem varða mál- efni okkar hóps barna, bæði sem áheyrendur og fyrirlesarar. Stuðningshópur foreldra ofvirkra á vegum Ingibjargar Karlsdóttur fé- lagsráðgjafa hjá Reykjavíkurborg hittist vikulega í allt haust í húsnæði félagsins og fékk þangað ýmsa gesti til að reifa málin. Ingibjörg er með þjónustuver fyrir foreldra og börn. Þær eru enn á umræðustigi en orð eru til alls fyrst og munu tillögurnar hafa fengið jákvæðar undirtektir innan borgarkerfisins. Fyrir nokkrum árum gáfu leik- skólakennarar á leikskólanum Furu- borg út bók um umhverfisverkefni sitt Vatnið. Varð nokkur ágóði af út- gáfunni eða 30.000 krónur sem hópurinn ákvað að færa Foreldrafé- laginu að gjöf. Verður fénu varið til að styrkja íjórðu útgáfu Starfs og stefnu sem á að koma út með vorinu. Lokakafli þessarar greinargerðar fjallar svo um það sem kannski bar hæst á starfsárinu. Hér er auð- vitað átt við fimmtu norrænu ráð- stefnuna um athyglisbrest með of- virkni / misþroska ásamt forráðstefnu sem haldin var að Hótel Loftleiðum dagana 7. til 9. október 1999. Undir- búningur hafði staðið um langt skeið, fundarstaður var ákveðinn strax haustið 1996 en eftir fund norrænu samstarfsnefndarinnar á íslandi haustið 1998 tók við langt og strangt undirbúningsferli. Það mæddi annars vegar að mestu á Málfríði Lorange sálfræðingi og Matthíasi formanni fé- lagsins, og hins vegar á innanlands- deild ferðaskrifstofunnar Urvals-Ut- sýnar. Málffíður og Matthías önn- uðust öll samskipti við fyrirlesarana 20 og tóku þátt í öðrum undirbúningi með ferðaskrifstofunni við að koma 220 erlendum gestum til landsins, koma þeim fyrir í húsnæði og gæta þess að þeir hefðu um nóg að hugsa allan tímann. Forráðstefnuna sóttu um 290 manns, þar af um 140 íslendingar, og aðalráðstefnuna um 340, þar af 120 íslendingar, svo ljóst er að margir náðu sér í mikilvægan fróðleik frá fyrstu hendi virtustu vísindamanna og sérfræðinga frá Norðurlöndum, Kanada, Bandaríkjunum og Hollandi. Þessi ráðstefna skar sig reyndar úr með því að alls voru ijórir aðalfyrir- lesaranna ekki Norðurlandabúar, en einungis einum „erlendum” gesti hafði verið boðið á fyrri ráðstefnur hverju sinni. Ráðstefnunni lauk svo með lokahátíð í Perlunni sem skartaði sínu fegursta. Við kynntum m.a. bókasafn félagsins og vakti það mikla athygli norrænna gesta, enda að drjúgum hluta keypt í Bandaríkjunum. Annað efni er keypt í Danmörku og víðar. Að ráðstefnunni lokinni ríkti mikil ánægja með framkvæmdina alla og ég held að ég geti fullyrt að út- lendingarnir hafi ekki átt von á því að allt gengi svo vel upp sem raun bar vitni hér á Islandi. Allir fyrirlesarar mættu og óvenju fáir gestir afboðuðu sig. Skýrsla ráðstefnunnar fæst keypt hjá félaginu ásamt eldri skýrslum en þar er sú danska frá 1996 bitastæðust. Þegar upp er staðið verður tap á ráð- stefnunni um 340.000 krónur auk áður útlagðs kostnaðar félagsins upp á nær 500.000 krónur en undir- búningsnefndin mun leggja sig fram um að útvega það fjármagn svo fé- lagið sitji ekki uppi með skaðann. Fé- lagið hefur einungis rúma milljón króna til starfsemi sinnar árlega svo því er þröngur stakkur skorinn, einu föstu styrkirnir berast frá ÖBÍ og Reykjavíkurborg. í félaginu eru nú um 560 manns. Stjórn Foreldrafélags misþroska barna er sannfærð um að starfsemi fé- lagsins sé orðinn ómissandi þáttur í þjónustu við börn með athyglisbrest með ofvirkni / misþroska og fagnar auknum skilningi í samfélaginu þótt enn sé langt í land með að allir geri sér grein fyrir að vandamálið er líf- fræðilegt en ekki lélegt uppeldi eða eitthvað annað. Tilgangur félagsins er sá einn að fræða og því verður haldið áfram svo lengi sem kraftar og fjár- magn leyfa. Við viljum að lokum skora á önnur aðildarfélög ÖBI að kynna starfsemi sína reglubundið með greinum í þessu blaði til að auka gagnkvæman skilning okkar allra á högum skjól- stæðinga ÖBÍ. Matthías Kristiansen Dvöl á Heilsustofnun NLFÍ r Eg heiti Eiríkur Vernharðsson og er með MS sjúkdóminn. Ég ætla að segja ffá dvöl minni á Heilsuhæli NLFÍ í Hveragerði en þar hef ég dvalið og náð betri heilsu þegar ástandið er sem verst hjá mér. Aðbún- aður er á allan hátt góður þarna og sérffæðingar á hverju sviði. Þarna er t.d. nudd, sjúkraþjálfun, leir- böð, heilsuböð og margt fleira svo ekki sé talað um matinn sem er alveg frábær. Þarna er líka tekið á andlega þætt- inum ekki siður en þeim líkam- lega, en það er að mínu mati ekki síður mikilvægt. Á Heilsustofnun er starfandi kínverskur læknir sem er menntaður í nálastungum og veitir hann t.d. meðferð við verkjum, sem hefur reynst mjög vel. Það er reynt á allan hátt að láta fólki líða sem best á allan máta og starfsmenn vita svo sannarlega hvað á að gera. Þarna eru sér- fræðingar, hver á sínu sviði. Læknarnir eru mjög góðir og margir menntaðir í endurhæfingu og eru reiðubúnir að hjálpa. Hver starfs- rnaður leggur sitt af mörkum þannig að dvöl gesta megi verða sem ánægjulegust. Þetta er staður fyrir jafnt unga sem aldraða, sjúka sem heila en vissulega eiga allir við sitt að etja. Því miður kemur ríkið ekki meira að málinu en það gerir því að þörfin er mikil og margir þurfa aðstoð Jjárhagslega, því dvölin er ekki ókeypis og margir eiga ekki kost á að vera á Heilsustofnuninni þó að þörfin sé augljós. Kannski ætti að tekjutengja þetta eins og svo margt annað. Ég hef alla vega allt gott um veru mína á Heilsustofnun að segja og mæli eindregið með Heilsustofnun NLFI. Eiríkur Vernharðsson. Eiríkur Vernharðsson FRÉTTABRÉF ÖRYRKJABANDALAGSINS 45

x

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands
https://timarit.is/publication/1440

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.