Spássían - 2011, Qupperneq 47
47
Á HVERJU ÁRI skipuleggur finnska bókabúðakeðjan Suomalainen
Kirjakauppa fimm daga bókmenntatengda ferð fyrir tryggustu
viðskiptavini sína og í ár varð Ísland fyrir valinu. Aðsóknin reyndist
fara fram út björtustu vonum og var ferðin sú fjölmennasta til þessa.
Spássían slóst í för með Finnunum er þeir röktu slóð glæpanna í
sögum Arnaldar í öruggri leiðsögn starfsmanna Borgarbókasafns.
Eftir göngutúr um Norðurmýrina er haldið upp í rútu og
á slóðir annarrar glæpasögu; Grafarholtið. Á leiðinni fræðir
bókmenntafræðingurinn Úlfhildur Dagsdóttir okkur um höfundinn
Arnald og upphaf og þróun glæpasagnahefðarinnar á Íslandi. Hún
segir Arnald hafa verið brautryðjanda í glæpasagnaskrifum á Íslandi
en þrátt fyrir það hafi hann ekki verið spámaður í eigin föðurlandi
því hann hefur hlotið fleiri verðlaun og viðurkenningar fyrir utan
landsteinana en innan þeirra. Sú glæpasagnahefð sem Arnaldur skrifi
sig inn í sé áþekk þeirri sem þekkist annars staðar á Norðurlöndum
og það sama eigi við um þá höfunda sem komu í kjölfar hans: „Þegar
fleiri höfundar fóru að skrifa glæpasögur, tók bókmenntaelítan að
kvarta undan því að öll umfjöllun um bækur hefði snúist upp í tal
um glæpasögur. Aðrir bentu á að glæpasögur byðu upp á kærkomið
félagslegt raunsæi svo og félagslega og pólitíska gagnrýni.“
Finnarnir eru yfirvegaðir undir fyrirlestrinum en áhugasamir. Þeir
lýsa yfir áhyggjum af aðalsögupersónunni, rannsóknarlögreglu-
manninum Erlendi, og vilja vita hvenær hann kemur aftur. Síðasta
bók Arnaldar sem kom út í Finnlandi var Myrká en þegar henni lauk
var ekki ennþá ljóst hvar Erlendur væri niðurkominn. Síðan þá hefur
Arnaldur skrifað tvær bækur um Erlend og kollega hans þar sem
spurningunni er svarað og hægt er að svala forvitni Finnanna.
Í Grafarholti segir Úlfhildur frá Grafarþögn og síðan er haldið inn í
Grafarvog þar sem Ingvi Þór Kormáksson tekur við og les upp úr
ensku útgáfunni af Harðskafa.
Næsti áfangastaður er Breiðholt, nánar tiltekið Æsufell, þar
sem fjallað er um Vetrarborgina. Illa gengur að koma rútunni inn í
þröngar götur og rútubílstjórinn er gáttaður á bjartsýni aðstandenda
ferðarinnar. En það hefst fyrir rest og farið er með skarann inn á
róluvöll. Það er frekar kalt í veðri, enda kom vorið seint, og Finnarnir
furða sig á hvers vegna íslenskir höfundar lýsa ekki umhverfinu
betur í bókum sínum. Úlfhildur segir þá sennilega ekki vilja lýsa
morðstöðum af of mikilli nákvæmni því landið sé svo lítið. Yrsa
Sigurðardóttir sé gott dæmi um það en hún hlaut nokkra gagnrýni
fyrir ógnvekjandi lýsingar sínar á Hesteyri í nýjustu bók sinni, Ég
man þig, og þótti sumum illa gert af henni að gera draugabæli úr
saklausum staðnum.
Kuldinn á samt vel við á þessari
stundu því eins og Úlfhildur segir
er Vetrarborgin mjög köld bók.
„Arnaldur nýtir hér vetrarstemninguna
til hins ítrasta og skapar kuldalega
umgjörð í kringum dauða ungs
innflytjanda, drengs af tælenskum
ættum, en lík hans finnst á leikvelli í
Fellahverfinu. Rannsókn málsins leiðir
rannsakendurna inn í óhugnanlegan
veruleika fjölþjóðasamfélagsins á
Íslandi.“ Lesið er upp úr Vetrarborginni, að þessu sinni á finnsku, og
síðan hraðar hópurinn sér aftur inn í rútu undan nöprum vorvindinum.
Á bakaleiðinni er komið við á hefðbundnari áfangastöðum
ferðamanna, sem tengjast morðum og glæpum í sögum Arnaldar ekki
neitt; Perlunni og Hallgrímskirkju. Á meðan Finnarnir skoða kirkjuna
velta starfsmenn bókasafnsins fyrir sér hinum ýmsu getgátum sem
upp hafa sprottið um hótelið sem vísað er til í Röddinni. Flest virðist
benda til að um Hótel Sögu sé að ræða en nokkrar vísbendingar
benda í aðrar áttir. Þar sem Hótel Saga er síðasti áfangastaðurinn
á ferðalaginu vona þau heitt og innilega að þau hafi veðjað á réttan
hest. En áður en kemur að því heldur Arnaldarförinni áfram inn
í Þingholtin, vettvang morða í Myrká og Kleifarvatni, og þar fjallar
Úlfhildur um báðar bækurnar og les upp úr þeim.
Á endastöð, Hótel Sögu segir hún að lokum frá Röddum og
morðinu í þeirri bók sem á sér stað á hóteli. Ingvi Þór les upp úr
bókinni og svo halda Finnarnir í hádegismat. Þegar skilið er við
hópinn virðist hann ánægður með ferðina en framundan er ferðalag
í bókabúðir og ýmsar skoðunarferðir um Ísland. Arnaldarrútan hefur
hins vegar lokið störfum sínum í bili og bíður nú eftir næsta hópi af
áhugasömum glæpasagnaunnendum.
Við hús í Norðurmýri standa 37 Finnar, íhugulir á svip, á köldum
þriðjudagsmorgni í apríl. Við erum stödd á vettvangi glæps – nánar tiltekið
morðsins sem hrinti atburðarásinni af stað í glæpasögunni Mýrinni. Þeir
hafa komið um langan veg til að kanna aðstæður á vettvangi, enda harðir
aðdáendur höfundarins, Arnaldar Indriðasonar.
Á slóð glæpa í
Arnaldarrútu
Eftir Ástu Gísladóttur