Íþróttablaðið


Íþróttablaðið - 01.02.1995, Blaðsíða 63

Íþróttablaðið - 01.02.1995, Blaðsíða 63
Stórhuga Smástundarmenn eftir sigur á Njarðvík í 32ja liða úrslitum bikarkeppninnar síðastliðið sumar. Efri röð frá vinstri: Magnús Steindórsson, Gestur Magnússon, Sigmar Helgason, Haraldur Bergvinsson, Stefán Erlendsson, Ásgeir Hilmisson, Valgeir töffari og Gísli Hjartarson liðsstjóri. Neðri röð frá vinstri: Ingi Freyr Ágústsson, Árni Gunnarsson, Sigurður Smári Benónýsson, Tryggvi Gunnarsson, Þorsteinn Gunnarsson, Rúnar Vöggsson stuðnings- maður, Jón Ólafur Daníelsson og Hermann Þorvaldsson. Leiðrétting á leiðréttingu! Háttvirturritstjóri! í 6. tbl. íþróttablaðs- ins 1994 mátti lesa greinarstúf frá Ung- mennafélagi Langnesinga þar sem þeir gera tilraun til að leiðrétta frétt blaðsins um ár- angur Smástundar síðastliðið sumar, sem var framar vonum okkar sem og stuðnings- mannaklúbbs liðsins sem heitir Stórstund. Gera þeir Langnesingar árangur okkar tor- tryggilegan og sýna fram á á tölfræðilegan og rökvísindalegan hátt að þeirra árangur síðastliðið sumar hafi verið lélegri en okkar! Gera þeir að tillögu sinni að það fari fram leikur milli Ungmennafélagsins Langnes- inga og Smástundar um heiðurstitilinn „Lé- legasta knattspyrnulið íslands." Því miður sjáum við okkur ekki fært að þiggja það góða boð því metnaður okkar, samkvæmt 4. tölulið, 4. greinar í 4. lið í lögum félagsins, er að „taka þátt í Evrópu- keppni eigi síðar en árið 2000.“ Samkvæmt okkar heimildum er ekki til Evrópukeppni fyrir lélegustu lið álfunnar en þeirri hug- mynd er hér með komið á framfæri. Ekki fer á milli mála að Ungmennafélag Langnesinga er lang lélegasta knattspyrnulið landsins og var það aldrei ætlunin að ræna þeirri nafn- bót af Langnesingum. Biðjum við auðmjúk- lega afsökunar á því að þeir skyldu hafa misskilið það. Ungmennafélag Langnesinga sér ástæðu til að telja sér það til hróss og tekna að hafa ekki fengið stig síðastliðið sumar. Það fékk Knattspyrnufélagið Smástund reyndar ekki heldur en samt sem áður unnum við ÞRJÁ leiki síðastliðið sumar, þar af einn á víta- spyrnukeppni. Fyrsti leikurinn vannst gegn Snæfelli í Stykkishólmi, 3:2 í fyrsta leik fs- landsmótsins. En það er skammgóður vermir að pissa í skóinn sinn. Snæfell dró sig úr keppni og við misstum stigin okkar. Þetta var þvílíkt áfall fyrir liðið að það hefði verið verðugt rannsóknarefni fyrir Freud, blessuð sé minning hans. Flestir leikmenn liðsins voru á barmi taugaáfalls og hefðu væntan- lega fengið pláss á stofnun, ef ekki hefði komið til Þjóðhátíðar sem varð til þess að hægt var að drekkja sorgum sínum fyrir al- vöru. Knattspyrnufélagið Smástund gerir að til- lögu sinni að Ungmennafélag Langnesinga skori á Ungmennafélag Selfoss í leik um titil- inn „Lélegasta knattspyrnulið íslands." Það helgast af því að eini leikurinn sem Smá- stund vann í opinberri keppni sl. sumar í venjulegum leiktíma, var einmitt gegn Sel- fyssingum í undankeppni bikarkeppni KSÍ. Leiknum lyktaði 3:2 og var sigurmarkið það fallegasta sem sést hefur í íslenskri knatt- spyrnu fyrr og síðar. Þar að auki féll Selfoss í 3. deild og voru þeir ekki með hýrri há allt sumarið eftir tapið gegn Smástund. Þess má einnig geta að Knattspyrnufélag- ið Smástund var eina meistaraflokksliðið í Vestmannaeyjum sl. sumar sem vann til gullverðlauna á móti og fékk glæsilegan bik- ar að launum. Við gerðum okkur lítið fyrir og urðum Vestmannaeyjameistarar í knatt- spyrnu eftir að hafa rúllað Framherjum upp í tveimur leikjum, 8:0 og 4:1. Auk þess tapaði liðið aðeins einum æfingaleik, gegn ÍBV, 2:4. Eftir að hafa tapað fyrir Víkingum í 16 liða úrslitum sl. sumar er það stefna Iiðsins að gera betur næst og komast í 8 liða úrslit. Árið 1996 verða það undanúrslit og úrslita- leikurinn ári síðar. I kjölfar þess verður um þátttöku í Evrópukeppninni að ræða 1998. Samkvæmt upphaflegu skipulagi er Knatt- spyrnufélagið Smástund nú þegar tveimur árum á undan áætlun. Hvað næsta sumar áhrærir er búist við að æfingar hefjist ekki seinna en í maí. Kemur þar margt til en helsta ástæðan er sú að bolti liðsins týndist síðastliðið haust við æfingar á Stórhöfða en hann fauk á haf út. Sjófarendur eru beðnir að hafa augun hjá sér ef þeir rekast á rauðan og hvítan knött. Um leið og þessari leiðréttingu á leiðrétt- ingu Langnesinga er komið á framfæri, ósk- um við öllum landsmönnum árs og friðar með von um gæfuríkt komandi knattspyrnu- sumar. Með fyrirfram þakklæti! Almannatengslanefnd Smástundar 63
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Íþróttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Íþróttablaðið
https://timarit.is/publication/1455

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.