Spássían - 2011, Síða 36

Spássían - 2011, Síða 36
 36 SÖGURNAR í bókinni Bavíani einkennast af því að dregin er upp mynd úr lífi persónu á augnabliki þegar eitthvað fer úr skorðum; fólk fer úr jafnvægi, finnur til öryggisleysis og verður (stundum bókstaflega) nakið og varnarlaust. Það sama hendir reyndar gjarnan lesandann, því lestrarreynslan getur verið óþægileg og truflandi. Enda er það markmiðið, segir höfundurinn. Við eigum að trufla hvert annað. En þótt aðferðin við að skrifa hafi á þennan hátt sprottið upp úr ástandinu í samfélaginu fjalli sögurnar fyrst og fremst um tilvistarleg vandamál. KNAPPUR STÍLL OG HRYNJANDI Um miðjan maí mætti Naja Marie til leiks á höfundakvöldi í Norræna húsinu og svaraði spurningum þýðanda síns og lesenda, því þegar hafa fjölmargir Íslendingar lesið verk hennar á frummálinu. Í máli þýðandans, Ingunnar Ásdísardóttur, kom fram að þar sem texti Naju Marie er oft knappur, með einföldum og hnitmiðuðum setningum og hvert orð úthugsað, hafi stundum tekið sinn tíma að finna réttu orðin í þýðingunni. Naja Marie sagði það vissulega hafa haft sín áhrif að hún hóf sinn feril sem ljóðskáld. Þaðan kæmi til dæmis áhersla hennar á að segja ekki of mikið. Þegar hún las upp úr smásögunni „Bulbjerg“ á dönsku mátti að auki greina hversu mikil hrynjandi er í textum hennar, nokkuð sem ekki er jafn augljóst í íslensku þýðingunni þótt þýðandanum hafi tekist vel að fanga andrúmsloft sagnanna. Naja Marie er orðin nokkuð kunnug Íslandi, enda er þetta í þriðja skipti sem hún kemur hingað til að kynna verk sín og taka þátt í umræðum um þau. „Ég er farin að rata aðeins um miðborgina,“ segir hún ánægð á kaffihúsi daginn eftir höfundakvöldið. Hún bætir þó við þeirri einlægu ósk að það fari nú að hlýna hjá okkur og sumarið að koma. STEPHEN KING MÆTIR HERMAN BANG Sögurnar í Bavíana einkennast af því að vera eins og brot úr lífi persóna á ögurstundu og oft er skilið við þær án þess að lesandinn fái nokkra úrlausn. Naja Marie segist sækja hér í sterka danska smásagnahefð. „Herman Bang var sérstaklega frægur fyrir þetta. Sögurnar hans voru reyndar lengri þannig að maður náði að kynnast persónunum mjög vel þótt atburðirnir væru ekki alltaf ógurlega dramatískir. Sjálf vil ég hafa mikla orku í sögunum mínum; byrja af krafti og halda orkunni allt til enda. Það er ómögulegt að halda slíkum krafti í gegnum heila skáldsögu, það væri of þreytandi, en smásagan býður upp á það. Persónurnar þurfa heldur ekki að þróast, eins og í skáldsögum, það er hægt að skilja við þær án þess að þær hafi unnið á nokkurn hátt úr því sem gerðist. Þegar ég skrifaði Bavíana notaði ég reyndar mikið aðferðir Stephens Kings; að láta eitthvað óhugnanlegt birtast skyndilega og hræða líftóruna úr persónunum. Það má segja að þar mæti ljóðrænn frásagnarháttur hinum brjálaða heimi Stephens Kings í tilraun til að skapa spennu.“ AÐ LÍTA ÚT FYRIR KYNIÐ Naja Marie notar þó mun margvíslegri aðferðir til að koma lesandanum úr jafnvægi. Hún raskar til dæmis fyrirfram gefnum hugmyndum um mikilvægi kynjahlutverka með því að þvinga stundum lesandann til að samsama sig sögupersónu áður en í ljós kemur af hvaða kyni persónan er. „Ég vildi kanna hvaða merkingu kynið hefur í bókmenntum og hvort það hafi einhverja merkingu. Ég er ekki ennþá viss hvert svarið er en tel það áhugavert fyrir höfunda að hugsa um kyn á opnari og frjálslegri hátt. Venjan er að skrifa um konur á ákveðinn hátt og karla á annan hátt en mér finnst áhugavert að sjá hvort þessi svæði skarist ekki; reyna að komast að því hvað er mannlegt og sameiginlegt og hvað er kynbundið. Og ég held að kynið skipti ekki svo miklu máli. Það skiptir miklu máli í samfélaginu því konur búa ekki við jafnrétti, en í bókmenntunum höfum við frelsi til að gleyma því öllu. Í ljóðum er til dæmis oft ekki hægt að sjá hvort sjálfið sem talar er karl eða kona – og við þurfum ekki að vita það.“ LÍKAMLEG SKRIF Persónurnar í Bavíana verða áþreifan- lega varar við eigin viðkvæmni, ekki síst líkamlega, og Naja Marie segir að hún hafi verið að bregðast við góðærinu sem var í hámarki í Danmörku um það leyti sem hún skrifaði bókina, eða árið 2005; efnishyggjunni, sjálfhverfunni, kröfunni um fullkomnun og fjarlægð veikinda og dauða. „Það var oft eins og fólk héldi að það myndi aldrei deyja. En á sama tíma fór fólk að þjást af stresssjúkdómum, brenna út. Því þrátt fyrir atvinnuleysi var samkeppnin um að græða sem mest í algleymingi og margir stóðust ekki álagið. Svo varð það skyndilega fólki sjálfu að kenna ef það varð veikt; það átti bara að borða hollt eða hætta að reykja. Þessi nýi hugsunarháttur var hálf fasískur að mínu mati, og orð eins og samstaða og gjafmildi hurfu næstum úr tungumálinu. Persónurnar í sögunum mínum telja sig geta komist af án annarra og að þær þurfi ekki að hjálpa öðrum. En einhver eða eitthvað truflar þær og stundum komast þær að því að þær þurfa á þessari truflun að halda; öðru fólki.“ Naja Marie tók þá ákvörðun að nálgast efnið á líkamlegan hátt, að lýsa til dæmis reynslu sögupersónanna með líkamlegum viðbrögðum þeirra fremur en hugsunum. Enda sé ómögulegt að líta fram hjá því að líkaminn er mjög viðkvæmur. Þetta kemur vel fram í sögunni „Mýflugnabiti“, þar sem sterkur og hraustur einstaklingur brotnar niður Eigum að trufla aðra Bókmenntir eru alltaf viðbragð við því sem er að gerast í heiminum í kringum okkur, segir danski rithöfundurinn Naja Marie Aidt. Smásagnasafn hennar, Bavíani, sé engin undantekning. Í sögunum hafi hún brugðist við þeirri efnishyggju, einstaklingshyggju, sjálfselsku og útlitsdýrkun sem einkenndi fyrir nokkrum árum danskt samfélag; ekkert síður en íslenskt. Eftir Auði Aðalsteinsdóttur

x

Spássían

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Spássían
https://timarit.is/publication/1454

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.