Spássían - 2011, Blaðsíða 4
4
ÞETTA ER Í FYRSTA SINN sem Borgarbókasafnið stendur fyrir
leshringjum og eru þeir hluti af lestrarátakinu „Reykjavík les“.
„Við prufukeyrðum leshring fyrir starfsfólk bókasafnsins í fyrra,
undir stjórn Úlfhildar Dagsdóttur, og nýtum okkur reynsluna af
því,“ segir Jónína. „Hugmyndin er sú að við komum leshringjunum
af stað, starfsmaður safnsins stýri fyrstu fundunum og komi með
uppástungur að bókum til að lesa. Þátttakendur haldi svo áfram
sjálfstætt og skiptist á að taka að sér fundarstjórn. Sjálfri finnst
mér þó svo gaman á fundum að ég vil gjarnan halda áfram að
mæta.“
Í upphafi fyrsta fundarins kynnti Jónína fyrirkomulagið og
dreifði hagnýtum leiðbeiningum um skipulag leshringja sem
starfsfólk safnsins hafði viðað að sér héðan og þaðan af netinu,
þar sem finna má ráðleggingar á borð við að ákveða hentugan
fjölda einstaklinga í slíkum hring og hvernig fá má alla til að taka
þátt. „Ég er einnig með punkta með leiðbeiningum um það
hvernig koma má umræðum um bók af stað. Það má til dæmis
spá í það hverjar lykilpersónurnar eru, í hvaða stíl bókin er skrifuð,
hvað fólki líkaði og líkaði ekki við bókina og hvaða áhrif hún
hafði á sínum tíma. Í því samhengi benti ég þátttakendum á að
mikið efni er til um íslenska höfunda og bækur á Bókmenntavef
safnsins.“
Jónína segir fólk ánægt með framtakið. „Einn fastagestur
sagðist meir að segja vilja hafa fundina oftar en einu sinni í
mánuði. Við vitum að fólk er oft mjög upptekið en ef hópurinn
vill getur hann ákveðið að hittast oftar. Okkur virðist sem fólk sé
virkilega áhugasamt og ég veit um eina sem tekur þátt í öllum
þremur leshringjunum.“
Vill kryfja verkin
Arndís Sævarsdóttir segir að sig hafi lengi
langað til að taka þátt í svona leshring. „Hér
var tækifærið komið og fínt að vera með
einhverjum sem ég þekki ekki neitt, því þá
fer maður ekki að tala um eitthvað annað en
bækurnar.“
Hún segist alltaf hafa lesið mikið en
haft áhuga á því að kryfja sumar bækurnar
aðeins meira. „Maður gerir það þó miklu
síður einn. Hér er hægt að vega og meta
bækurnar í sameiningu og fá sjónarmið annarra. Ég hlakka því
til að koma ef mér finnst bækurnar skemmtilegar og heyra hvað
hinum finnst.“
Bókin sem stendur upp úr hingað til að mati Arndísar er
Túlkur tregans. „Þetta er frábær bók. Maður sér alveg muninn
á evrópskum og indverskum hugsunarhætti og það eru svo
fallegar lýsingar í bókinni. Hún er auðlesin, þægileg, falleg og vel
þýdd af Rúnari Helga Vignissyni. Mér fannst líka bók Þórunnar
Erlu-Valdimarsdóttur, Kalt er annars blóð, mjög góð. En svo kom
ég á fund og fékk að heyra að einhverjum öðrum fannst hún
glötuð! Það eru mjög ólík sjónarmið í þessum hópi.“
Saknaði þess að ræða um bækur
„Mér finnst gaman að lesa en mér finnst líka mjög gaman að
ræða um bækurnar við einhvern annan, að fá annað sjónarhorn,“
segir Katrín Kristinsdóttir. „Í vinnunni hjá mér var um tíma hópur
sem las heilmikið. Við lásum stundum sömu bækurnar og þá var
svo gaman að ræða um þær. Nú er þetta fólk farið annað og
ég sakna þess svolítið að geta ekki rætt um bækur. Svo var líka
fremur rólegt hjá mér í vetur og þetta var öðrum þræði tækifæri
til að komast út og fá félagsskap. En fyrst og fremst var það
bókmenntaáhuginn sem rak mig af stað.“
Katrín segir að hingað til standi Glæpir að hennar mati upp úr,
frásögn af sönnum atburðum í Þýskalandi. „Þetta eru alvarlegir
glæpir en fólk fær létta refsingu vegna aðstæðna. Hún er vel
skrifuð, textinn rennur svo vel, en líka skemmtileg. Í henni má
lesa um mannlega breyskleika og neyð en líka um það hvernig
rætist úr oft á tíðum.“
Skrafað á
bókasafninu
Eftir Auði Aðalsteinsdóttur
Þrír leshringir hófu
göngu sína hjá
Borgarbókasafni nýlega
og munu þeir halda
áfram eins lengi og
áhugi er fyrir hendi.
Fyrstu fundirnir lofa
góðu, segir Jónína
Óskarsdóttir, sem stýrir
hringnum „Kvenna- og
karlabækur“ sem fer
fram í Ársafni. Um tíu
bókaormar á ýmsum
aldri mæta þar vel lesnir
og fúsir til að tjá sig.
Auk leshrings Jónínu er boðið
upp á tvo leshringi í Aðalsafni
Borgarbókasafns. Ingvi Þór
Kormáksson sá um að koma
hring um glæpasögur af stað
og Ingibjörg Hafliðadóttir
byrjaði með hringinn „Gamalt
og gott“.
Katrín Kristinsdóttir og Arndís Sævarsdóttir
Jónína Óskarsdóttir