Íþróttablaðið


Íþróttablaðið - 01.09.1948, Qupperneq 40

Íþróttablaðið - 01.09.1948, Qupperneq 40
32 ÍÞRÓTTABLAÐIÐ stökkva, fyrir hinum harða bolta, sem flaug öðru hverju með manndrápshraða yfir á atrennubrautina. Og svo til að kóróna næði það. sem langstökkvurun- um var ætlað, heyrðist varla mælt mál fyrir óhljóðum í áhorfendum, sem fannst víst flestum meira spennandi að fylgj- ast með Lacrosse-leiknum en langstökk- inu. Örn var svo óheppinn að þurfa að stökkva við þessar „óvenjulegu" kring- umstæður og fór það ekki síður í taug- arnar á honum en hinum keppendunum. Virtist mér einhverjir mótmæla og benda dómurunum á boltann, sem var sífellt að fljúga yfir atrennubrautina, en án árang- urs. Örn hafði setið á bekk við inn- göngudyrnar og beðið þess að röðin kæmi að honum. Fór hann nú að reyna atrennuna og tók í því skyni eitt reynslu stökk (hljóp i gegn) eftir að hafa til- kynnt stökkstjóranum það. Síðan stökk hann fyrir alvöru og náði ágætu stökki, sjálfsagt uppundir eða um 7 metra, en því miður veifaði stökkstjórinn rauðu flaggi, en það merkir ógilt stökk. Um leið og Örn gekk framhjá plankanum til- kynnti stökkstjórinn honum að nú ætti hann aðeins eitt stökk eftir, því hann hefði reiknað reynslustökkið hans sem fulla en ógilda tilraun. Þetta mun hafa komið Erni mjög á óvart, því að hann hljóp í gegn reynslustökkið auðsjáanlega í þeirri trú að það væri óhætt og auk þess var þá ekki veifað rauðu. Mun Örn hafa mótmælt þessum úrskurði, þvi hann stóð lengi og þrefaði við stökkstjórann. Okkur löndum hans á áhorfendapöllun- um fór nú ekki að lítast á blikuná, því það var annað en gaman fyrir Örn að eiga aðeins eitt tækifæri til að ná gildu stökki og hætta ella. Vonandi var ekki sagan frá Berlín að endurtaka sig, en þá var Karl Vilmundarson látinn hætta tugþrautinni eftir 2 greinar, þar sem hann gerði aðeins eitt stutt stökk gilt af þrem í langstökkinu. Um síðir verður Örn þó að beygja sig fyrir úrskurði stökk- stjórans og taka þetta síðasta og eina stökk. Veslings Örn, sá var ekki öfunds- verður að þurfa nú að gera sitt bezta eftir að hafa staðið berlæraður og kald- ur í rifrildi við yfirvöldin. Stökkið mátti ekki vera ógilt og vitanlega varð það helzt að vera langt. Hann stóð graf- kyrr og safnaði kjarki. Augu allra ís- lenzku áhorfendanna mændu á hann og hver mun ekki hafa óskað honum góðs gengis. — Örn hleypur af stað, varlega en þó allhratt og stekkur upp vel fyrir aftan plankann. Bravó! Það var þó gilt og það var fyrir mestu. Við landarnir vörpuðum öndinni léttar, þungu fargi var létt af okkur og Erni — já og jafn- vel af stökkstjóranum, ef hann hefir þá ekki haft kalt hjarta. Hann flaggaði þó a. m. k. með hvítu dulunni og síðan var stökklengdin tilkynnt — 6,54 m. Jæja, sögðu sumir Islendinganna, það gat ver- ið verra. En ég efast þó um að nokkur 19 ára piltur og jafnoki Arnar í langstökki hefði afrekað meira undir þessum kring- umstæðum. Það var annars leitt að eng- inn Islendingur skyldi vera til staðar til að aðstoða Örn i því að ná rétti sínum áð- ur en það var orðið of seint. Ef keppend- ur eru beittir órétti eiga þeir ekki sjálfir að þurfa að mótmæla, heldur flokksstjór- arnir fyrir þeirra hönd. Og það sýndi sig síðar í þessar tugþraut að full þörf var fyrir a. m. k. einn mann, er hefði ein- göngu það hlutverk að aðstoða Örn ef með þyrfti t. d. útvega mat o. s. frv. Mun ekki farið frekar út í þessa sálma að sinni. Beztum árangri í langstökki náðu þeir Kistenmacher og Adamzyk 7,08 m. en lökustum Mukhtar, Egyptalandi, 5,51 m. Var Örn 18. í röðinni með afrek sitt, sem gaf 686 stig. Eftir þessar tvær grein- ar stóðu stigin sem hér segir: 1. Kistenmacher, Argentínu ...... 