Íþróttablaðið


Íþróttablaðið - 01.02.1995, Blaðsíða 10

Íþróttablaðið - 01.02.1995, Blaðsíða 10
„MEÐ LJÓTUSTU TÆR NORÐAN ALPAFJALLA" „Hann á eftir að verða landsliðs- þjálfari. Hann er stundum ósáttur við þá þjálfun sem hann fær, hvernig hlutirnir eru byggðir upp og því mætti hann gagnrýna það meira und- irfjögur augu með þjálfaranum. Það ertekiðmarkáhonum. Hannermjög klár á sýnu sviði en afskaplega hlé- drægur. Hann er svo þrjóskur að þótt 20 túrbínur væru settar í rassinn á honum myndi hann samt sitja á sér tiI að láta á engu bera. Hann á eftir að sanna sig á öðru sviði í framtíðinni. Hann hefur opnast tilfinningalega hin síðari ár, er rómantískur. Eg sé tvö börn en hann á eftir að eiga tvö til vibótar og allt varðandi fjölskyldulíf- ið er mjög jákvætt. Er hann listrænn? Hann hlýtur að tengjast hestum því ég sé hesta hérna. Hann virðist hafa verið tengdur dökkum hesti, eða fol- aldi þegar hann var yngri. Og hann var líka hændur að hundi. Þessi dýr voru honum mikils virði og hann saknar þeirra. Hefur hann verið slæmur í kviðnum? Hann er með Ijót- ustu tær norðan Alpafjalla." ----------------•------------------- Sigurður Jónsson skellti upp úr þegar hann heyrði þetta. „Þetta er rosalega magnað. Já, ég myndi segja að ég væri listrænn en konan mín er ekki sammála því, kannski vegna þess að hún er í myndlistarskóla. Það er mikið til í þessu hjá Þórhalli, þó eigum við bara eitt barn. Það hefur minnkað undanfarin ár að ég sé ósammála þjálfurum hvað varðar uppbyggingu og þjálfun en ég var oft mjög ósáttur. Hvað varðar hundinn er þetta hárrétt. Þegar ég var sex ára átti ég hund en hann var sendur í sveit eftir að hafa glefsað í stelpu. Þetta var víst sárasaklaust og fannst mér mjög sárt að missa hann. Fyrir sex árum eignaðist ég brúnt folald, sem er mjög vel tamin hryssa í dag. Já, tærnar eru ógeðslegar, það er ekki heil brú í þeim. Ég hef reynt kalkkúra og fleira til að bæta þær en ekkert gengur. Þær hafa orðið svona eftir áralanga veru í þröngum fót- boltaskóm. Þetta með magann er líka rétt því ég var skorinn upp. Mér líst vel á sumarið og ef við missum ekki menn í meiðsli verðum við öflugir enn eitt árið. Við eigum marga unga og sterka stráka en það væri ekkert verra að fá einn til tvo leikmenn til að auka breiddina. Ég reikna með að KR, með feiknasterk- an mannskap, verði okkar helstu keppinautar ef leikmennirnir ná saman og Fram hefur fengið góðan liðsstyrk." 10
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Íþróttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Íþróttablaðið
https://timarit.is/publication/1455

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.