Íþróttablaðið


Íþróttablaðið - 01.11.1979, Side 37

Íþróttablaðið - 01.11.1979, Side 37
Það þurfti að ræða um margt á æfingunni, og fannst mörgum strákanna það skrýtin tilfinning að æfa á svo stórum velli. ,,Þótt Skaginn sé góður, er þetta allt annað líf, “ sagði einhver þeirra. lok æfingarinnar voru mark- mennirnir teknir á mjög erfiða séræfingu og eftir hana voru þeir gersamlega útkeyrðir. Að æfing- unni lokinni var síðan haldið upp á hótel og gengið til náða. „Þið spilið fyrir heiðurinn en ekki fyrir peninga“ Þriðjudagurinn leið fram að kveldi en um daginn hafði af- slöppun verið megininntakið. Um kvöldmatarleytið var haldið á æfingu, sem fór fram á æfinga- velli, rétt hjá aðalleikvanginum. Hilpert hafði vonast til að hann fengi að vera í friði með sína menn til að geta farið í ýmsar leikaðferðri og uppstillingar. En forvitnir áhorfendur urðu til þess að þessum atriðum var frestað þar til að loknum fundi með leikmönnum, daginn eftir. Æf- ingunni lauk síðan um kl. hálf 9 og þá var farið til baka upp á hótel. Klukkan 11 um kvöldið var haldinn fundur uppi á hóteli. Hilpert talaði þar yfir leikmönn- um en Hörður Helgason, liðs- stjóri, túlkaði af þýsku yfir á móðurmálið. Hilpert byrjaði á því að segja að forráðamenn Barcelona hefðu neitað að gefa upp byrjunarliðið daginn eftir, eins og var annars venja. En hann bætti jrví við að góður vinur hans sem var þýskur íþróttablaða- maður, hefði gefið sér upp byrj- unarlið Barcelona. Hvaðan sem hann hefur fengið þá vitneskju þá stóðst þessi spá hans þegar til kom. Hilpert fór síðan nokkrum orðum um lið Barcelona og tók hvern leikmann þeirra fyrir og sagði hvað helst þyrfti að varast. Eins og gefur að skilja gætti nokkurrar taugaspennu meðal ÍA-strákanna. Hilpert reyndi að stappa i þá stálinu og hvatti þá til að bera enga virðinu fyrir „millj- ónadollaramönnunum“. Hann var einnig smeykur um að hinn mikli áhorfendaskari myndi skjóta leikmönnum skelk í bringu en hann kom til með að verða ólíkt meiri heldur en íslendingar eiga að venjast. Strax og fréttist að dómari leiksins yrði frá Möltu leist Skagamönnum ekki á blikuna. Þegar áður en lagt var upp í ferðina var talað um að hann myndi ekki þora að dæma „rétt“, ef svo má segja, af ótta við hina blóðheitu Spánverja. Hilpert lagði ríka áherslu á að leikmenn myndu ganga eins langt og dóm- arinn leyfði og harkan og ákveðnin yrði það sem gilda myndi í leiknum. Lokaorð Hilperts á fundinum voru þessi: „Ef að Barcelona vinnur leikinn á morgun, fær hver leikmaður 150 þúsund pes- eta eða tæpa eina milljón ís- lenskra króna. Þó að þið standið ykkur vel fáið þið ekki eina ein- ustu krónu. Aftur á móti vinnið þið heiðurinn og hann er miklu 37

x

Íþróttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Íþróttablaðið
https://timarit.is/publication/1455

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.