Íþróttablaðið - 01.09.1948, Side 9

Íþróttablaðið - 01.09.1948, Side 9
Olympíuleikarnir í London 1948 SETNINGARHÁTlÐIN FIMMTUDAGINN 29. JÚLl 1948. Þessi fyrsti dagur hinna 14. Olympíu- leika mun seint líða mér úr minni; enda hjálpaði margt til að gera hann minnis- stæðan svo sem stórkostlegt umhverfi, góður undirbúningur, hátíðleg athöfn og ágætis veður. „Allar leiðir liggja til Róm“ stendur einhversstaðar, en nú hefði mátt segja með sanni, að allar leiðir lægju til Wembley. Þangað streymdi mannfjöid- inn ofan jarðar og neðan, á öllum þeim farartækjum, sem völ var á. En það er löng leið til Wembley frá hjarta Lund- únaborgar og þótt við legðum af stað kl. 1,50 og færum með neðanjarðarlest, vorum við ekki komnir á endastöðina fyrr en kl. 2,30 — eða rétt um það leyti, sem leikarnir áttu að hefjast. Og nú tók við smá gönguför, um það bil 1 km. eftir brennheitri götunni, sem liggur frá endastöð lestarinnar upp að Wembley leikvanginum. Á leiðinni var vart hægt að þverfóta fyrir allskonar blaða-, leikskráa- og minjagripasölum, en sjálf umferðin var sem iðandi mauraþúfa. Hitinn var ægi- legur. Flestir voru snöggklæddir, marg- ir berir að ofan og kvenfólkið sömu- leiðis eins létt klætt og frekast var leyfilegt. Það var gengið hratt, enginn vildi missa af setningarathöfninni — eða öllu frekar — því að sjá konunginn. ------- Eftir _____ Jóhann Bernhard Loks komumst við inn í anddyri leik vangsins, sem reyndist hálfgert völund arhús. — Allt í einu birti — dyr opn- Olympíueldurinn tendraður. uðust og leikvangurinn blasti við — óhemjustór og skrautlegur í skini hinn- ar steykjandi sólar. Okkur var vísað til sætis neðarlega hægra megin við inn- göngudyrnar, og sáum brátt, að þar voru vinir og frændur á báðar hendur -— sem sé landar okkar. Því miður náði Þakskeggið ekki svo langt að það skýldi okkur fyrir brenn- heitum sólargeislunum, en hitinn var um 40 stig þennan dag. Urðum við þvi að taka upp vasaklútana (þeir sem ekki höfðu hatta) og skella á kollana, en sumir notuðust við blöð, leikskrár o. s. frv. Flestir höfðu komið jakkalausir, en hinir sem ekki höfðu verið svo for- sjálir voru ekki lengi að fjarlægja þá. Einn Islendinganna hafði tekið með sér regnkápu. — og bjóst við þrumu- veðri! I rauninni var þetta ekki eins fráleitt og manni fannst í byrjun, því daginn eftir kom einmitt ringingarskúr. Það sem fyrst vakti eftirtekt manns var hinn gífurlegi mannfjöldi, sem þarna var samankominn. 82.000 eða ná- lega 2/3 hlutar íbúa Islands, á einum stað, umhverfis eina 400 metra hlaupa- braut. Uppi yfir vinstri enda vallarins, (yfir inngöngudyrunum) var stór svört tafla, sem á var letrað með hvítum stöf- um hin alkunnu orð Baron de Coubertin, frumkvöðuls að endurreisn Olympíuleik- anna; — „Þaö, sem mestu máli skiptir á Olympíu- leikunum er ekki sigurinn, heldur þátt-

x

Íþróttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Íþróttablaðið
https://timarit.is/publication/1455

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.