Spássían - 2011, Page 40

Spássían - 2011, Page 40
 40 Ísland er á jaðri heimsins – landið sem allir þekkja (takk, Björk!) en enginn veit neitt um nema eldfjöll, hveri, álfa, fjallagrös, fallvötn, tröll og goðsögur (takk, Björk!). Það er hætt við að hugtakið „framandgerving“ falli flatt þegar maður ræðir um birtingarmyndir Íslands í útlendri ljóðlist, einfaldlega vegna þess hve augljóslega landið er framandi – hve lítið þarf til þess að gera það framandlegt – náttúran er eitt, náttúran á myndum er annað og enn annað (og mikilvægast) er að til Íslands hefur nánast ekki komið kjaftur. Fyrir bróðurpart jarðarbúa – jafnvel okkar nánustu frændur annars staðar á Norðurlöndum – er Ísland „framandi í sjálfu sér“ – og framandleiki þess sprettur kannski líka af nálægð þess: Vesturlandabúar beggja vegna Atlantsála eru sér meðvitaðir um að Ísland er þarna, þeir þekkja Björk, kannski Jón Pál eða Reykjavíkurfundinn, heiðursborgarann Bobby Fischer, kreppuna eða Geysi. En Íslendingurinn og Íslandið sjálft eru svo lítil og fjarlæg, lengst úti í hafinu – dálítið einsog sjaldgæfur fugl sem allir þekkja af mynd en fæstir hafa séð. Ísland sem tákn verður alltaf dálítið einsog Nangijala, Narnía, Pandóra eða Endor – aðraður staður og annarlegur, í senn saklausari og grimmari, náttúrulegri, réttlátari, fallegri og sérvitrari, utan við það sem „við hin“ (meginlandsbúar hins „eiginlega heims“) köllum veruleikann. Og þessi annarlegi, nýi veruleiki verður stöðugt eftirsóttari eftir því sem meginlandsveruleikinn verður eins – mótaður af sömu alþjóðlegu keðjunum og sömu straumunum í byggingarlist, auglýsingahönnun og fatnaði (ekki svo að skilja að það eigi ekki einnig við um Ísland, en við erum kannski meira að tala um gullna hringinn en Smáralind). The Grefsen Address eftir Paal Bjelke Andersen Góðir Íslendingar og við sem búum við hin ystu höf og drjúgur hluti þjóðarinnar, bláfátækt bjargarlítið manndómsfólk sá enga útleið aðra en að yfirgefa landið og leita allslaus á vit hins óþekkta á sléttum Norður-Ameríku og þjóð sem fékk loks fyrsta stóra skammtinn af frelsinu og þeir einstaklingar sem gegna um skeið háum stöðum og öflugir menn og fylgnir sér sem geta einatt haft úrslitaáhrif og þeir 24 menn sem hafa farið með þjóðarforystu síðastliðin eitt hundrað ár og voru margvíslegum hæfileikum búnir og aðrar þjóðir sem hafa forskot á Íslendinga sem mælist ekki í metrum heldur áratugum eða öldum og við sem þurfum trú á mátt og megin, á manndóm, framtíð, starfsins guð og við sem er hollt að minnast á þessum tímamótum og hinn óbilgjarni erlendi andstæðingur sem sameinar þjóðina til átaka og við sem eigum við okkur sjálf […] Norska ljóðskáldið Paal Bjelke Andersen ritar í bókina The Grefsen Address – sem skrifuð er (og kópípeistuð) á öllum norðurlandamálunum, unnin upp úr áramótaræðum norrænna forseta og forsætisráðherra. Í Íslandshluta ljóðabókar Paals Bjelke er landið speglað einsog við sjáum það, eða að minnsta kosti þau okkar sem tilheyra tyllidagavaldinu, með því að sigta út, velja og raða upp setningum sem innihalda fólkið í ræðunum, þjóðernið í ræðunum, staðina í ræðunum og svo framvegis. Paal Bjelke tjáir sig ekki um Ísland frá eigin brjósti heldur bregður einfaldlega upp linsu, filter og lætur okkur síðan sjálf um að tala (eða þann fulltrúa okkar sem má heita að heyrist hæst í); kópípeistar án þess að skeyta um höfundarétt eða sæmdarrétt, einsog stjórnmálamennirnir