Íþróttablaðið - 01.11.1979, Page 40
við sig á íslandi og hefur áhuga á
að koma hingað aftur og þá ætlar
hann sér að tala íslenskuna reip-
rennandi.
Hilpert hefur aflað sér mikilla
vinsælda á Akranesi, bæði sem
góður þjálfari og einnig sem mjög
viðkunnanlegur maður.
Aðspurður um það hvað hon-
um finndist um íslenska knatt-
spyrnu sagði Hilpert: „Það sem
helst háir íslenskri knattspyrnu er
það að menn vinna allt of mikið
með knattspyrnuiðkuninni. Eftir
að hafa unnið kannski frá kl.
8—18 eru menn þreyttir og þá er
vonlaust að ætla sér að fara á æf-
ingu og leggja hart að sér. Ég tel
að knattspyrnufélögin ættu að
virkja fyrirtækin þannig að þau
gæfu mönnum frí fyrr og jafnvel
taka upp hálfatvinnumennsku að
einhverju leyti. Þegar þannigyrði
komið myndi íslensk knattspyrna
taka stórt stökk fram á við“.
En hvað hafði hann að segja
um, fyrri leikinn á móti Barce-
lona?
„Strákarnir eru taugaóstyrkir
bæði vegna þess að þeir bera
hálfgerða virðingu fyrir mótherj-
unum og eins vegna þess að það
verður fjöldi manns að horfa á
þá. Þeir verða að reyna að slappa
af þó að ég viti að það er mjög
erfitt“.
„Haldið boltanum og
gefið ykkur
nógan tíma“
Miðvikudagurinn rann upp og
hófst hann með morgunverð á
milli 9 og 10 og síðan tóku menn
daginn rólega; fóru í göngutúr
o.þ.h. Klukkan hálf 3 var sam-
eiginlegur málsverður og síðan
var rölt á fund.
Á fundinum var farið yfir
uppstillingarnar sem fresta varð
kvöldið áður og þar á eftir var
leikkerfið tekið í gegn. Hilpert
þráspurði strákana hvað þeir
ættu að gera ef þetta kæmi upp
og hvað ætti að gera ef hitt gerð-
ist.
Og enn einu sinni bað hann
strákana að bera enga virðingu
fyrir þessum „stóru“ körlum,
hvort sem þeir hétu Krankl,
Simonsen eða eitthvað annað.
Leikkerfi dagsins skyldi vera 5
- 3 - 2 (5 í vörn, 3 á miðjunni og 2
í sókn) en í sókn átti að skipta yfir
14-3-3.
„Ef þess er nokkur kostur, þá
spilum við ekki varnarleik því að
sókn er besta vörnin“, sagði
Hilpert. „Og að lokum þá skuluð
þið passa ykkur á því að áhorf-
endur eru með flautur og nota
þær óspart. Látið það ekki rugla
ykkur og haldið áfram þar til þið
eruð alveg öruggir um að það
hafi verið dómarinn sem flaut-
aði“.
Eftir fundinn fóru leikmenn-
irnir upp á herbergi sín og lögðu
sig fram til kl. hálf 7 en þá var
safnast saman á hótelinu og
klukkutíma seinna var haldið
áleiðis út á völl.
fyrir yóðan maM
$ KJÖTIDNADARSTÖD SAHBAHDSIHS
40