Spássían - 2011, Síða 38

Spássían - 2011, Síða 38
 38 Músan og klósettburstinn Í SÖGUNNI „Grænn myrkviður“ eftir Naju Marie Aidt segir frá manni sem þjáist af kvíða. Hann hefur einangrast frá mannlegu samfélagi en ráfar angurvær um í náttúrunni og faðmar tré. Maðurinn er truflaður af ungri konu í einni af þessum heilögu stundum sínum og það kemur róti á líf hans, vekur hann að einhverju leyti aftur til lífsins, þótt í lokin sé óljóst hversu langt það nær. Naja Marie bendir á að maðurinn á gangi í náttúrunni tengist mjög gamalli, rómantískri mýtu og hún leiki sér að vissu leyti að þeirri klisju. „Hvernig stendur til dæmis á því að konur eru aldrei á gangi í náttúrunni? Er það ekki skrítið? Það hlýtur að vera út af því að karlar hafa svo mikinn tíma.“ Hún segir að sagan fjalli þó ekki síður um það hvernig karlar horfa á konur. Hún er sögð frá sjónarhorni karlsins og í upphafi er stúlkan lítið meira en falleg mynd sem vekur með honum upphafnar tilfinningar. En í lokin kemur hún honum á óvart, hún reynist sterk kona, ekki saklaus stúlka. Um leið verður hún að fullgildri sögupersónu; við fáum meiri upplýsingar um hana og allt aðra mynd af henni; raunverulegri og nákvæmari. Við fáum einnig að vita að hún er pirruð því hún hafði vilja sofa hjá manninum en hann ekkert gert í því. Það kemur honum í opna skjöldu því hann hélt að þetta væri svo upphafið rómantískt samband. „Ég þekki svo marga menn eins og hann,“ segir Naja Marie. „Þeir verða kannski ekki ástfangnir af trjám en þeir taka sjálfa sig svo hátíðlega.“ Naja Marie veitir því hátíðleikanum viðnám í sögum sínum. Hún bendir á að á vissum tíma í bókmenntasögunni hafi höfundurinn verið hafinn upp úr því að vera bara skemmtikraftur, eins og á tímum Shakespeares, í veru sem situr í turninum sínum og skrifar List. „Það er mjög karlmannlegt fyrirkomulag því fyrir það fyrsta lifa konur ekki svoleiðis lífi; þær eignast til dæmis börn og hafa í gegnum tíðina ekki haft tækifæri til að sitja í rólegheitum og skrifa. Það er þessi upphafna ímynd sem ég vil stilla mér upp á móti.“ Á skáldskaparsviðinu hefur hefðbundið hlutverk kvenna lengi verið bundið við það að vera karlskáldum yrkisefni og innblástur, og er gjarnan talað um músur í því samhengi. Í grískri goðafræði var hlutverk músanna, listgyðjanna, að blása (karl)Skáldum skáldskaparanda í brjóst og í skáldskapnum sjálfum var ávarp til þeirra hluti af frásagnartækni sem gerði Skáldinu kleift að beina athyglinni að sjálfu sér og setja hæfileika sína á stall sem guðdómlega. Enn í dag setja ung Skáld sig í hátíðlegar stellingar og ávarpa músurnar sínar „fegurðinni og veröldinni til heilla“. En nú bregður svo við að músurnar virðast þreyttar á að þjóna á þennan hátt uppskrúfaðri sjálfsmynd karla: skólastrákur hallar sér einlægur fram og horfir djúpt í augu músunnar sinnar: þú ert eina konan sem hefur skilið mig hann er með fellibyl í hjartanu fegurðinni og veröldinni til heilla hún með klósettbursta í hendinni og kann ekki við að reka skaftið upp í rassgatið á honum (23) Í þessu ljóðabroti úr nýrri bók Kristínar Svövu Tómasdóttur, Skrælingjasýningunni, gerir hið upphafna viðfang þó ekki aðra uppreisn en að hugsa sitt (og kannski er þarna vottur af vorkunnsemi, karlskáldin eru svo ansi viðkvæm á sínum einlægustu stundum og myndu kannski aldrei ná sér fengju þau klósettburstann í rassgatið einmitt á því augnabliki). En það gæti verið fyrsta skrefið að rífa allt heila klabbið niður í huganum. Skrælingjasýningin er í svipuðum dúr og fyrri bók Kristínar Svövu, Blótgælur: Hún einkennist af óþoli gagnvart hinu upphafna og tilraunum til að draga allt og alla niður af stallinum, niður á jörðina þar sem við getum öll mæst á jafnréttisgrundvelli. Og það er auðveldara ef við ímyndum okkur þá sem við berum lotningarfulla aðdáun fyrir „prumpandi undir sænginni“ – sem „félaga mann“. (19) „Krass! Búmm! Harmafregn!“ (5) Í fyrstu línu hrynur bókin með hamagangi í fangið á lesandanum og göslast svo með ákefð af stað. Frásagnarmátinn sjálfur er mótspyrna gegn lágstemmdri, „þroskaðri“ ljóðlist og í honum felst styrkur þessara ljóða. Hér er mættur uppreisnargjarn unglingur ljóðabókanna með kjaft, stæla og útúrsnúninga á milli þess sem hann veltir sér upp úr ástarjátningum sem „skilja eftir sig óbragð í munninum“ - og upp úr tilgangsleysi heimsins: Tómur er heimur, þungur minn hugur, lauflétt mitt frelsaða hjarta (15) Það þýðir ekki að leita hér að einhverju sem snertir við tilfinningunum, einhverju sem heillar, töfrar og tælir. Markmiðið er niðurrif hins háleita og það er hressandi, stuðandi, skemmtilegt og frelsandi. Eftir situr boðskapurinn um að við eigum ekki að eira neinu, ekki að upphefja neitt: og til hvers erum við hér ef ekki til að níða það sem er ranglega heilagt? (tímgast og rotna) (11) Eftir Auði Aðalsteinsdóttur

x

Spássían

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Spássían
https://timarit.is/publication/1454

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.