Íþróttablaðið - 01.09.1948, Page 30
22
ÍÞRÓTTABLAÐIÐ
Cros 52,5 sek.; 3. Missoni 53,4 sek.; 4.
Whittle 53,4 sek. 5. Storskrubb 53,5 sek.;
6. Holland 53,9 sek.
Cochran jafnaði Olympsmet Larssons
og hljóp sérstaklega vel. Baráttan um 3ja
sætið var mjög hörð og urðu það mörgum
vonbrigði að Storskrubb skyldi ekki ná
bví, en hann var á yztu braut og auk
þess ekki í sínu gamla formi.
Úrslitahlaupið fór fram daginn eftir —
31. júlí. Cros dró innstu braut, Missoni 2.,
Cochran 3., Ault 4., White 5. og Larsson
yztu braut. Var þvi útséð um það að
Larsson ynni hlaupið, enda kom það á
daginn að Coehran var alveg ósigrandi.
Hafði hann foruztuna frá byrjun og mun
þó White hafa haldið í við hann framan
af. Þegar hlaupararnir komu út úr síð-
ari beygjuna var Cochran greinilega
fyrstur, White annar og Ault þriðji ör-
lítið á undan Larsson. Sá síðastnefndi
hafði hinsvegar ekki sagt sitt síðasta orð
og komst fram úr Ault á síðustu 40
metrunum.
Cochran bætti hið nýsetta Olympsmet
sitt og Larssons um 8/10 úr sek. og
hljóp á 51,1 sek. sem er næst bezti
tími, sem náðzt hefir í heiminum. —
White fór einnig undir metinu, en Lars-
son skorti 3/10 úr sek. til að ná milli-
riðilstíma sínum. Cochran er gamall í
hettunni, varð t. d. Bandaríkjameistari
i 400 m. grindahlaupi árið 1939 og
hafði hlaupið bezt á 51,7 sek. fyrir leik-
ana. Hann er einnig mjög góður 400
m. hlaupari (46,7).
4x100 METRA BOÐHLAUP:
Heimsmet: 39,8 sek. Bandarikin 1936.
Olympsmet: 39,8 sefc. Bandaríkin 1936.
1. Bandaríkin ........ 40,3 sek.
2. Bretland .......... 41,3 sek.
3. ítalía..............41,5 sek.
4. Ungverjaland ...... 41,6 sek.
5. Kanada..............41,9 sek.
6. Holland.............41,9 sek.
Undanrásir þessa sögulega boðhlaups
fóru fram næst síðasta dag leikanna
— 6. ágúst — í úrhellisrigningu. 15
þjóðir mættu til leiks og var þeim
raðað í 3 riðla. Skyldu tvær fyrstu úr
hverjum riðli fara beint í úrslit. 1 fyrsta
riðli unnu Bandaríkin án fyrirhafnar
á 41,1 sek. Italía var skammt á eftir
á 41,3 sek. Brazilia var slegin út á 42,4,
en Tyrkland dæmt úr leik (hljóp á 44
sek.). t öðrum riðli var keppni mun
harðari, enda hafði 3 ágætum sveitum
lent þar saman. En þar sem aðeins 2
fyrstu áttu að fá að fara í úrslitin
vildi engin þeirra lendi í 3. sæti. Úrslit
urðu þau að Bretland vann riðilinn á
41,4 sek. Ungverjaland fékk sama tíma,
en aumingja Ástralía varð að láta- sér
lynda þriðja sætið aðeins 1/10 úr sek.
aftar. Þar með brást þriðja og síðasta
von hins glæsilega spretthlaupara, Trel-
oar, um að komast í úrslit á þessum
leikjum.
Þriðji og síðasti riðillinn var að vísu
ekki eins sterkur og hinir, en þó fylgd-
umst við tslendingar bezt með honum.
tsland var þar meðal þátttakenda, en
lenti þvi miður á yztu braut. Á fyrstu
braut var Argentína, Holland á 2. braut,
Kanada á 3. og Frakkland á 4. braut.
Voru þetta allt sterkar sveitir, þótt
engin þeirra hefði sigurvon í úrslita-
hlaupinu. Ásmundur Bjarnason hljóp
fyrsta sprettinn fyrir tsland og tókst að
halda Frakkanum Porthault, fyrir aft-
an sig. Hinsvegar tókst skipting þeirra
Finnbjarnar svo illa (Finnbjörn of
snemma af stað) að Frakkinn Litaudon
og Kanadamaðurinn O’Brien voru strax
komnir fram úr. Næsta skipting tókst
allsæmilega og virtist Trausti Eyjólfs-
son vera í 3.-4. sæti á seinni beyjunni,
en svo mistókst síðasta skiptingin. vegna
þess að Frakkinn hljóp fyrir Hauk
Clausen og Þótt Haukur sýndi mikil til-
þrif eftir að hann var kominn af stað
var bilið í næstu menn of langt. Frakk-
arnir voru svo óheppnir að missa kefl-
ið við síðustu skiptinguna og tóku sér
það mjög nærri. Holland vann riðilinn
á 41,7 sek. Kanada varð næst á 42,3
sek., Argentína 3. á 42.4 og ísland fjórða
á 42,9 sek. eða sama tíma og íslenzka
félagametið. Ef ísl. sveitin hefði hlaupið
á sama tíma — 42,1 sek. — og móti
Norðmönnum í sumar hefði það nægt
til að komast í úrslit.
Úrslitahlaupið fór fram daginn eftir
— 7. ágúst — og var allsögulegt. Ung-
verjaland hafði dregið fyrstu braut,
Holland aðra, Bandaríkin þriðju, Bret
land fjórðu, Italia nmmtu og Kanada
sjöttu braut. Það var mikill spenningur
í keppendum og áhorfendum, en þó munu
fáir hafa búizt við Því, sem átti eftir
að koma fyrir. Skotið reið af, hlaupar-
arnir þeyttust af stað, Ewell og Corquo-
dale vinna dálítið af hinum keppendun-
um og skila keflunum örugglega til
næstu manna. Wright og Bretinn Greg-
ory draga nú jafnt og Þétt á Italana og
Kanadamennina, en það er þó ekki fyrr
en á seinni beygjunni, sem mynd hlaups-
Fyrsta skipting í 3. riðli IfXlOO m. boðhlaupsins. Frá vinstri: Island (Ásm. að
rétta Finnbirni keflið), Frakkland, Kanada og Holland. Argentína er á innstu
brautinni og sést ekki á myndinni.