Íþróttablaðið


Íþróttablaðið - 01.11.1979, Side 27

Íþróttablaðið - 01.11.1979, Side 27
840 kíló- metra akst- ur til og frá vinnu og 3 tímar við æfingar. lagt af stað aftur og nú gefið í meira en áður. Það er manni mjög til hjálpar að við brautina hef ur verið komið upp ljósatöflum sem gefa upplýsingar um hversu lengi maður hefur verið að aka hringinn. Þetta er aðeins venjulegur dagur, ekki gerð tilraun til þess að setja nýtt met á brautinni. Besti tíminn sem ég fæ á hring er 1:12,0 mín., en Gilles á metið 1:08,7 mín. Ég hugsa með sjálf- um mér að einn góðan veðurdag muni ég bæta það í 1:08,0 mín., en það verður að bíða betri tíma. Við spörum bílana, því fram- undan er Grand-Prix keppni og þá betra að allt sé í góðu lagi. Eftir þennan æfingaakstur ræða tæknimennirnir við okkur, leita álits á bílunum og biðja um uppástungur frá okkur um hvað betur mætti fara. Upplýsingunum safnað saman Allt er orðfð mjög fullkomið á þessari æfingabraut. Sjálfvirk tímataka sem sendir upplýsingar til tölvu, sem síðan geymir þær og vinnur nánar úr þeim. Hvar á brautinni náðist mestur hraði, hvar var dregið óþarflega mikið úr ferðinni og s.frv. Allt kemur þetta til góða þegar út í sjálfa al- vöruna er komið. Ég er einn af fáum sem hef fengið leyfi til þess að aka bíl af annarri tegund en Ferrari á þess- ari æfingabraut. Þegar ég vann hjá Wolf og við vorum að reyna nýja bíla herti ég upp hugann og bað Ferrari að leyfa okkur að æfa okkur á brautinni hans. Öllum til mikillar furðu sagði hann já. Síðar komst ég að því að hann vildi fá tækifæri til þess að sjá mig undir stýri og hvernig ég æfði. Ferrari sjálfur er nefnilega aldrei viðstaddur Grand-Prix keppni. Þá kann einnig að hafa ráðið nokkru um að leyfi þetta fékkst að tæknimennirnir hjá Ferrari voru forvitnir að sjá hina nýju gerð Wolf-bílanna. Heim á leið Um klukkan fimm fer að kólna og þá ljúkum við æfingum okkar. Við ökum bílunum í „pittinn“ og þar taka tæknimennirnir við þeim. Síðan förum við í bað og klæðum okkur, fáum okkur ávexti og súkkulaði, en ég tek alltaf svolítið nesti með mér til þess að borða á heimleiðinni. Aksturinn á leiðinni heim er jafnvel enn leiðinlegri en á morgnana. Ég stilli útvarpið hátt og hlusta á skemmtilega músik á leiðinni heim. Fyrir mig þýðir Monaco friður og ró. Þar er gott að eiga heima og ég nýt þess vel ef frí gefast, en það er tiltölulega sjaldan. Eftir 840 kílómetra akstur til og frá vinnunni og þriggja klukku- stunda setu undir stýri á kapp- akstursbrautinni, er maður venjulega orðinn dauðþreyttur og fer því snemma í bólið. Líklegt er að dagurinn á morgun verði líkur deginum í dag. Þetta kann að virðast erfið og tilbreytingar- lítil vinna, en þetta er starf sem ég elska og ég vildi ekki skipta um starf hvað sem í boði væri. 27

x

Íþróttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Íþróttablaðið
https://timarit.is/publication/1455

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.