Íþróttablaðið - 01.02.1995, Blaðsíða 24
raun.
ÁSGEIR ELÍASSON, landsliðsþjálfari í
knattspyrnu, keypti sér par af stökk-
skóm fyrir síðustu jól og gerði tilraun
með þá á Þorvaldi syni sínum en hann
hefur leikið með yngri landsliðum ís-
lands í knattspyrnu. Fjölskyldan dvaldi í
þrjár vikur á Kanaríeyjum um síðustu jól
og áður en hún hélt utan mældi hann
stökkkraft Þorvalds á rafknúinni mottu
táberginu. Stökkskórnir hafa náð ágætis
útbreiðslu víða um heim og gefið góða
P.Ólafsson hf. Trönuhrauni hefur haf-
ið innflutning á svokölluðum STÖKK-
SKÓM (Jump-soles) sem eru mjög ákj-
ósanlegir fyrir þá sem vilja auka bæði
snerpu og sprengikraft. Skórnir eru
mjög sérstakir, eins og myndirnar bera
með sér, og fylgir hverju pari sex vikna
æfingaáætlun. Skórnir eru þannig hann-
aðir að álagið á kálfana er mjög mikið
enda er viðkomandi alltaf að vinna á
sem mælir hversu lengi viðkomandi er í
loftinu. „Ég notaði eingöngu helminginn
af æfingaprógramminu,“ segir Ásgeir,
„og lét strákinn æfa í skónum þrisvar í
viku. Hann gerði fátt annað í fríinu utan
þess sem við lékum okkur aðeins í tenn-
is. Æfingarnar voru sjö talsins og fólust í
hoppum og ýmsum hraðaaukningum.
Reyndar fylgdum við þeim ekki eftir til
hins ýtrasta.
Þegar við komum heim fór Þorvaldur
aftur á mottuna og þá kom í ljós að hann
hafði aukið stökkkraftinn um 7 sm, bætt
sig um 2 sekúndubrot í 30 metra hlaupi
og 0,2 brot í 10 metra hlaupi.“
Ásgeir segir að ekki hafi verið um
vísindalega rannsókn af sinni hálfu að
ræða en að þessi árangur gæfi vísbend-
ingu um það að æfingar í stökkskónum
geti aukið bæði snerpu og sprengikraft
en það finnst honum skorta töluvert í
íslenskri knattspyrnu.
24