Íþróttablaðið - 01.02.1995, Blaðsíða 61
íslandsmeistaramir í kappróðri árið 1|
Jens Guðbjörnsson (stýrimaður), Ásg«
Þorleifsson (forræðari) og Erlendur Si
940. Frá vinstri: Jón H. Sigurðsson,
;ir Jónsson. Sitjandi: Gunnar
gurðsson.
SIGURVEGARAR í 10.
KAPPRÓÐRARMÓTI
ÍSLANDS
ÍÞRÓTTABLAÐINU barst nýlega í
hendur mynd sem var tekin fyrir 55
árum en á henni eru ungir piltar sem
urðu Islandsmeistarar í kappróðrar-
móti íslands sem var haldið árið
1940 í 10. sinn. Róðrarkapparnir
kepptu fyrir Ármann og var vega-
lengdin 2000 metrar. Mótið var
haldið í Skerjafirði og svo skemmti-
lega vildi til að þeir, sem báru sigur
út býtum, voru yngstu keppendurn-
ir. Kennari félagsins var Skarphéð-
inn Jóhannesson en hann hafði æft
róður hjá Skjold í Kaupmannahöfn.
HEYRST HEFUR
*... að sumir hafi verið dálítið
óhressir með ummæli sálfræðings-
ins og handknattleiksþjálfarans JÓ-
HANNS INGA GUNNARSSONAR í
Morgunblaðinu eftir bikarúrslitaleik
KA og Vals þar sem KA sigraði verð-
skuidað. Jóhann Ingi sagði að það
hefði verið þjófnaður hefði Valur
farið með sigur af hólmi. Þetta þykir
mörgum undarlegt því KA menn
hefðu ekki getað kennt neinum öðr-
um um en sjálfum sér hefðu þeir tap-
að leiknum. Hins vegar hefðu menn
líklega talað um seiglu, hefð og
„karakter" hefði Valur náð að vinna
leikinn eftir hafa verið undir nánast
allan leiktímann.
*...að margir LANDSLIÐSMENN í
HANDBOLTA séu afar óhressir með
það að þurfa að dvelja á Hótel Sögu
á meðan heimsmeistarakeppnin fer
fram næsta vor. Hingað til hefur
mönnum yfirleitt leiðst að dvelja á
hótelum í keppnisferðum erlendis
og loksins þegar möguleiki er á að
sleppa því verður þeim þröngvað inn
á hótel. Hins vegar hlýtur það að
vera kostur að landsliðsmennirnir
eigi einhvers staðar griðarstað þar
sem þeir geta hist, rætt málin, borð-
að saman og stappað stálinu hver í
annan en út frá sálrænu hliðinni
hlýtur að vera betra fyrir þá að hvíla
í faðmi fjölskyldunnar á nóttunni.
Auk þess sem hóflegt kynlíf er
streitulosandi!