Íþróttablaðið


Íþróttablaðið - 01.11.1979, Síða 13

Íþróttablaðið - 01.11.1979, Síða 13
áður. Ég var eins og margir aðrir, sótti dansstaðina í þessum frí- stundum, hafði gaman af að fá mér neðan í því og fylgja eftir gleðskapnum. Ég kynntist því þarna að við íslendingar eru ósjálfstæðasta sjálfstæða þjóð veraldar. Hér er fylgst með manni, hverri hreyfingu. Og hér öfundast allir út í alla og samanburðarsýkin er okkur hættuleg. Fólk er sífellt að bera sig saman við aðra og öfundast út í þá sem skara fram úr. Annars áttaði ég mig fljótt á að öl er annar maður en ekki innri maður, eins og oft er sagt. Ég ætlaði ekki að brenna mig á slíku og fékk fræðslu um þetta mesta vandamál okkar þjóðfélags. Og ég ákvað að hætta að leika mér að eldinum, lenda ekki í þessum heljargreipum, það er engin ástæða til að láta Bakkus um- breyta sér. Áfengisvandamálið okkar er stórt, hér er tíundi hluti þjóðar- innar ofurseldur Bakkusi og í rauninni er það ekkert betra að vera fínn róni en venjulegur Hafnarstrætisróni. Þar er bara stigsmunur á milli. Annars hef ég engin framtíð- arplön í þessum málum. Ég finn hins vegar að upp á síðkastið hefur mér gefist tóm til að átta mig betur á sjálfum mér og mínu lífi. Áður fyrr gafst eiginlega enginn tími til slíks. En það verð ég að segja að slíkt er nauðsynlegt hverjum manni, og líklega gera það allt of fáir að reyna að botna eitthvað í sjálfum sér“. — Nú hefur fólk oft á orði að íþróttamenn fari illa með áfengi. Hvað er hæft í því? „Það er rangt. íþróttamenn eru yfirleitt mun hófsamari í þessum efnum en þorri fólks. Auðvitað eiga þeir það til að kætast í góð- um hópi, en það er sjaldgæft að þar komi upp vandamál. íþróttafréttamenn hafa líka fengið sinn skammt. Og satt að segja var mjög leiðinlega vegið að Hermann og fjölmiðlarnir Hermann hefur starfað að fjöl- miðlun frá því að hann var unglingur — reyndar með hlé- um á milli. Efsta myndin er tekin af honum i starfi hjá Vísi sum- arið 1968. Myndin hér að ofan var tekin er Hermann var að taka útvarpsviðtal við Rudi Krol fyrir skömmu og hér til hliðar er Hermann sem stjórnandi ,,Lög unga fólksinsen þvi hlutverki gegndi hann 1966—1969.

x

Íþróttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Íþróttablaðið
https://timarit.is/publication/1455

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.