Íþróttablaðið - 01.11.1979, Blaðsíða 25
lif'ctnbod r OA
HAMPION
1 * -
v 1 - . i
Heill hópur tæknimanna starfa á vegum þeirra fyrirtækja er gera
bíla út íkappakstur. Þeir fylgja kappakstursmönnunum hvert sem
þeir fara og eru svo þjálfaðir að þeir geta t.d. skipt um hjólbarða á
innan við mínútu. Viðbrögð og hraði tæknimannanna getur líka
oft ráðið úrslitum íjafnri og harðri keppni.
ingar á hverjum einasta degi.
Mér er boðið vín, en segi alltaf
nei takk.
— En Jody, segja þeir, — bara
pinulítið rósavín. Það skaðar
engan.
— Nei, segi ég, — ekki vín.
Allt í lagi, segir Ferrari þá
venjulega, — ég skal drekka þinn
skammt.
Undir borðum er spjallað um
heima og geima. Rætt er um síð-
ustu kappaksturskeppni, og þá
næstu. Hvað hafi verið að síðast,
og hverju þurfi að kippa í liðinn,
áður en slagurinn hefst að nýju.
Þegar við komum út aftur hitt-
um við tæknimennina, sem einn-
ig hafa verið í matarhléi. Þeir eru
þá oft að selja límmiða og lykla-
kippur, en af því hafa þeir tölu-
verðar aukatekjur. Nú, eða þá að
spjalla við stúlkur sem komið
hafa í heimsókn.
Félagarnir koma
Síðan er haldið út að æfinga-
brautinni. Þar er skrifstofa Ferr-
aris á gömlum bóndabæ, málað-
ur eldrauðru .og hvítur. Meðan
verið er að ræða hvað gera skuli í
dag, koma hinir kappaksturs-
mennirnir einn af öðrum. Félagi
minn á brautunum, Gilles Vill-
eneuve kemur alltaf á óskaplegri
ferð og ekur á tveimur hjólum,
jafnvel inn á bílastæðið. — Ég
var þrjá og hálfan tíma frá
Cannes, segir hann og er hinn
ánægðasti. — Ég stríði honum þá
stundum með því að spyrja hvað
hafi tafið hann svona voðalega.
Kappakstursbílarnir koma
síðan og eru þeir fluttir á flutn-
ingabílum að brautinni. Við
skoðum þá í krók og kring, en
síðan er tími til kominn að skipta
um föt, en við höfum góða bún-
ingsklefa, þar sem við geymum
gallana sem við ökum í, hjálma
og skó.
Ferrari ekur Fiat
Þá er allt orðið tilbúið til æf-
ingaakstursins. Ferrari sjálfur er
kominn á vettvang á bláum Fi-
at-bíl sínum, og með honum eru
þeir gestir sem boðið hefur verið
að fylgjast með æfingunni.
Bíllinn sem ég ek er nýlakkað-
ur og ég styð fingri á hann til þess
að athuga hvort lakkið sé þornað.
Að ýmsu þarf að gá áður en lagt
er af stað, en tæknimaður minn,
Antonio Bellentani er vel með á
nótunum, og oft er hann fyrri til
að laga það sem laga þarf.
Ég ek fimm hringi á brautinni
og þrautreyni bílinn. Til að byrja
með virka bremsurnar nokkuð
stirðar og taka ójafnt í. Tækni-
mennirnir verða varir við þetta,
gefa mér merki um að stoppa, og
laga það sem laga þarf. Síðan er
25