1697 2. Heinrich, Frakklandi ......... 1535 3. Simmons, USA ................. 1518 4. Mondschein, USA .............. 1514 5. Örn Clausen, Islandi ......... 1500 6. Mullins, Ástralíu ............ 1498 Hafði Örn því hrapað úr 2. sæti niður í 5. vegna langstökksins. Kúluvarp: Upphaflega hafði verið ætlað að hafa hlé milli langstökks og kúluvarps, en keppnin tók það langan tíma að hléið varð að engu og hafði síðasti flokkur langstökksins nýlokið sér af, er kúlu- varpið hófst kl. 3,15. Örn lenti nú í fyrri flokki af' tveimur og var auðsjáanlega búinn að jafna sig nokkuð eftir lang- stökksævintýrið. Köst hans voru öll gild og mældust 12.87, 12,34 og 12,45 m., sem er mjög sæmilegt eftir atvikum. T. d. vörpuðu aðeins 7 lengra en Örn, en 27 styttra. Lengsta kastið átti Gier- utto, Póllandi (sá sami og í kúluvarps- keppninni) 14,53 m., en það styzta átti Seger, 9,40 metra! Fyrir þetta afrek hlaut Örn 703 stig og lækkaði þvi um eitt sæti. Var það hinn 17 ára gamli Bandaríkjamaður Mathias, sem komst upp fyrir hann. Röðin eftir 3 greinar: 1. Kistenmacher, Argentínu ....... 2381 2. Heinrich, Frakklandi .......... 2236 3. Simmons, USA .................. 2213 4. Mathias, USA................... 2208 5. Mondschein, USA ............... . 2204 6. Örn Clausen, Islandi........... 2203 Hástökk: 1 hástökkinu var keppendum skipt í tvo flbkka og kepptu báðir samtímis, sinn í hvorri gryfjunni. Hér virtist Örn vera í essinu sínu og fór 1,65 og 1,70 í fyrsta stökki. 1,75 í 2. og 1.80 i þriðja stökki. Síðan reyndi hann 1,83 og var nálægt þvi í fyrstu tilraun, en misheppn- aðist svo. Vorum við mjög ánægðir með árangur hans í þessari grein. Beztum árangri náðu annars þeir Heinrich, Tannander, Mathias, Simmons og Asc- une, sem allir stukku 1,86 m. Lægst stökk Egyptinn Mukhtar 1,50 m. Örn var 8. í þessari grein fékk 786 stig og hélt sínu 6. sæti. Var röðin á Þeim efstu nú orð- in þessi: 1. Heinrich, Frakkland ........... 3095 2. Simmons, USA .................. 3072 3. Mathías, USA .................. 3067 4. Kistenmacher, Argentínu .... 3052 5. Mondschein, USA .............. 3026 6. Örn Clausen, Islmd ........... 2989 lf00 metra hlaup: Kl. 6 var loks komin röðin að fimmtu og síðustu grein fyrri daginn, 400 metra hlaupinu. Var keppnin þá búin að standa yfir í hálfan áttunda tíma án þess að nokkurt verulegt hlé hefði verið. Munu margir keppenda hafa verið orðnir all þjakaðir, ekki af áreynslunni heldur frekar af þvi að hanga þarna allan daginn, án þess að fá nokkuð al- mennilegt að eta eða hvílast. Keppend- um var skipt í 9 riðla og lenti Örn á 3. braut í 7. riðli. Með honum hlupu Mathias á 1. br., Gierutto, 2. br. og Dayer á 4. braut. Okkur til mikillar undrunar fór Örn hægt af stað, enda náði Mathias honum þegar í lok fyrri
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Íþróttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Íþróttablaðið
https://timarit.is/publication/1455

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.