Íþróttablaðið - 01.02.1995, Blaðsíða 12
„Þótt hann séstórog mikill er hann
viðkvæmur og mikil tilfinningavera.
Hannersú manngerðsem lifirsigsvo
mikið inn í kvikmyndir, svo dæmi sé
tekið, að hann væri vís með að
standa upp og tjá sig í miðri mynd.
Hans tími er ekki runninn upp í
íþróttunum þótt hann hafi staðið sig
vel fram til þessa. Ég sé þrjár flagg-
stengur, 1., 2. og 3. sætið en veit ekki
í hvaða sæti hann lendir. Árangurinn
hefur jákvæða hluti í för með sér en
ég veit ekki hvort hann næst á heims-
meistaramóti. Hann á eftir að snúa
við blaðinu og skrifa greinar eða eitt-
hvað í þeim dúr. Ég sé bók tengjast
honum þegar fram í sækir. Tímabilið
milli fimmtugt og sextugt verður
mjög skemmtilegt hjá honum. Hann
sækir í víðáttu, skógogfjöll til þess að
vera einn og hugsa sinn gang.
Mér finnst hann búa yfir miklum
krafti, mun meiri en hann gerir sér
grein fyrir. Hann hefur vantreyst sér
að einhverju leyti. Hann býr yfir
sprengikrafti sem hann er ekki enn
búinn að virkja. Hann þarf að kyrra
hugann, dempasig niður. Fljótfærnin
hefur tafið fyrir honum. Ég skynja að
hann hafi verið slæmur í mjöðminni.
Hann er tengdur einhverju keppn-
isliði í Ameríku og það hefur marga
jákvæða hluti í för með sér. Hann á
eftir að ferðast með þessum hópi og
dveljast mun meira í útlöndum en
hann gerir sér grein fyrir."
„FLJÓTFÆRNIN HEFUR
TAFIÐ FYRIR HONUM“
--------------•----------------
„Hann kemur inn á vissa punkta
sem er alveg með ólíkindum," sagði
Pétur Guðmundsson. „Ég er búinn
að eiga í vandræðum með mjöðmina
í 11 ár en ég var skorinn upp fyrir 10
árum. Ég hef aldrei náð með full-
komlega og verð því að gæta þess að
gera ákveðna hluti rétt því annars
bólgna ég upp. Já, þetta með skrifin
er fáum kunnugt en ég er með sögur
fyrir börnin mín inni í tölvunni og
hver veit nema þær fari í bók í fram-
tíðinni. Ég hef alla tíð haft blendnar
tilfinningar til miðla en þetta er ekki
í fyrsta skipti sem mér er sagt að það
búi mun meira í mér en hefur komið
í Ijós.
Núna æfi ég með University of
Alabama ásamt Sigurði Einarssyni
spjótkastara og við erum báðir stífir
og sterkir eftir hrikalegar æfingar í
fjóra mánuði. Núna tekur við tímabil
þar sem við þurfum að vinna úr
þessu því HM innanhúss verður í
mars. Éghefaldrei haftsvonamikinn
tíma til að æfa þannig að ég er bjart-
sýnn á keppnistímabilið. Takmarkið
í sumar er að standa sig á stórmótun-
um og reyna að bæta Islandsmetið."
12