sjálfir vitna í ræðum sínum þvers og kruss í Hannes Hafstein og Einar Ben af tilfallandi virðingu við samhengið – fyrir utan auðvitað skáldmæltar klisjurnar sem hrjóta af vörum þeirra sjálfra og eiga að heita þeirra eigin frumlega hugsun. Svo má skoða ræðurnar í norrænu samhengi, bera saman bækur – á meðan Dönum er tíðrætt um Danmörku, tala Norðmenn oftar um útlönd og Íslendingar um hæðir og hóla. The Grefsen Address veitir þannig ljóðræna yfirsýn yfir opinberan talanda á Norðurlöndum, yfirsýn sem hægt er að rýna í einsog súlurit og hagtölur – þótt hún sé auðvitað ólíkt skemmtilegri. Hell eftir Eileen Myles The Russians landed and the Americans landed / and the Nazis and the Vikings landed / and the Norwegians took over / even some Irish monks in a curragh / had a time with us / but we stood strong and now we are famous and / rich / Björk is the world’s brightest star / Better than Beck / stronger than Madonna / Now without ever having to become dumb / Inside the well of our very great and ancient / language we laugh at the current situation […] Silence, we are guy geysers, we are volcanic / We are old like planet itself; and yes you are right / we are cold, / cold, / cold. ljóðskáld úr meðvituðum vinstrikreðsum (fyrir utan allt annað er það tabú). Ekki svo að skilja að sama sentiment sé ekki oft til staðar í sósíalískum þjóðvísum, þessi fögnuður þjóðernisins, heldur er hann dormant, svo að segja – undirliggjandi, í felum á bakvið myndlása. Maður spyr sig (kannski ekki óhjákvæmilega, en spyr sig samt) hvort hugsast geti að hér fari eftirlíking þjóðerniskenndar – að þegn heimsveldisins (bandaríska ljóðskáldið Eileen Myles, eða hennar prívat plús-ex) finni fyrir ákveðnum þjóðernisfögnuði sem „ekki megi“ fá útrás fyrir, af því hún er jú þrátt fyrir allt hvorki Rush Limbaugh, Styrmir Gunnarsson, Walt Whitman eða Matthías Jochumsson, en út vilji fögnuðurinn engu að síður. Einhvern veginn varð þjóðernisfögnuðurinn yfirgangi 20. aldarinnar að bráð án þess að tilfinningin eða þörfin hafi verið gerð upp. Og hann leitar því kannski í nýjan farveg – upphafningu á og samsömun við eitthvað framandi, annað en sjálfan sig. Þegar maður er fæddur og uppalinn í heimsveldinu hlýtur að virðast hvort tveggja saklaust og meinlaust að fagna þjóðerni garðálfsins, enda er hann ekki „alvöru“: Ísland mun aldrei gera innrás í Pólland. (Þótt NATO gæti hugsanlega gert innrás í … segjum Líbýu) Ég er á hálum ís – þetta eru ósanngjarnar ávirðingar um gott ljóðskáld, útdráttur úr óperu sem ég hef hvorki heyrt né lesið; hugsun mín er ekki fullfædd, en mig langar að spyrja samt (hér eru allir punktar spurningamerki). Þetta er líklega tegund öðrunar þótt hún sé blandin aðdáun – hér stendur eitthvað um göfuga villimenn og ég hálfskammast mín í ólíkum skilningi (en orðlengi ekki). Úr líbrettóinu Hell eftir Eileen Myles – tilvitnun úr ritgerðasafninu The Importance of Being Iceland. Það fyrsta sem manni dettur í hug er að svona gæti Íslendingur aldrei skrifað um eigið þjóðerni (þótt textinn sé raunar lagður þjóðinni í munn) og svona gæti Bandaríkjamaður heldur aldrei skrifað um eigið þjóðerni, þvíbáðir myndu virðast hálfgerðir nasistar fyrir vikið – svona talar fólk á Útvarpi Sögu, í „Talk Radio“ – svona tala ekki næm

x

Spássían

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Spássían
https://timarit.is/publication/1454

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.