Íþróttablaðið - 01.02.1995, Blaðsíða 3
Ritstjóraspjal I
Fræðslu- og útbreiðslustarf sérsambanda íþróttasambands íslands
hefur verið með ágætum í mörgum tilfellum en yfirleitt má þó gera
betur. Fræðslustarf getur verið með margvíslegum hætti en til þess að ná
sem best til barna- og unglinga og efla íþróttaáhuga þeirra er ein leið
öðrum betri, að mínu mati. Hún er sú að virkja íþróttastjörnurnar og
leyfa ungum íþróttamönnum að komast í snertingu við þær. Það hefur
tíðkast hjá sumum sérsamböndum að senda landsliðsþjálfara vítt og
breidd um landið og ýmsa forkólfa með fyrirlestra í vasanum og er það
gott og gilt. Því fjölbreyttari sem fræðslan er þeim mun meiri líkur eru á
því að efla íþróttaáhuga í landinu.
Hvaða þýðingu myndi það til að mynda hafa fyrir knattspyrnuiðkun á
Egilsstöðum ef Arnór Guðjohnsen, Guðni Bergsson og Eyjólfur Sverris-
son myndu verja þar dagsstund næsta sumar og ræða við iðkendur í
yngri flokkum Hattar, svara spurningum og gefa góð ráð? Á slíkri heim-
sókn myndu krakkarnir lifa næstu árin því ráðleggingar knattspyrnust-
jarnanna festast mun betur í vitund krakkanna en orð þjálfara sem þau
umgangast dagsdaglega. Ég nefni knattspyrnuna sem dæmi en vitanlega
mætti nota þessa fræðsluleið í flestum íþróttagreinum.
Það væri æskilegt ef sérsamböndin myndu virkja „fyrirmyndirnar"
með þessum hætti hvort sem þær eru enn að keppa eða nýhættar. Áður
en haldið væri af stað í svona fræðsluferðir væri æskilegt fyrir sérsam-
böndin að vita hverju viðkomandi íþróttamenn ætla að miðla því eins og
gengur eru ekki aílir vel af guði gerði til að láta gott af sér leiða.
Reynslumiklir íþróttamenn geta sagt frá atvikum, sem þeir hafa upplifað
í íþróttum, sem sumir þjálfarar hafa ekki þekkingu á en ungviðið hefði
gott af að heyra.
Einhverjir kunna að spyrja með hvaða hætti þetta sé framkvæmanlegt
og hvort ekki sé vonlaust mál að fá þekktustu íþróttamenn þjóðarinnar
til að taka þátt í þessu. Með skipulögðu starfi og með því að nýta sem
flesta þurfa íþróttamennirnir hugsanlega ekki að fara í nema þrjár til
fjórar dagsferðir út á land á árinu.
í vaxandi samkeppni meðal íþróttagreina hlýtur það að vera metnað-
armál forkólfa sérsambandanna að ná í sem flesta iðkendur. Okkar bestu
körfuknattleiksmenn gætu til að mynda gert víðreist um landið næsta
sumar því þá eru þeir ekki uppteknir við að spila. Sömuleiðis eru at-
vinnumenn okkar í knattspyrnu í ágætu fríi á sumrin og þeir hefðu bara
gaman af því að spjalla við ungt og áhugasamt íþróttafólk.
Úti á landi er fjarlægðin við íþróttastjörnurnar oft það mikil að
heimsókn einnar slikrar getur verið íþróttalífinu á staðnum gríðarleg
lyftistöng.
Þorgrímur
Þráinsson ritstjóri
Hafsteinn Viðar
auglýsingastjóri
t. tbl. 1995
Ritstjóri og ábyrg5armaöur:
Þorgrímur Þráinsson
Beinn sími ritstjóra: 678938
Ljósmyndarar: Gunnar
Gunnarsson, Hreinn
Hreinsson og Kristján
Einarsson
Skrifstofa ritstjórnar:
Bíldshöfða 18. Sími 875380.
Fax 879982
Aðalritstjóri:
Steinar J. Lúðvíksson
Framkvæmdastjóri:
Halldóra Viktorsdóttir
Stjórnarformaður:
Magnús Hreggviðsson
Áskriftargjald kr. 1.293,00
(1/2 ár) ef greitt er með
greiðslukorti en annars kr.
1.437,00.
Hvert eintak í áskrift
kr. 431,00 ef greitt er með
greiðslukorti en annars kr.
479,00.
Hvert eintak í lausasölu
kr. 599,00.
Áskriftarsími: 812300
Útgefandi: Fróði hf.
Skrifstofa og afgreiðsla:
Ármúla 18, sími 812300
Öll réttindi áskilin varðandi
efni og myndir.
G. Ben. - Edda prentstofa hf.
3