Íþróttablaðið - 01.11.1979, Síða 51
1 ■
Johan Cruyff í baráttu við leikmann Edmondo Drillers, en með því liði leikur
Guðgeir Leifsson.
Nýtt hlutverk
— Sögusagnir um að ég
hafi verið „farinn á haus-
inn“, og því orðið að draga
fram skóna að nýju, eru úr
lausu lofti gripnar. Ég fann
það, að ég hafði hlutverki að
gegna í bandarísku knatt-
spyrnunni og þess vegna tók
ég tilboði Los Angeles
Aztecs. Hefði ég verið í
peningaþörf hefði ég miklu
fremur tekið boði New York
Cosmos, sem bauð betur en
Aztecs. Ég hef ekki orðið
fyrir vonbrigðum. Þótt
knattspyrnan sem leikin er í
Bandaríkjunum sé á margan
hátt öðru vísi en Evrópu-
knattspyrnan, þá finnst mér
mjög gaman að leika hér, og
kann vel við fólkið.
Þannig lét knattspyrnugoðið
Johan Cruyff ummælt í viðtali
við bandariskt íþróttablað fyrir
skömmu, en Cruyff lék með Los
Angeles-liðinu síðasta keppnis-
tímabil við góðan orðstý. Öðlað-
ist hann þá miklar vinsældir hjá
aðdáendum íþróttarinnar vestra,
en þeim fer jafnt og þétt fjölg-
andi.
Það sem fyrst og fremst mun
þó hafa ráðið því að Cruyff fór til
Aztecs var það að þar tók við
stjórnveli gamall félagi hans og
þjáifari, Rinus Michels, sá er var
þjálfari Ajax þegar Cruyff lék
með því liði, og átti stærstan
þáttinn í að gera Cruyff að þeim
afburðaknattspyrnumanni sem
hann er. Michel lagði mikla
áherslu á að fá Cruyff til hins
nýja liðs síns, og sagði forstjóra
og eiganda félagsins, að það væri
eina vonin til þess að rífa félagið
51