Íþróttablaðið


Íþróttablaðið - 01.04.1986, Blaðsíða 46

Íþróttablaðið - 01.04.1986, Blaðsíða 46
Njáll Eiðsson aftur til Þróttar. Þegar ég fór síðan í Kennaraháskól- ann nennti ég þessum flækingi ekki lengur og fór í Val. Mig langaði í gott lið og lék ég með Val í þrjú sumur. Síðan lá leið mín norður í kennslu og Iék ég með KA tvö sumur. Næsta sumar verð ég svo með Einherja“. Aldrei unnið til alvöru titla Þrátt fyrir að hafa Ieikið um 250 meistaraflokks- leiki á 11 ára ferli hefur Njáll aldrei unnið til alvöru titla. Hann hefur orðið Reykjavíkurmeistari í innan- hússknattspymu og unnið Akureyrarmótið með KA en þar með er sagan sögð. Hann segist eiga heims- met í ferðalögum með landsliðinu miðað við leikja- Qölda. Tvisvar sinnum hefur hann leikið í Kuwait þar sem landsliðið gerði 0-0 jafntefli. Sigur hefur hann borið úr býtum 2-1 gegn Saudi-Arabíu en gegn Wales tapaði landsliðið 1-2 á útivelli 1984. En ætli hann sé svekktur með hversu fáa landsleiki hann hefur leik- ið.„Þetta eru fleiri leikir en ég átti von á að fá að spila í upphafi“. Gæti átt 4-5 ár eftir á toppnum Eðlilega vekur það upp spurningar þegar leik- menn sem geta átt fjöldamörg ár eftir í l.deild og jafnvel leikið með landsliðinu snúa sér að þjálfun. Það er heldur engin spurning að Njáll myndi styrkja hvaða lið á landinu sem væri. En því ekki að vera á toppnum?,, „Ég hef alltaf haft mikinn áhuga á að þjálfa og veit jafnframt að lið úti á landi eru að Ieita að þjálfara sem getur jafnframt leikið með. Þetta gæti verið stökkpallur íyrir mig inn í þjálfun og auðveldað mér hlutina í framtíðinni. Svo er það frekar fátítt að geta sameinað vinnu og áhugamál og fá vel borgað íyrir. Kennarar eru ekki það vel Iaunaðir þannig að þetta drýgir tekjurnar. Ég geri mér alveg grein fyrir því að knattspyrnan í 2. deild er lakari en í 1. deild og tapa ég á því sem leikmaður. Hins vegar held ég að ég sé ekki að eyðileggja neitt fýrir mér því ég get snúið aftur í 1. deild ef ég er sæmilega vel á mig kominn. Ég gæti þess vegna átt 4—5 ár eftir hvað íslenska topp- knattspyrnu varðar. Dæmin sýna að þetta er hægt — sjáðu Ásgeir Elíasson". Njáll er kannski enginn nýgræðingur hvað þjálfun varðar því hann hefur starfað með nokkrum yngri aldurshópum. Frumraunin var hjá Þrótti Neskaup- stað og eru tveir af efnilegustu knattspyrnumönnum íslands lærisveinar hans. Það eru Þorsteinn Halldórs- son og Ólafur Viggósson sem leika með unglinga- landsliði íslands. Síðastliðið sumar gerði Njáll 6.flokk KA að íslandsmeisturum auk þess sem þeir sigruðu á öllum mótum norðanlands. Engin aðstaða — rétt hugarfar í vetur starfar Njáll sem kennari í Reykjavík og því er forvitnilegt að vita hvernig hann stjórnar liði á Njáll ásamt þjálfara Vals 1981 — Jiri Pesek. Vopnafirði á undirbúningstímanum. „Þeir vissu alveg að hverju þeir gengu þegar þeir réðu mig. Auðvitað er þetta slæmt því hópurinn er mjög tvístraður. Þrír leikmenn eru í Reykjavík, einn í Vestmannaeyjum, einn á Laugum og hinir á Vopnafirði. Þeir virðast vera orðnir vanir að fá þjálfara seint á vorin enda kannski ekki ástæða að koma fýrr því aðstæður til knattspyrnuiðkunar eru engar fyrr en seint á vorin. Enginn malarvöllur er á Vopnafirði einungis 30x60 metra skólaport. Einu mögulegu aðstæðurnar er flugvöllurinn en þeir hafa ekki nýtt sér hann. Ekkert íþróttahús er á staðnum, þar af leiðandi engin lyft- ingatæki og er því fátt annað að gera en að hlaupa. Reyndar geta þeir fengið að sprikla aðeins í sam- komuhúsinu. VopnaQörður er gott dæmi þess að aðstaðan hefur ekki allt að segja heldur hugarfarið sem liggur að baki æfingunum. Mörg stærri byggðar- lög hafa mun betri aðstöðu en eiga ekki 2.deildarlið. Á Vopnafirði búa um 700 manns og koma 15-17 leik- menn til með að æfa. Þeir hafa aldrei byggt liðið upp á aðkomumönnum. Leikmenn sjá sjálfir um alla fjár- öflun og rekstur knattspyrnudeildarinnar. Þeir afla fjár með því að hreinsa sorp og stunda útskipanir. Komið hefur fyrir að þeir hafa lent í útskipun nóttina fyrir leik“. Stöðnun á möl Keppnisvöllur Einherja er grasvöllur eða tún eins og sumir vilja meina og er hann sjaldan leikhæfur fyrr en í júní. Einherji leikur því jafnan fyrstu leikina í ís- landsmótinu á útivelli og komið hefur fyrir að fyrstu 6-7 Ieikirnar hafi verið útileikir. Það er kannski slá- andi dæmi að Einherji er eina liðið á Austfjörðum sem leikur í 2.deild — eflaust sökum þess að liðið 46
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Íþróttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Íþróttablaðið
https://timarit.is/publication/1455

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.