Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.03.2000, Side 47
þingmanna Vesturlands. Fagnaði til-
komu heimilisins og minnti á hve
margt hefði gjörst í málaflokknum á
ótrúlega skömmum tíma. Hún
sagðist eiga þá ósk heitasta að svo
vel yrði fyrir réttindum fatlaðra séð
að engin sérlög þyrfti. Bað íbúum og
starfsfólki blessunar.
Bæjarstjórinn, Gísli Gíslason tók
síðast til máls og kvað mikinn sóma
að þessu heimili í bænum, enda allt
fyrsta flokks.
Bar lof á heimaverktaka sem
sannarlega hefðu sínu skilað.
Afhenti svo forstöðumanni heimil-
isins, Siggerði Sigurðardóttur gjöf til
heimilisins frá Akranesbæ.
Á eftir þágu menn gómsætar veitin-
gar og skyggndust urn salarkynni sem
hin vistlegustu eru, þar sem fyrir öllu
virðist hafa verið vel séð.
Til að fá nokkurn frekari fróðleik
numið um heimilið sló ég á
þráðinn til framkvæmdastjórans,
Magnúsar og innti hann nánar eftir
upplýsingum sem rétt væri hér að
festa á blað.
Stærð hússins að Laugarbraut 8 er
410 fm. Þar eru 6 íbúðir, annars
vegar 27 fm. og hins vegar 38 fm. 4
flytjast inn strax, sá fimmti er svo
væntanlegur, en sjötta íbúðin verður
leigð í ár manni sem er að reyna að
ná þreki og færni eftir alvarlegt áfall.
Magnús segir að mjög rækilega hafi
verið farið út í að greina þarfir þeir-
ra sem væntanlega myndu flytjast
inn. Þrátt fyrir þessa ágætu lausn
kvað Magnús nær öruggt að fleiri
myndu á næstu árum banka upp á
varðandi húsnæðisúrlausn. Ætlunin
með skipulagi heimilisins er að hver
og einn hafi gott einkarými sem aðal-
dvalarstað en svo er ágætt sameigin-
legt rými, sameiginleg stofa, borðstofa
og eldhús þar sem heimilismenn geta
borðað ef því er að skipta.
Hins vegar reiknað með því að ein-
hverjir eldi sjálfir svona yfirleitt.
Eins og áður er ífarn komið er Sig-
gerður Á. Sigurðardóttir forstöðu-
maður heimilisins en hún er
þroskaþjálfi að mennt. Reiknað er
með 10 stöðugildum inn á heimilið
a.m.k.
Magnúsi eru þakkaðar upplýs-
ingarnar og við hér á bæ árnum
heimilismönnum og aðstandendum
öllum alls hins besta.
H.S.
Svessi:
Fötiun
Inngangur: Margt mætagott efni er að finna í
Fréttaþjálfanum nýjasta sem sagt er frá annars staðar. Rit-
stjóri staldraði við ljóð Svessa sem er skáldaheiti en Svessi mun heita
Sverrir Daðason. Þykir ritstjóra kjörið að birta þetta hér.
Fötlun
Ég átti mínar vonir, ég átti vonir og trú
mig dreymdi um frægð og frama alveg eins og þú.
En draumarnir þeir hljóðnuðu eins og lítið fallegt lag
bara ég gæti gert það sama, og þú varst að gera í dae.
Þú vaknar oftast þreyttur og kemur þreyttur heim
það er erfitt að vera verkamaður og þú ert einn af þeim.
Ég vildi að ég væri þreyttur og sofnaði er dagur dvín.
Það sem þér finnst svo eðlilegt, er heitasta óskin mín,
Oft ég velti fyrir mér hvað það er sem tekur við.
Og af hverju ég er eins og ég er en ekki eins og þið.
Af hverju varð heimur minn ekki eins og þinn?
Allt sem þér finnst svo hversdagslegt, er dýrasti draumur minn,
Þeir gáfu mér stundum vonir en ég vona aldrei meir
því ekkert er eins kvalafullt og lítil von sem deyr.
Fyrir þér er margt svo leiðinlegt og svo margt sem angrar þig
en það sem er þér til ama, væri skemmtun fvrir mig,
Heilbrigði á sál og líkama væri “paradís” fyrir mig
en fyrir utan vetrarkvefið er það daglegt brauð fyrir þig.
En hlúðu vel að heilsunni, hvernig sem allt fer
því allt sem er mér svo hversdagslegt, óska ég aldrei þér.
Svessi
Eftirmáli: Svessi notar ekki ypsilon, en hann verður að fyrirgefa ritstjóra
þó hann breyti þessu alls staðar. Ef ekki þá héldu menn að svona væri nú
íslenskukennslan og kunnáttan í Hringsjá.
Ritstjóri.
Astma- og ofnæmisfélagið
Eins og lesendur eiga að vita þá er SÍBS sem nú stendur fyrir Samband ís-
lenskra berkla- og brjóstholssjúklinga fjölmennasta félag bandalagsins þ.e.
um einn þriðji félagsmanna í aðildarfélögum okkar er frá SÍBS.
Þetta er að vonum þar sem innan vébanda SÍBS eru auk stofnendanna, berkla-
sjúklinga: hjartasjúklingar, lungnasjúkir og astma- og ofnæmissjúkir.
í síðasta tölublaði SÍBS frétta er pistill góður um Astma- og ofnæmisfélagið.
Þar er greint frá nýrri stjórn sem hefur sett sér ýmis verkefni s.s. merkingu mat-
væla með merki félagsins, útgáfu fræðslupakka fyrir kennara og söfnun upp-
skrifta fyrir ofnæmissjúka.
Heimasíða efld stórlega, regluleg fræðslukvöld, áhugahópar myndaðir o.s.frv.
Astma- og ofnæmisfélagið hefur aðsetur að Suðurgötu 10 og síminn er 552-
2150 - skrifstofa SÍBS. Stjórn Astma- og ofnæmisfélagsins skipa nú: Ingólfur
Harðarson formaður, Dagný Lárusdóttir varaformaður og aðrir í stjórn: Björn
Rúnar Lúðvíksson, Dórothea Einarsdóttir, Jóhanna Margrét Einarsdóttir, Lilja
Jónsdóttir og Sigmar B. Hauksson.
Við hér á bæ munum reyna að fá viðtal við formanninn nýja í næsta blaði.
H.S.
FRÉTTABRÉF ÖRYRKJABANDALAGSINS
47