Íþróttablaðið - 01.02.1995, Síða 59
MARKVARÐA
flugur
BERGSVEINN
BERGSVEINSSON,
markvörður
Aftureldingar og
landsliðsins, verður
væntanlega í
sviðsljósinu með
landsliðinu á HM í
vor.
HVERNIG hefur þér helst verið
lýst?
Sem upptrekktum bæjarbúa sem
varð rólegur kjúklingabóndi.
HVER kenndi þér allt sem þú
kannt.
Enginn sérstakur.
ER eitthvað sem þú myndir ekki
gera fyrir íþróttirnar?
Taka stera, ólögleg lyf og ekki
ganga aftur í Hauka.
ÁN hvers gætirðu alls ekki lifað?
Fjölskyldunnar, handboltans og
Holtakjúkl inga.
HVAÐ heldur þér vakandi?
Vesturlandsvegurinn.
HVER er mesta fórnin sem þú hef-
ur fært í íþróttum?
Að tapa með 8 mörkum fyrir
Haukum þegar við kepptum um 17.
júní bikarinnar árið 1986.
HVAÐA „litla" atvik hefur breytt
miklu í lífi þínu?
Að fara úr Haukum yfir f FH þegar
ég var 14 ára.
HVER var fyrsta platan sem þú
keyptir?
Dýrin í Hálsaskógi.
MESTU mistök í lífinu?
Þegar ég keypti Skodann.
HVAÐA hrós fékkstu síðast?
Frá konunni þegar ég henti jóla-
trénu í byrjun febrúar.
Keilubær
Töluverður uppgangur hefur verið í
keilu á íslandi síðastliðin ár og eig-
um við orðið mikið af frambærileg-
um spilurum. í Keflavíker Keilubær
aðsetur þeirra, sem vilja stunda
keilu, og hefur staðurinn verið starf-
ræktur í sex ár. Formaður Keilufé-
lags Suðurnesja heitir ANNEL
ÞORSTEINSSON en hann tók við
formennskunni í lok janúar síðast-
liðins. Að hans sögn greiða á milli
60 og 70 aðilar félagsgjöld til Keilu-
félags Suðurnesja en mun fleiri
stunda þó íþróttina þarna suður
með sjó. „Fjölgun félaga frá síðast-
liðnu ári er um 50% og við erum
með mjög blómlegt unglingastarf,"
segir Annel. „Um 30-40 börn og
í Keflavík
unglingar æfa hjá okkur og við eig-
um fimm íslandsmeistara í ungl-
ingaflokki. Einn þeirra, STEINÞOR
GEIRDAL, setti íslandsmet ungl-
inga á íslandsmeistaramóti fullorð-
inna og er hann mjög efnilegur.
Við væntum mikils af okkar fólki
í framtíðinni en í dag eigum við eitt
lið í 1. deild, eitt í 2. deild, sex í 3.
deild og þrjú kvennalið. Annars
hefur verið dálítið erfitt að fá stuðn-
ing frá bænum því við búum í
körfubolta- og knattspyrnubæ. Við
þut'um á styrkjum að halda til að
gera starfið enn blómlegra og vissu-
lega eykur það líkurnar á styrkjum
ef við stöndum okkur vel á íslands-
mótinu."
vanið
f HVAÐ myndl^J^^ata grafa
w Bersveinn. S^jBérgSveinsson. F.
' 5.01.1968" i- | öjr 25.01.2068.
'Blessuð.sé mínrjinafhans.