Íþróttablaðið - 01.12.1991, Síða 50
LANGAR Þ I G í RÚMLEGA
100 MILLJÓNIR
— rætt við Sigurð
Baldursson,
framkvæmdastjóra
íslenskra Getrauna
Texti: Helgi Kristjánsson
Mörgum þykir það ómissandi þátt-
ur í tilverunni að taka þátt í getraun-
um á laugardögum. íslenskar Get-
raunir hafa starfað í mörg ár, þar sem
tippað hefur verið á rétt úrslit í 12
leikjum. Nú fyrirstuttu hófu íslenskar
Getraunir og sænska fyrirtækið AB
Tipstjánst samstarf og fjölgaði þá
leikjunum í 13. Með heimild frá
dómsmálaráðherra var gerður samn-
ingur við Svíana um sameiginlegan
getraunapott í 21 viku eða til 4. apríl
1992. Þegar þessi grein er skrifuð
hafa tvær vikur verið spilaðar og þrír
íslendingar fengið yfir átta milljónir
íslenskra króna í vinning. Þegar
svona stórir vinningar eru í pottinum
eykst áhugi landsmanna fyrir því að
tippa og ef íþróttafélögin eru vakandi
geta þau haft góðar tekjur af áheitun-
um frá tippurum.
Framkvæmdastjóri íslenskra
Getrauna er Sigurður Baldursson og
hefur hann starfað þar á bæ síðan
1987, fyrst í hlutastarfi en 1988 hóf
hann störf sem markaðsstjóri og í dag
er hann framkvæmdastjóri. íþrótta-
blaðið ræddi við Sigurð um breyting-
arnar áfyrirkomulagi getraunanna og
hvernig félögin geta atjikið tekju-
möguleika sína. „Stóra atíiðið í þessu
sambandi er það að við erúm farnir
að spila frá viku til viku með Svíum
og það eru yfir 140.000.000 kr. f pott-
inum. Hugmyndin hjá okkur er sú að
það verði áframhald á þessu sam-
starfi eftir þessar 21 vikurogað Norð-
menn og Finnar komi inn ísamstarfið
eftir ár og þáerum við aðtala um 300
- 400.000.000 kr. pott."
Þeir sem eiga eða nota tölvur geta
fengið keypt getraunaforrit hjá Get-
raunum fyrir kr. 500,- sem er mála-
myndagjald. Hægt er að fá einstakl-
ingskerfi, sem hinn almenni tippari
notar, og félagakerfi, sem félögin
hafa, og gefur það kerfi félögunum
möguleika á að aðstoða félagsmenn
sína í að spá eftir tölvu.
í forritinu er gagnabrunnur þar
sem tipparinn getur fengið öll úrslit
úr ensku knattspyrnunni frá 1979 og
allar innbyrðisviðureignir liða frá
þeim tíma.
íslenskar Getraunir hafa gert margt
til þess að auðvelda viðskiptamönn-
um sínum aðgang að getraunaleikn-
um. Eilt af þvf er mótald sem einstakl-
ingur éða telag tengir við tölvuna
sjna og sírnann. Mótald er vélbúnað-
ur sem í rauninni er bara sími. Mót-
aldið er tengt höfuðtölvu íslenskra
Getrauna'ígegnum símalínu og getur
tipparinn sótt næsta seðil, nýjustu úr-
slit og stöður í gegnum mótaldið í
höfuðtölvu íslenskra Getrauna með
ákveðinni skipun. Nokkur íþróttafé-
lög hafa nú þegar notfært sér þessa
tækni og fengið sér lottókassa, tölvu
og mótald. Þau félög sem íþrótta-
blaðið veit um að eru með þessa
þjónustu fyrir sína félagsmenn eru
Fylkir, Fram, FH, Huginn Seyðisfirði,
Sindri Hornafirði, ÍA og Þróttur Nes-
kaupstað. Allmörgfélög í viðbót hafa
spurst fyrir um þetta hjá íslenskum
Getraunum. Ef félagsmenn þessara
félaga vilja notfæra sér þjónustu
þeirra, þá fengju þessi félög bæði
áheit þeirra og síðan 5% umboðs-
laun í yiðbót. Mótald fæst hjá flestölI-
um fyrirtækjum sem selja tölvur og
kosta frá kr. 15.000 - 25.000.
í47. leikviku fékk Fylkir flest áheit
eða 159.727 raðir sem gefa félaginu í
kringum 320.000 kr. Auk þess kom
mikill hlytfLáfieitanna inn í gegnum
telefax og PC tölvur hjá þeim, sem
þvöir 5% umboðslaun. Hlutur Fylkis
þessaeina viku var hátt Í400.000. kr.
Þessar tölur ættu að sýna forráða-
mönnum annarra félaga hvað félögin
gætu haft góðar tekjur af getraunum
ef vel er staðið að málum. I þessari
sömu leikviku fékk Fram 120 -
130.000.- kr. í tekjur. Bæði þessi fé-
50