Íþróttablaðið - 01.04.1986, Síða 66

Íþróttablaðið - 01.04.1986, Síða 66
Aftari röð frá vinstri: Kristinn Einarsson UMFN, Magnús Guðfinnsson ÍBK, Hannes Haraldsson Val, Ólafur Gottskálksson ÍBK, Jón Þór Gunnarsson Haukum, Jóhannes Sveinsson ÍR, og Jón Sigurðsson Þjálfari. Fremri röð frá vinstri: Teitur Örlygsson UMFN, Bárður Eyþórsson Val, Guðjón Skúiason ÍBK, Árni Blöndal KR, Jón Örn Guðmundsson ÍR. Á myndina vantar Magnús Matthíasson Rice University, Guðmund Bragason Cumberland Valley High School, Harald Leifsson og Eyjólf Sverrisson báðir frá Tindastól. Stjömur framtíð — rætt við Jón Sigurðsson um unglingalandslið íslands í körfubolta. Texti: Þorgrímur Þráinsson. Myndir: Jens og Loftur. Unglingalandslið íslands í körfu- bolta heldur til Frakklands í byrjun apríl og tekur þátt í Evrópukeppni unglingalandsliða dagana 7.-11. þess mánaðar. Keppninni sem fer fram í borginni La Baula skammt frá Nantes er skipt í 5 riðla og halda 2 efstu liðin áfram í lokakeppnina sem verður í Austurríki í ágúst. Þjálfari landsliðs- ins er Jón Sigurðsson,margreyndur landsliðskappi og einn af bestu körfu- boltamönnum landsins fyrr og síðar. íþróttablaðið tók hann tali áður en liðið hélt utan og leitaði upplýsinga um mótið. 66

x

Íþróttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Íþróttablaðið
https://timarit.is/publication/1455

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.